Fyrr á þessu ári var ljóst að ráðast þyrfti í viðamiklar endurbætur á húsnæði Grundaskóla vegna rakaskemmda. Á fundi bæjarráðs Akraness í síðustu viku voru tveir kostir lagði fram fyrir ráðið og var svokölluð leið A fyrir valinu. Sú leið felur m.a. í sér að framkvæmdakostnaður við endurbætur á Grundaskóla verður 780 milljónir kr. Á...
Breytingar verða gerðar á opnunartíma Guðlaugar við Langasand í sumar og mun breytingin gild fram til 31. ágúst á þessu ári. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi bæjarráðs. Breytingin felur í sér að opið verður alla virka daga frá 12-20 og um helgar verður opið frá 10-18. Fram kemur í fundargerð bæjarráðs að breytingin...
Draga á verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda hjá þeim aðilum sem eru með starfssemi á Grundartangasvæðinu. Föngun og niðurdælingu á koldíoxíði og nýtingu glatvarma til hitaveitu er eitt af helstu markmiðum verkefnisins. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í gær og er markmiðið að margir aðilar vinni saman að því að fjölnýta efnisstrauma sem eru til staðar...
Á Íslandi eru tæplega 90 tónlistarskólar starfandi með 15 þúsund nemendur. Flest allir þessir skólar taka þátt í Netnótunni, nýjum tónlistarþáttum, sem unnir eru í samstarfi við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samtaka tónlistarskólastjóra. Þættirnir verða sýndir á N4 en þar gefst kostur á að skyggnast inn í starfsemi tónlistarskólanna, grasrót tónlistarsköpunar í...
„Ég vissi að mér hafði gengið vel í skólanum en ég bjóst ekki við að vera „Dúx“ og það kom mér skemmtilega á óvart og ég er enn að átta mig á þessu,“ segir Heba Bjarg Einarsdóttir við skagafrettir.is en hún náði bestum árangri á stúdentsprófi við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi við útskriftina vorið 2021....
Kraftlyftingafólk frá Kraftlyftingafélagi Akraness gerði það gott um helgina á Íslandsmeistaramóti í kraftlyftingum og klassískum kraftlyftingum sem fram fór í íþróttahúsinu við Varmá í Mosfellsbæ. Kristín Þórhallsdóttir var stigahæst í kvennaflokki í klassískum kraftlyftingum með 102,78 stig og Íslandsmeistari í -84 kg flokki kvenna. Hún lyfti þyngst 210 kg í hnébeygju, 110 kg í bekkpressu...
Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að heimila kaup á þremur húsum sem verða nýtt sem kennslustofur við Grundaskóla. Bæjarstjóra var falið að vinna að frekari úrvinnslu málsins. Miklar endurbætur eru framundan á húsnæði Grundaskóla eftir að rakaskemmdir komu í ljós s.l. vetur. Ástandið er verst í elsta hluta Grundaskóla, í C-álmu þar sem...
Skagamaðurinn Helgi Laxdal Aðalgeirsson skrifaði nýjan kafla í fimleikasöguna á Íslandsmótinu í hópfimleikum. Helgi, sem keppir fyrir Stjörnuna, framkvæmdi stökk sem hefur aldrei áður verið framkvæmt í þessari íþróttagrein. Samsetningin hjá Helga var heil skrúfa, kraftstökk og tvöfalt heljarstökk með beinum líkama og tveimur og hálfri skrúfu. Skagamaðurinn er því sá fyrsti sem nær að...
Heilsueflandi samfélag á Akranesi stóð fyrir hreyfingarátaki Skagamanna, „Skagamenn umhverfis jörðina“ sem hófst þann 3. maí s.l. og lauk þann 30. maí. Markmiðið var að safna saman kílómetrum í gegnum ýmsa hreyfingu og var markmiðið að ná rúmlega 40 þúsund kílómetrum. Niðurstaðan liggur fyrir en Skagamenn sem tóku þátt náðu að safna saman 13.226 km....
Drífa Harðardóttir, badmintonmaður ársins 2020 hjá ÍA, sýndi og sannaði um liðna helgi að hún er ein fremsta badmintonkona Íslands. Drífa fagnaði sigri í tvenndarleik á Íslandsmótinu í badminton þar sem hún lék með Kristófer Darra Finnssyni úr TBR. Þetta er annað árið í röð sem þau Drífa og Kristófer Darri fagna þessum titli. Mótherjar...