Skagafrettir.is fagna fimm ára afmæli í dag. Þessi tími, alls 1827 dagar, hefur verið skemmtilega fljótur að líða og viðtökur lesenda frábærar. Takk fyrir allar heimsóknirnar, hrósið og lesturinn. Samanlagt hafa um 400 þúsund gestir komið í heimsókn á skagafrettir.is frá opnunardeginum en vefurinn fór „óvart“ í loftið þann 10. nóvember 2016. Hugmyndina má rekja...
Lítil breyting er á fjölda Covid-19 smita á Akranesi og Vesturlandi þrátt fyrir að 178 einstaklingar hafi greinst með smit á landinu öllu í gær. Aldrei áður hafa svo margir greinst á einum degi hingað til. Á Akranesi eru 133 í einangrun með Covid-19 smit og aðeins einn greindist því í gær. Af þeim 178...
Ketill Már Björnsson og Ingibjörg Finnbogadóttir hafa á undaförnum árum bjargað Möggu Hall húsinu í Hnífsdal sem byggt var árið 1910. Ketill og Ingibjörg, sem eru búsett á Akranesi, rákust á þetta hús þegar þau voru að hlaupa saman um svæðið. Þau heilluðust af hugmyndinni að eignast húsið og gera það upp. Húsið var afar...
Hannes Sigurbjörn Jónsson, íbúi á Akranesi, skrifaði í morgun pistil þar sem hann opnar á umræðu um einelti og afleiðingar þess. Hjónin Hannes og Bergþóra Sigurjónsdóttir eiga soninn Jón Gaut, sem hvatti föður sinn til þess að skrifa pistilinn þar sem að fjallað er ítarlega um þá skelfilegu upplifun sem Jón Gautur hefur orðið fyrir...
Alls má rekja 130 Covid-19 smit til skemmtunar sem fram fór á Akranesi fyrir rúmri viku. Þetta kemur fram í viðtali á RÚV við Þóri Bergmundsson sem er framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands og umdæmissóttvarnalæknir Vesturlands. Í gær greindist metfjöldi Covid-19 smita á landinu öllu eða 168 og þar af voru 14 á Akranesi. Frá...
Skagamaðurinn Ólafur Elías Harðarson, sem er 24 ára gamall og með Downs-heilkenni hefur ekki getað fengið rafræn skilríki vegna krafna um að hann sæki þau sjálfur og velji lykilorð án aðstoðar. Þetta kemur fram í viðtali við móður Ólafs, Ágústu Rósu Andrésdóttur, á fréttavef RÚV. Ólafur Elías fór í Covid-19 próf en hann gat ekki...
Alls eru 168 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit á Vesturlandi og þar af 132 á Akranesi. Þetta kemur fram í uppfærðum upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Í gær bættus við 14 einstaklingar með Covid-19 smit á Akranesi en einstaklingum í sóttkví fer hratt fækkandi og eru þeir 127 á Akranesi og 203 í landshlutanum....
Alls greindust 13 einstaklingar með Covid-19 smit í gær á Akranesi og eru alls 118 í einangrun. Töluverð fækkun er í fjölda einstaklinga í sóttkví en alls eru 217 í sóttkví og fækkaði þeim um 180 á milli daga. Á landinu öllu greindust 117 einstaklingar með Covid-19 smit samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Þar af...
Ingunn Ríkharðsdóttir skólastjóri Garðasels skrifar: „Eins og lítið sár sem hleypir inn sýkingu sem veldur bólgu… Eins og lítil rifa á lakki bíls sem hleypir inn vatni og súrefni sem veldur ryði sem breiðist út… Eins og eggjaskurn sem brotnar og innihaldið flæðir út… Eins og dropinn sem holar steininn… …er eineltið. Það rífur varnirnar,...
Gert er ráð fyrir allar stofnanir á skóla- og frístundasviði Akraneskaupstaðar verði með starfsemi á morgun mánudaginn 8. nóvember en þó er vitað að einhver skerðing mun verða á þeim stöðum þar sem starfsmenn eða börn eru í einangrun eða sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað vegna stöðunnar í samfélaginu vegna fjölda Covid-19...