Það eru 15 einstaklingar á Akranesi með Covid-19 smit og 18 eru í sóttkví samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Á Vesturlandi eru alls 49 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og þar af 25 í Búðardal. Tæplega 100 eru í sóttkví í landshlutanum. Ekkert smit er til staðar í tveimur þéttbýliskjörnum á Vesturlandi.
Tæplega 100 einstaklingar greindust með Covid-19 smit á síðasta sólarhring samkvæmt upplýsingum á vefnum covid.is. Á landinu öllu eru 840 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og þar af eru 47 á Vesturlandi. Í sóttkví eru 175 einstaklinga á Vesturlandi og alls eru tæplega 1800 einstaklingar í sóttkví í landshlutanum. Ekki hafa verið gefnar út...
Einn leikmaður úr röðum ÍA er í æfingahóp U-17 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu sem kemur saman til æfinga 3.-5. nóvember. Magnús Örn Helgason er þjálfari liðsins en næstu verkefni liðsins eru vorið 2022 í undankeppni Evrópumótsins 2022. Lilja Björk Unnarsdóttir leikmaður ÍA er í þessum æfingahóp sem er skipaður 25 leikmönnum. Leikmennirnir koma frá...
Aldís Ylfa Heimisdóttir verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu hjá ÍA og þjálfari 2. flokks kvenna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Knattspyrnufélagi ÍA. Magnea Guðlaugsdóttir var nýverið ráðin sem aðalþjálfari mfl. kvenna en liðið leikur í 2. deild á næsta tímabili eða þriðju efstu deild. Aldís Ylfa er þaulreyndur þjálfari þrátt fyrir ungan aldur....
Skagamaðurinn Jóhannes Harðarson verður næsti aðstoðarþjálfari karlaliðs ÍA í knattspyrnu samkvæmt heimildum hlaðvarpsþáttarins Þungavigtin – sem er hluti af fjölmiðlarisanum SÝN. Kristján Óli Sigurðsson – einn af þáttastjórnendum Þungavigtarinnar sagði í þættinum í dag að Jóhannes verði næsti aðstoðarþjálfari mfl. ÍA og fái án efa stærra hlutverk innan félagsins. Jóhannes Karl Guðjónsson, aðalþjálfari karlaliðs ÍA...
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. til 28. nóvember 2021. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Syndum...
Dróni er ómannað loftfar sem er fjarstýrt, því er flogið með notkun fjarstýribúnaðar. Gísli Jens Guðmundsson hefur á undanförnum mánuðum tekið fjölmargar ljósmyndir af Akranesi með slíku loftfari. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr safni „Gísla Rakara“ sem hann tók í byrjun október. Akranes 2021. Mynd/Gísli G. Akranes 2021. Mynd/Gísli G. Akranes 2021. Mynd/Gísli...
„Þetta er skemmtilegt verkefni sem vonandi verður framhald á. Hugmyndin er sótt til Vestmannaeyja þar sem að svipuð verkefni hafa verið gerð. Ég hefði viljað hafa meiri tíma til að gera fleiri slíkar myndir en það gafst ekki tími í það vegna vinnu,“ segir Björn Lúðvíksson sem er einn af fimm listamönnum á Akranesi sem...
Hallur Freyr Sigurbjörnsson hefur verið ráðinn sem styrktarþjálfari hjá Knattspyrnufélagi ÍA. Hallur Freyr hóf störf hjá félaginu í þessu hlutverki um mitt sumar þegar Arnór Snær Guðmundsson réði sig til starfa hjá Noregsmeistaraliði Bodö/Glimt. Hallur Freyr hefur starfað sem styrktarþjálfari hjá meistaraflokki karla, en nú hefur hann verið ráðinn til lengri tíma. Í tilkynningu frá...
Skóla- og frístundaráð Akraneskaupstaðar samþykkti nýverið að nýi leikskólinn sem er að rísa í Skógarhverfi fái nafnið Garðasel Starfsemi núverandi Garaðsels verður flutt í nýja húsnæðið þegar byggingin verður tilbúinn. Alls verða sex deildir á leikskólanum og er möguleiki að bæta við tveimur deildum til viðbótar. Leikskólinn Garðasel í Skógarhverfi verður um 1550 fermetrar en...