Tónlistarhátíðinni HEIMA-SKAGI hefur verið aflýst vegna aðstæðna í samfélaginu á Akranesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar. Tilkynningin er hér fyrir neðan: Í ljósi aðstæðna dettur okkur ekki í hug að halda HEIMA-SKAGA hátíðina um helgina eins og stóð til. Okkur þykir það auðvitað hrikalega leiðinlegt þar sem allt var klárt og ekkert...
Þriðjungur allra Covid-19 smita sem greind voru á landinu í gær eru á Akranesi. Alls greindust 144 með Covid-19 í gær samkvæmt upplýsingum frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnarlækni. Á Akranesi greindust 50 einstaklingar með Covid-19 smit eins og áður hefur verið greint frá á skagafrettir.is. Ekki hafa fleiri Covid-19 smit greinst á Íslandi í 93 daga...
Alls greindust 50 einstaklingar með Covid-19 smit í gær á Akranesi. Alls eru 75 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og 109 einstaklingar eru í sóttkví. Lögreglan á Vesturlandi greindi frá þessum tölum nú rétt í þessu. Bæjarráð Akraness hefur komist að þeirri niðurstöðu að fella niður alla starfsemi í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og frístundastarfi...
Það verður nóg um að vera á tónlistarhátíðinni HEIMA-SKAGI sem haldin verður samhliða Vökudögum, menningarhátíð Skagamanna. Á HEIMA-SKAGI koma listamenn/hljómsveitir á Akranes laugardaginn 6. nóvember og halda tónleika heima hjá nokkrum íbúum eða í öðrum skemmtilegum híbýlum. Nánar um hátíðina á fésbókarsíðu HEIMA–SKAGA og miðasala er á TIX. Listafólkið sem hefur boðað komu sína eru:...
Tveir leikmenn úr röðum ÍA eru í U-15 ára landsliðshóp Íslands í knattspyrnu karla sem kemur saman til æfinga dagana 10.-12. nóvember. Þjálfari liðsins eru Skagamaðurinn Lúðvík Gunnarsson en hann valdi alls 32 leikmenn í þetta úrtak. Leikmennir koma frá 15 félögum víðsvegar af landinu. Víkingur Reykjavík á flesta leikmenn eða 6 alls og Valur...
Þrír leikmenn úr röðum Knattspyrnufélags ÍA eru í æfingahóp U-19 ára landsliðs Íslands sem mun æfa saman dagana 8.-10. nóvember 2021. U-19 ára liðið mun leika í undankeppni EM 2022 næsta vor en þjálfari liðsins er Ólafur Ingi Skúlason. Leikmenn ÍA sem valdir eru í hópinn eru Guðmundur Tyrfingsson, Hrafn Hallgrímsson og Ingi Þór Sigurðsson....
Fjarkennsla verður í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í dag og á morgun. Skólastjórnendur í FVA grípa til þessara aðgerða vegna Covid-19 smita sem eru til staðar á Akranesi. Fram kemur í tilkynningu á vef skólans að alvarleg staða sé upp komin vegna smits af kórónuveiru hér á Akranesi. Smitrakning er í gangi og búist við...
Umtalsverð fjölgun Covid-19 smita er á Vesturlandi samkvæmt uppfærðum upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Á Akranesi eru 25 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og greindust því 14 ný smit í gær. Í Borgarnesi greindust 6 einstaklingar með Covid-19 smit. Einstaklingum í sóttkví fjölgar því umtalsvert á Akranesi í kjölfarið en alls eru 63 í...
Syndum, landsátak í sundi hófst í gær með formlegum hætti í Laugardalslaug. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til að hreyfa sig með því að synda saman hringinn í kringum Ísland. Landsmenn skrá sig og metrana sem þeir synda á forsíðu www.syndum.is Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt. Þaulreynt sundfólk á...
Árgangamóti Knattspyrnufélags ÍA sem var á dagskrá í nóvember á þessu ári hefur verið frestað fram til ársins 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum mótsins. Árgangamótið hefur notið vinsælda á undanförnum árum þar sem að konur – og karlar á öllum aldri keppa í knattspyrnu sér til gamans í Akraneshöllinni og styðja um...