• Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U17 kvenna í knattspyrnu, hefur valið hóp til æfinga dagana 10.-12. janúar. Ylfa Laxdal Unnarsdóttir leikmaður ÍA er í þessum hóppi sem er skipaður 30 leikmönnum. Næsta verkefni U17 kvenna eru milliriðlar undankeppni EM 2022. Ísland er þar í riðli með Írlandi, Finnlandi og Slóvakíu og verður leikið á Írlandi 23.-29....

  • „Okkur þykir miður að tilkynna að komið er að leiðarlokum í Leirbakarínu, síðustu dagarnir sem opið er hjá okkur eru föstudagurinn 7. og laugardagurinn 8. janúar,“ segir í tilkynningu frá Kolbrúnu Sigurðardóttur og Maríu Kristínu Óskarsdóttur sem hafa kryddað gamla miðbæinn á Akranesi undanfarin þrjú ár með handverksmiðstöðinni við Suðurgötu. Við þökkum kærlega fyrir góðar...

  • Nýr verðlaunagripur verður tekin í notkun þegar Íþróttamaður Akraness verður krýndur þann 6. janúar 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íþróttabandalagi Akraness sem er að finna hér fyrir neðan. Tímamót í kjöri íþróttamanns AkranessUpprunin eru tímamót í kjöri Íþróttamanns Akraness, en nýr verðlaunagripur verður tekinn í notkun og afhentur í fyrsta skipti þegar kjör...

  • Skóla – og frístundaráð Akraness hefur samþykkt að stofna starfshóp sem hefur það hlutverk að rýna í styrkleika og tækifæri til umbóta innan skóla- og frístundastarfs varðandi samskipti og einelti. Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins. Starfshópurinn á að endurskoða verklag og verkferla og nýta til þess færustu sérfræðinga í málefninu. Markmið með verkefninu er...

  • Gísli Jens Guðmundsson, sem er betur þekktur sem Gísli Rakari, hefur á undanförnum misserum tekið mikið af ljósmyndum af Akranesi úr dróna. Fyrirbærið sem Gísli notar við myndatökuna er ómannað loftfar sem er fjarstýrt, því er flogið með notkun fjarstýribúnaðar. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr safni „Gísla Rakara“ sem hann tók í desember....

  • Búi Örlygsson hefur starfað samfleytt í 21 ár hjá Landsbankanum og nýverið tók hann við sem forstöðumaður eignastýringar hjá Landsbankanum. Þetta kemur fram í viðtali við Skagamanninn á vef Viðskiptablaðsins. „Ég hef alltaf verið viðloðandi verðbréfaþjónustu og eignastýringu, en ég byrja í þessari svokölluðu einkabankaþjónustu sem er hluti af eignastýringaþjónustu okkar árið 2005, og hef...

  • Hið árlega kjör Íþróttamanns Akraness fer nú fram og stendur kosning til og með 03.01.2022. Vegna COVID-19 þá er það annað árið í röð sem ekki öll aðildarfélög ÍA geta verið með tilnefningar.Ekki var hægt að halda alla þá viðburði sem áætlaðir voru árið 2021.Úrslit verða kunngerð þann 6. janúar 2022 í beinu streymi frá...

  • Bikarkepppni Sundsambands Íslands fór fram í lok desember en keppnin á sér langa hefð og sögu í sundíþróttinni. Um er að ræða liðakeppni þar sem að keppendur safna stigum fyrir sitt félag. Sundfélag Akraness sendi bæði kvenna – og karlalið til keppni. Þar náðu keppendur úr röðum fínum árangri, margir bættu árangur sinn. Karlalið Sundfélags...

  • Breytingar verða um áramótin í eigendahópi Veislur & Viðburðir sem hefur einnig rekið Gamla Kaupfélagið á Akranesi undanfarin ár. Ísólfur Haraldsson hefur tekið rekstri fyrirtækisins en þeir Gunnar H. Ólafsson, Valdimar Ingi Brynjarsson og Birkir Snær Guðlaugsson munu snúa til annarra starfa á nýju ári. Þetta kemur fram í pistli sem Ísólfur skrifaði á fésbókarsíðu...

  • Bræðurnir frá Beitistöðum Ólafur og Magnús Óskarssynir kvöddu í gær Bílasöluna Bílás sem þeir hafa rekið saman í um fjóra áratugi. Alexander Leó Þórsson og Kristján Einarsson hafa keypt Bílasöluna Bílás og taka við keflinu af þeim bræðrum. Það var sannkölluð fjölskyldustund í gær þegar þeir bræður kláruðu síðustu söluna á starfsferlinum. Jóhanna Ólafsdóttir, dóttir...

Loading...