• Skólastarfi í grunnskólum bæjarins er á lokasprettinum fyrir sumarfrí. Nemendur í Brekkubæjarskóla skemmtu sér vel á hinum árlegu Fáránleikum. Á þessum viðburði keppa nemendur á elstu stigum skólans, 7.-10. bekk, í allskonar þrautum og leikjum. Eins og sjá má á myndum sem birtar voru á veraldarvefnum leyndi gleðin sér ekki hjá nemendum í „Brekkó“ á...

  • Í tilefni tíu ára afmælis Íslenska sjávarklasans veitti Sjávarklasinn nýverið viðurkenningar til einstaklinga sem hafa með einum eða öðrum hætti stuðlað að auknu samstarfi á ýmsum sviðum sem tengjast Íslenska sjávarklasanum. Gísla Gíslasyni fyrrum hafnarstjóra Faxaflóahafna var veitt sérstök viðurkenning frá stjórn samstarfsvettvangs samstarfsfyrirtækja Sjávarklasans fyrir forystu um uppbyggingu klasans við Reykjavíkurhöfn. Þetta kemur fram...

  • Á árinu 2020 veitti Íþróttabandalag Akraness um 14 milljónum í beina styrki til aðildarfélaga sinna. Alls eru 19 aðildarfélög undir hatti ÍA. Þetta kemur fram í árskýrslu ÍA. Uppistaða þessara styrkja er hagnaður af rekstri líkamsræktarsala í íþróttahúsunum við Jaðarsbakka og Vesturgötu. Árskýrsla ÍA er hér. Styrkirnir hafa farið hækkandi á undanförnum árum og bera...

  • Akraneskaupstaður bauð nýverið út verkið „Gatnaviðhald 2021“ og buðu tvö fyrirtæki í verkefnið. Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var 55,3 milljónir kr. og var lægra tilboðið tveimur milljónum kr. lægra en kostnaðaráætlunin. Skipulags – umhverfisráð samþykkti samhljóða með þremur atkvæðum að gengið verði til samninga við Skófluna hf. á Akranesi sem bauð 53,3 milljónir kr. í verkið. Vargur...

  • Grundaskóli á Akranesi fékk nýverið verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ sem fór fram í 19. sinn. Grundaskóli sigraði í flokki vinnustaða með 70-129 starfsmenn en það er Íþrótta – og Ólympíusamband Íslands sem stendur að þessu verkefni. Í ár voru þátttakendur alls 6.271 talsins og vinnustaðir voru alls 533 sem skráðu...

  • Aníta Ólafsdóttir, markvörður kvennaliðs ÍA, er í u-19 ára landsliðshóp Íslands sem mun æfa á Selfossi dagana 7.-10. júní. Alls eru 22 leikmenn í hópnum og koma þeir frá 12 mismunandi félögum. Skagamaðurinn Þórður Þórðarson valdi hópinn en þessar æfingar verða síðustu formlegu æfingar liðsins undir hans stjórn en Þórður hefur ákveðið að hætta sem...

  • Skagamaðurinn Þórður Þórðarson hefur ákveðið að hætta sem þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KSÍ. Þórður mun stýra liðinu út júnímánuð og hefur hann gert samning um starfslok sín hjá KSÍ. Þórður hefur þjálfað U19 ára landsliðs kvenna frá árinu 2014 og hefur liðið leikið 46 leiki...

  • Tveir leikmenn úr ÍA voru valdir í æfingahóp U-16 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu sem mun æfa á Selfossi dagana 14.-17. júní. Alls voru 26 leikmenn valdir og koma þeir frá 14 mismunandi félagsliðum. Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir Norðurlandamótið sem fer fram í Noregi í ágúst. Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari liðsins....

  • Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 7,4% frá yfirstandandi ári og verður 10.340 milljarðar króna, samkvæmt fasteignamati Þjóðskrár fyrir árið 2022. Þetta er umtalsvert meiri hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 2,1% á landinu öllu. Nánar á vef Þjóðskrár. Á Akranesi hækkar fasteignamatið um 1,9% í sérbýli og 1,8%...

  • Ársþing Íþróttabandalags Akraness fór fram þann 25. maí s.l en alls mættu 26 þingmenn frá 13 aðildarfélögum en alls eru 19 félög undir hatti ÍA. Þetta var í 77. skipti sem ársþing ÍA fer fram. Marella Steinsdóttir var endurkjörinn sem formaður ÍA en Hörður Helgason varaformaður gaf ekki kost á sér í embættið. Hrönn Ríkharðsdóttir...

Loading...