• Það styttist í bikarúrslitaleik ÍA og Víkings R. í Mjólkurbikarkeppni KSÍ karlaflokki. Leikurinn fer fram laugardaginn 16. október kl. 15.00 á Laugardalsvelli og gengur miðasalan vel. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Knattspyrnufélags ÍA í dag höfðu stuðningsmenn ÍA tryggt sér rúmlega 1.900 miða og stuðningsmenn Víkings hafa tryggt sér tæplega 2.300 miða. Samtals er því búði...

  • Stefán Teitur Þórðarson skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark í gær fyrir karlalandslið Íslands í 4-0 sigri liðsins gegn Liechtenstein. Þetta var í fyrsta sinn sem Stefán Teitur fékk tækifæri í byrjunarliði með A-landsliðinu. Ungir Skagamenn hafa verið á skotskónum fyrir Ísland í undanförnum verkefnum A-landsliðsins. Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark s.l. föstudag í 1-1...

  • Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í A-landsliði karla í knattspyrnu léku vel í kvöld í 4-0 sigri liðsins gegn Liechtenstein í undankeppni HM 2022 í knattspyrnu karla. Skagamaðurinn var í byrjunarliði Íslands í fyrsta sinn á ferlinum og gerði hann sér lítið fyrir og skoraði fyrsta mark leiksins með glæsilegum skalla á 18. mínútu...

  • Haukur Andri Haraldsson, leikmaður ÍA, var í dag valinn í landsliðshóp sem keppir fyrir Íslands hönd með U-17 ára landsliði Íslands í undankeppni EM 2022 í knattspyrnu. Um er að ræða fyrstu umferð en Ísland er í riðli með Ungverjalandi, Georgíu og Eistlandi. Leikið er dagana 22.-28. október í Ungverjalandi. Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari...

  • Tveir leikmenn úr röðum ÍA og einn fyrrum leikmaður félagsins eru í U-21 árs landsliðshóp Íslands í knattspyrnu karla fyrir leik liðsins gegn Portúgal í undankeppni EM 2022. Leikurinn fer fram þriðjudaginn 12. september á heimavelli Íslandsmeistaraliðs Víkings úr Reykjavík og hefst hann kl. 15.00. Þetta er þriðji leikur liðanna í undankeppninni. Ísland vann 2-1...

  • Ísak Bergmann Jóhannesson varð í gær yngsti markaskorari í sögu íslenska A-landsliðsins í knattspyrnu karla. Skagamaðurin skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark í gær þegar hann jafnaði metin gegn Armeníu á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2022. Ísak Bergmann kom inná í hálfleik og jafnaði eins og áður segir leikinn sem endaði 1-1. Ísak Bergmann bætti met sem...

  • Í dag voru tilboð opnuð í framkvæmdir við innanhússfrágang í nýjum leikskóla við Asparskóga 25, Akranesi. Verkið nær til innanhússfrágangs, smíði og uppsetningar innréttinga, ásamt lögnum og raflögnum sem tengjast innanhússfrágangi. Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar við verkefnið var rétt rúmlega 376 milljónir kr. Heildarstærð byggingar er 1565,3 m² og 5607 m³ Alls buðu fimm fyrirtæki í verkefnið...

  • Mikill áhugi er hjá stuðningsmönnum ÍA á úrslitaleik karlaliðs félagsins í Mjólkurbikarkeppni KSÍ 2021. ÍA og Víkingur Reykjavíkur mætast í úrslitaleiknum þann 16. október á Laugardalsvelli. Miðasala hefur gengið vel samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Knattspyrnufélags ÍA. Snemma í morgun höfðu stuðningsmenn ÍA keypt um 1700 miða og stuðingsmenn Víkings höfðu tryggt sér um 2000 miða....

  • Í dag óskaði Akraneskaupstaður eftir tilboðum í byggingarétt á 6 lóðum á Sementsreit á Akranesi með formlegum hættil. Undirbúningur að þessu verkefni hefur staðið í nokkur misseri. Um er að ræða byggingarétt á fjöleignarhúsum á 3 hæðum auk bílakjallara á 4 lóðum á uppbyggingar-reit D og á 2 lóðum á uppbyggingarreit C. Öllum lóðunum verður...

  • Viðamiklar breytingar verða á ásýnd Langasandssvæðisins á Akranesi ef tillögur frá Landmótun sf. ásamt Sei Stúdíó ná fram að ganga á næstu misserum. Þessir aðilar stóðu uppi sem sigurvegari í hugmyndasamkeppni sem Akraneskaupstaður stóð fyrir. Þrjú fyrirtæki fengu tækifæri að senda inn hugmyndir eftir forval sem fór fram í febrúar á þessu ári og samkeppnin...

Loading...