Einn leikmaður úr röðum ÍA er í U15 ára landsliðshóp Íslands sem mætir Finnlandi í tveimur leikjum í september. Skagamaðurinn Lúðvík Gunnarsson er þjálfari liðsins en leikirnir fara fram í borginni Mikkeli í Finnlandi 21. og 23. september. Sveinn Svavar Hallgrímsson, ÍA, er í landsliðshópnum en alls eru 20 leikmenn í hópnum. Theodór Ingi Óskarsson...
„Ég ákvað að bjóða upp á rétt sem heitir Vetrarsúpa mér finnst hún passa svo vel að haustinu þegar allt er fullt af nýju íslensku grænmeti. Þetta er réttur sem að fer bara í ofninn og er tekinn út 3. klst seinna. Börnum og fullorðnum hjá mér líkar vel við þessa súpu sem er mjög...
Kvennalið ÍA er fallið úr næst efstu deild á Íslandsmótinu í knattspyrnu 2021. ÍA endaði í 10. og neðsta sæti deildarinnar eftir æsispennandi lokakafla þar sem að fimm lið börðust um að halda sæti sínu í deildinni. Til marks um hversu jöfn deildin var þá hefði ÍA endað í 6. sæti ef liðið hefði skorað...
Körfuknattleikslið ÍA í meistaraflokki karla fór óvænt upp um deild um s.l. helgi þegar ljóst var að Reynir úr Sandgerði ætlar ekki að senda lið til keppni í næst efstu deild. Hið unga og efnilega lið ÍA endaði í 2. sæti í 2. deild karla á síðustu leiktíð og fékk ÍA boð um að þiggja...
Í nýjustu upplýsingum um mannfjölda á Íslandi sem birtur er á vef Hagstofu Íslands kemur fram að íbúar á Akranesi eru nú alls 7.770. Á þessu ári hefur íbúum fjölgað um 80 alls. Í upphafi ársins 2021 voru íbúar á Akranesi alls 7.690 og fjölgaði íbúum um 289 á árinu 2020. Ef þessi þróun heldur...
„Þá er hugarfóstrið okkar Hinriks komið í heiminn. Nýtt lag, nýtt ljóð og nýtt ljós. Ég get seint fullþakkað þeim sem hvöttu mig áfram við þessa vinnslu. Og þau Ásta Marý, Baldur og Heiðar Mar lyfta þessu öllu saman með fagmennsku sinni. Það sannast hér sem áður að þegar orða er vant, þá talar tónlistin,“...
Næstkomandi laugardag þann 11. september, milli kl. 14:00 – 17:00, verður kosningaskrifstofa Viðreisnar í Borgarnesi opnuð, en hún er staðsett við Borgarbraut 61. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Frambjóðendur kjördæmisins verða á staðnum og til í spjall en einnig mun formaður Viðreisnar Þorgerður Katrín og varaformaður Daði Már mæta á svæðið. Skrifstofan er...
Í gær fór fram kynningarfundur þar sem að kynntar voru endurbætur á húsnæði Grundaskóla og framtíðar uppbyggingu. Á næstu misserum mun ásýnd Grundaskóla breytast gríðarlega mikið eins og sjá má á þessum myndum hér fyrir neðan. Fyrr á þessu ári kom það í ljós að ráðast þyrfti í viðamiklar endurbætur á húsnæði Grundaskóla vegna rakaskemmda....
Á fundi bæjarráðs Akraness fyrr á þessu ári var tekið fyrir erindi frá Hinriki Haraldssyni vegna forkaupsréttar á húsinu við Vesturgötu 57. Bæjarráð hafnaði erindinu – þar sem að ráðið sá ekki að húsnæðið gæti nýst til lögbundinnar þjónustu sveitarfélagsins. Húsið sem um ræðir við Vesturgötu 57 er tæplega 100 ára gamalt. Það var byggt...
Alls greindust 26 einstaklingar með Covid-19 smit á landinu í gær samkvæmt uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Alls voru 16 einstaklingar í sóttkví við greiningu, en 10 voru utan sóttkvíar. Á Vesturlandi hefur dregið töluvert úr Covid-19 smitum frá því í síðustu viku. Alls eru 13 einstaklingar með Covid-19 smit og 19 eru í sóttkví....