Það var frábær stemmning í Tónbergi miðvikudaginn 12. maí þegar fram fóru vortónleikar Skólakórs Grundaskóla og söngkonunnar Sölku Sólar. Tónleikarnir hafa verið á dagskrá frá því vorið 2020 en ítrekað þurft að fresta þeim vegna Covid ástandsins. Það var því langþráð stund hjá kórfélögum að fá loksins að stíga á svið og syngja fyrir fjölskyldur...
Nú fer að líða að lokum getraunakeppni Tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA sem Einar Brandsson og félagar stýrt með prýði í vetur og vor. Úrslitakeppnin stendur nú sem hæst og eru tvær vikur eftir af tímabilinu. Í úrslitakeppninni eigast við þeir sem náðu bestum árangri á tímabilinu. Örn Gunnarsson og Benedikt Valtýsson voru neðstir og jafnir síðustu...
Fasteignin sem stendur við Suðurgötu 108 á Akranesi verður rifinn og lóðinni verður úthlutað með þeim skilyrðum sem fram koma í skipulagi um Sementsreit. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs Akraness. Mannvirkið við Suðurgötu 108 hefur verið mikið til umfjöllunar á undanförnum misserum hjá nefndum og ráðum kaupstaðarins. Húsið hefur verið í söluferli með þeim...
Kvennalið ÍA landaði frábærum 2-1 sigri í kvöld í 2. umferð Lengjudeildarinnar í knattspyrnu gegn liði Augnabliks á Norðurálsvellinum á Akranesi. Sigurinn var afar sætur þar sem að sigurmarkið kom á allra síðustu andartökum leiksins gegn sterku liði Augnabliks sem er systurlið Breiðabliks. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir kom liði Augnabliks yfir með góðu langskoti strax á...
Leikmenn ÍA í liði 10. flokks karla í körfuknattleik eru komnir alla leið í undanúrslit á Íslandsmótinu í körfuknattleik. Hið efnilega lið Skagamanna lagði Grindavík að velli í 16-liða úrslitum og í 8-liða úrslitum var ÍR úr Reykjavík mótherji ÍA. 10. flokkur er skipaður leikmönnum sem eru að lokaárinu í grunnskóla. Skagamenn sýndu styrk sinn...
ÁRÍÐANDI TILKYNNING FRÁ SLÖKKVILIÐI AKRANESS OG HVALFJARÐARSVEITAR Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vestfjörðum, Vesturlandi, Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi hefur lýst yfir hættustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum. Meðferð opins elds hefur jafnframt verið bönnuð á svæðinu frá og með deginum í dag (11.05.2021) Slökkviliðið hvetur almenning og sumarhúsaeigendur til að huga að...
Morgunblaðið leitar að fólki sem vill ganga til liðs við dreifingardeild blaðsins á Akranesi. Blaðburður er frábær líkamsrækt og fátt er betra en að byrja daginn á hressandi gönguferð á launum. Blaðberar bera út Morgunblaðið og ýmis önnur blöð. Blaðberaklúbburinn sem Morgunblaðið er með á sinni könnu gefur blaðberum afslátt í fjölmörgum verslunum gegn framvísun...
Gríðarlegur áhugi var á sumarstörfum hjá Norðuráli. Fyrirtækið auglýsti laus störf í ker – og steypuskála samhliða sumarafleysingum. Samtals sóttu 825 einstaklingar um starf hjá Norðuráli, þar af 666 umsóknir um sumarstörf sem er áhugaverð tala. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðuráli. Alls voru 109 starfsmenn ráðnir í sumarstörf og til viðbótar koma um...
„Ég hef verið með skýr markmið frá því ég byrjaði í fótbolta og þrátt fyrir meiðsli og svo veikindi komi upp hjá mér þá breytir það ekki markmiðum mínum. Ég er ennþá staðráðinn í að ná þeim og ég verð enn grimmari að ná þeim eftir slíkar fréttir. Á næstu mánuðum verður það númer eitt...
Elkem og Knattspyrnufélag Akraness hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára. Elkem mun beina kastljósinu að kvennastarfi félagsins og í samninginum kemur fram að Elkem mun bjóða öllum á heimaleiki kvennaliðs ÍA í sumar í Lengjudeildinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Knattspyrnufélagi Akraness. Kvennalið ÍA leikur í næst efstu deild á Íslandsmótinu, Lengjudeildinni,...