Edduverðlaunin 2021, uppskeruhátíð íslenska sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðarins sem ÍKSA stendur fyrir árlega voru veitt í sjónvarpþætti á RÚV, sunnudaginn 3. október. Að þessu sinni voru veitt verðlaun í 26 flokkum sem kosin voru af meðlimum ÍKSA, auk verðlauna fyrir sjónvarpsefni ársins sem er almenningskosning. Þá voru árleg Heiðursverðlaun Eddunnar einnig veitt og komu þau í hlut Reynis...
Sundfólk úr röðum ÍA átti góða keppnishelgi þar sem keppt var á tveimur mótum Keppendur 13 ára og eldri tóku þátt á Arena móti Ægis og sendi ÍA 16 keppendur. Í Keflavík tóku 12 ára og yngri þátt á Speedo-mótinu og tóku 10 keppendur úr röðum ÍA þátt. Einar Margeir Ágústsson, sem er 16 ára...
Það var gríðarleg stemning á Norðurálsvellinum í dag þegar ÍA tryggði sér sæti í úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ í karlaflokki. Gísli Laxdal Unnarsson skoraði bæði mörk ÍA í leiknum gegn Keflavík. ÍA mætir Íslandsmeistaraliði Víkings úr Reykjavík í úrslitum þann 16. október á Laugardalsvelli. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2003 sem ÍA leikur til...
Karlalið ÍA leikur til úrslita í Mjólkubikarkeppni KSÍ eftir 2-0 sigur gegn Keflavík í undanúrslitum á Norðurálsvellinum í dag. Gísli Laxdal Unnarsson skoraði bæði mörk ÍA í fyrri hálfleik og staðan var 2-0 eftir 26 mínútur. Leikmenn ÍA stóðust allar atlögur Keflvíkinga það sem eftir var leiks með frábærum varnarleik. ÍA mætir sigurliðinu úr viðureigna...
„Ég keppti á mínu fyrsta kraftlyftingamóti fyrir rúmum tveimur árum síðan. Ég er því hæstánægður með árangurinn á þessu móti og það er nóg framundan. Norðurlandamót unglinga í Finnlandi í byrjun nóvember og vonandi Reykjavíkurleikar í lok janúar á næsta ári,“ segir Skagamaðurinn Alexander Örn Kárason sem náði frábærum árangri á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískum...
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U21 karla í knattspyrnu, hefur valið æfingahóp fyrir undirbúning liðsins fyrir leikinn gegn Portúgal í undankeppni EM 2022. Í hópnum eru 24 leikmenn en lokahópur fyrir leikinn verður gefinn út laugardaginn 9. október. EInn leikmaður úr röðum ÍA er í hópnum, Ísak Snær Þorvaldsson. Leikurinn gegn Portúgal er þriðji leikur liðsins...
Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson, leikmaður FCK í Kaupmannahöfn, er í U-19 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í undankepppni EM 2022. Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari U-19 ára landsliðsins, tilkynnti lið sitt í dag sem mun taka þátt í fyrstu umferð undankeppninnar. Ísland er þar í riðli með Ítalíu, Litháen og Slóveníu í riðli og er...
Hilmar Örn Agnarsson tók nýverið við starfi organista í Akraneskirkju. Hilmar Örn er ráðinn til eins árs en Sveinn Arnar Sæmundsson er í ársleyfi. Þetta kemur fram á vef Akraneskirkju. Hilmar Örn hefur áður verið organisti í Skáholtsdómskirkju á árunum 1991 til loka árs 2008, þar stjórnaði hann öflugu tónlistarlífi og kórastarfi. Í upphafi árs...
Tveir Skagamenn voru í dag valdir í A-landsliðshóp íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Armeníu og Liechtenstein í undankeppni Heimsmeistaramótsins 2022. Ísak Bergmann Jóhannesson og Stefán Teitur Þórðarson eru í landsliðshópnum sem Arnar Þór Viðarsson þjálfari A-landsliðsins tilkynnti í dag. Arnór Sigurðsson, sem hefur verið í A-landsliðinu undanfarin misseri, er ekki í hópnum að þessu...
Helgi Arnar Jónsson gerði sér lítið fyrir og bætti Íslandsmet í hnébeygju og réttstöðulyftu í 83 kg. flokki á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyfingum í dag. Skagamaðurinn, sem er fæddur árið 1998, bætti samanalagðan árangur sinn um 29,5 kg. Hann bætti Íslandsmetið í sínum þyngdar – og aldursflokki tvívegis í hnébeygju og hann fjórbætti Íslandsmetið...