• Tveir leikmenn úr röðum ÍA eru í 26 manna æfingahóp hjá U-17 ára landsliði karla í knattspyrnu sem kemur saman til æfinga dagana 19.-21. janúar 2022. Jörundur Áki Sveinsson, er landsliðsþjálfari U17 karla. Æfingarnar fara fram í Skessunni í Hafnarfirði. Leikmennirnir úr ÍA eru þeir Haukur Andri Haraldsson og Logi Mar Hjaltested sem er markvörður....

  • Íþróttalífið á Akranesi hefur í gegnum tíðina verið mjög kraftmikið og fjölbreytt. Nýverið var frumsýnt myndband sem Kristinn Gauti Gunnarsson hefur sett saman fyrir ÍA – þar sem að kastljósinu er beint að þeim íþróttagreinum sem eru stundaðar undir „regnhlífarhatti“ Íþróttabandalags Akraness – ÍA. Afurðin á sér langa sögu en árið 2019 fékk Íþróttabandalag Akraness,...

  • Auglýsing Eitt fjölmennasta íþróttamót sem fram hefur farið á Akranesi var Landsmót Ungmennafélags Íslands. Verkefnið var samvinnuverkefni Ungmennafélagsins Skipaskaga og UMSB – og fór það fram árið 1975. Töluverðar framkvæmdir áttu sér stað í aðdraganda mótsins og var m.a. 25 metra sundlaug sett upp þar sem þyrluflugvöllurinn er í dag. Sundlaugin var síðar sett upp...

  • Það verður nóg um að vera hjá Díönu Bergsdóttur á næstu vikum og mánuðum en hún hefur sett á laggirnar Dansstúdíó á Akranesi. Díana er þaulreynd í faginu en hún stundaði nám í Listdansskóla Íslands og er einnig með BA í markaðsfræði, og þjálfararéttindi í fimleikum. Díana stofnaði nýverið Dansstúdíó og fyrsta námskeiðið á hennar...

  • Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 karla hjá Knattspyrnusambandi Íslands, hefur valið hóp sem tekur þátt í æfingum dagana 17.-19. janúar. Einn leikmaður er í hópnum frá ÍA, Daníel Ingi Jóhannesson. Æfingarnar fara fram í Skessunni í Hafnarfirði. Hópurinn er þannig skipaður: Hrafn Guðmundsson – Afturelding Sindri Sigurjónsson – Afturelding Breki Baldursson – Fram Þorri Stefán...

  • Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U16 kvenna í knattspyrnu, hefur valið hóp til æfinga dagana 12.-14. janúar. Einn leikmaður úr röðum ÍA er í þessum úrtakshópi, markvörðurinn efnilegi, Salka Hrafns Elvarsdóttir. Æfingarnar fara fram í Skessunni í Hafnarfirði. Alls eru 27 leikmenn í úrtakshópnum og er hann hér fyrir neðan. Hópurinn Steinunn Erla Gunnarsdóttir – Afturelding...

  • Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingakona, var í kvöld kjörin Íþróttamaður Akraness 2021, en þetta er annað árið í röð sem hún er efst í þessu kjöri. Enrique Snær Llorens Sigurðsson, sundmaður, varð annar í kjörinu og badmintonkonan Drífa Harðardóttir varð þriðja. Greint var frá kjörinu í beinni útsendingu á ÍATV fyrr í kvöld. Kristín fékk nýjan verðlaunagrip,...

  • Þorrablót Skagamanna 2022 verður með sama sniði og árið 2021. Hin hefðbundni viðburður í íþróttahúsinu við Vesturgötu verður ekki á dagskrá en þess í stað verður streymt frá viðburðinum – líkt og gert var í fyrra vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Akraness frá því í dag. Á þeim fundi var samþykkt...

  • Kjörinu á Íþróttamanni Akraness verður lýst í kvöld og fer athöfnin fram kl. 1820. Bein útsending verður frá kjörinu á ÍATV. Hér fyrir neðan er hlekkur á útsendinguna. Fyrst var kosið árið 1965 en frá árinu 1977 hefur kjörið farið fram árlega. Ríkharður Jónsson var sá fyrsti sem var kjörinn en það liðu sjö ár...

  • Sjónvarpsstöðin N4 fjallaði á dögunum um áhugavert verkefni á Akranesi þar sem á uppruna sinn að rekja til samstarfs Bókasafns Akraness og Skagaleikflokksins. Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson sem sjá um sjónvarpsþáttinn Að Vestan á N4 voru með Kellingagönguna á Akranesi til umfjöllunar í þætti sínum í desember s.l. Innslagið má sjá hér fyrir...

Loading...