• Skagamaðurinn Oliver Stefánsson, sem er samningsbundinn sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping, hefur skrifað undir samning við ÍA út leiktíðina 2022. Um er að ræða lánssamning og verður varnarmaðurinn efnilegi í herbúðum ÍA út keppnistímabilið í efstu deild karla sem hefst í apríl á þessu ári. Oliver samdi við Norrköping í lok ársins 2018, á sama tíma og...

  • Dróni er ómannað loftfar sem er fjarstýrt, því er flogið með notkun fjarstýribúnaðar. Gísli Jens Guðmundsson hefur á undanförnum mánuðum tekið fjölmargar ljósmyndir af Akranesi með slíku loftfari. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr safni „Gísla Rakara“ sem hann tók í vetrarblíðunni í gær á Akranesi. Akranes 2022. Mynd/Gísli G. Akranes 2022. Mynd/Gísli G....

  • Keppnislið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi hefur farið af stað með látum í spurningakeppni Gettu betur – spurningakeppni framhaldskólanna. FVA hefur sigrað í fyrstu tveimur viðureignunum og er komið alla leið í 8-liða úrslit. Búið er að draga í 8-liða úrslitum. FVA keppir gegn liði Fjölbrautaskóla Garðabæjar, og fer sú keppni fram föstudagskvöldið 11. febrúar 2022...

  • Snemma í morgun kom Bjarni Ólafsson AK 70 til Neskaupstaðar með fyrsta loðnufarminn sem þangað berst á vertíðinni sem veiddur er í nót. Þetta kemur fram í færslu á fésbókarsíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Fram til þessa hafa loðnuskipin veitt í flotvörpu en nú eru þau að taka grunnnætur og flotvörpuveiðunum að ljúka. Barði NK er...

  • Í dag var dregið í forkeppni í Mjókurbikarkeppni karla og kvenna í knattspyrnu. Karlalið ÍA, sem lék til úrslita gegn Víkingum úr Reykjavík, þarf ekki að taka þátt í forkeppninni og verður liðið í „hattinum“ þegar dregið verður í 32-liða úrslitum keppninnar. Kvennalið ÍA mætir liði Fjölnis úr Grafarvogi í forkeppninni og fer sá leikur...

  • Auglýsing Í tímavélinni förum við aftur til ársins 2006 þar sem mikið var um að vera á Langasandi á Akranesi. Tímarnir hafa breyst mikið eins og sjá má á þessum myndum sem Skagafréttir tóku þann 18. október 2006. Reyk lagði úr báðum skorsteinunum við Sementsverkssmiðjuna og fiskimjölsverksmiðju HB Granda. Vélhjólaíþróttaklúbburinn (VÍK) og Vélíþróttaklúbbur Akraness héldu...

  • Margir Skagamenn muna eftir hinni einu sönnu Axelsbúð, eða Veiðafæraverslun Axels Sveinbjörnssonar. Hér fyrir neðan eru fróðlegir þættir sem teknir voru upp þegar Axelsbúð hætti vorið 2005. Rætt við Axel Gústafsson en afi hans stofnaði verslunina á sínum tíma og starfaði Axel í búðinni í þrjá áratugi. Auglýsing

  • Alls greindust 1.294 einstaklingar með Covid-19 smit á landinu í gær. Um 3.500 sýni voru tekin og ríflega þriðja hvert sýni var því jákvætt. Á Vesturlandi er staðan þannig að tæplega 350 smit eru til staðar í landshlutanum og þar af eru um 220 á Akranesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi.

  • Á undanförnum mánuðum hafa staðið yfir viðræður um flutning á starfsstöðum ríkisstofnana sem eru með aðsetur við Stillholt á Akranesi. Hugmyndin er að stofnanir á borð við Landmælingar, Vinnueftirlitið, Vinnumálastofnun og Sýslumaður Vesturlands færi starfsemi sína í húsnæði við Smiðjuvelli 28. Landmælingar Íslands, Sýslumaður Vesturlands og Vinnueftirlitið eru með starfsstöðvar sínar í Stjórnsýsluhúsi Akraness, við...

  • Skipulags -og umhverfisráð Akraness styður hugmyndir um að gamla Þjóðveginum verði lokað tímabundið á tímabilinu október – mars. Erindi þess efnis var til umfjöllunar á fundi ráðsins sem fram fór í dag. Hestamenn telja að öryggi þeirra sé ábótavant miðað við óbreytt ástand og hafa þeir óskað eftir aðgerðum til að hefta för ökutækja, Skipulags...

Loading...