Húseignin við Suðurgötu 108 var til umfjöllunar á síðasta fundi bæjarráðs. Fyrr á þessu ári var kauptilboð í eignina frá Fasteignafélaginu Orka ehf. samþykkt en á síðasta bæjarráðsfundi var samþykkt ósk frá kaupandanum að fá að falla frá kaupsamningi um eignina. Nokkur tilboð bárust á sínum tíma í eignina en húsið er í Akraneskaupstaðar. Skiptar...
Knattspyrnufélag Akraness hefur óskað eftir viðræðum við Akraneskaupstað um að félagið taki að sér rekstur á íþróttamannvirkjum við Jaðarsbakka. Þreifingar þess efnis hafa átt sér stað á milli forsvarsmanna félagsins og embættismanna bæjarins. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs þar sem að erindi KFÍA var tekið þar sem að félagið óskar eftir formlegum viðræðum um...
Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að veita heimild til þess að auglýsa eftir allt að 50 störfum vegna atvinnuátaks námsmanna sumarið 2021. Endanleg afgreiðsla málsins verður tekin á fundi bæjarstjórnar í lok maí mánaðar. Á síðasta fundi bæjarráðs fór fram kynning á minnisblaði Vinnumálastofnunar um sumarstörf námsmanna sumarið 2021. Mannauðsstjóri Akraneskaupstaðar kynnti þar væntanlega þátttöku Akraneskaupstaðar...
Forsvarsmenn Golfklúbbsins Leynis funduðu nýverið með skipulags – og umhverfisráði Akraneskaupstaðar þar sem að hugmyndir klúbbsins um hótelbyggingu á starfssvæði Leynis voru ræddar. Þetta er í annað sinn sem Leynir fundar með ráðinu um þetta mál. Eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is hefur Snorri Hjaltason, byggingaverktaki og fjárfestir, sem á m.a. B59 hótelið...
Skagakonan Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er nú í fámennum hópi íslenskra knattspyrnukvenna sem hafa leikið 300 deildarleiki. Frá þessu er greint í frétt sem Víðir Sigurðsson skrifaði á mbl.is. Nánar hér. Hallbera lék sinn 300. leik þegar lið hennar, AIK, mætti Djurgården í grannaslag Stokkhólmsliðana í sænsku úrvalsdeildinni. Hallbera og liðsfélagar hennar fögnuðu...
Alls greindust fjögur Covid-19 smit í gær og voru allir einstaklingarnir í sóttkví. Um 800 einstaklingar voru skimaðir í gær en ekkert smit greindist á landamærunum í 1100 skimunum. Alls eru 174 í einangrun vegna Covid-19 smits – og tæplega 500 eru í sóttkví. Núverandi sóttvarnareglugerð rennur út miðvikudaginn 5. maí og verður ný reglugerð...
Karlalið ÍA í körfuknattleik á enn möguleika á að komast í næst efstu deild Íslandsmótsins. Um s.l. helgi sigraði ÍA lið Stálúlfsins 96-89 í hörkuleik sem fram fór í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Með sigrinum tryggði ÍA sér sæti í undanúrslitum 2. deildar 2021,. ÍA mætir liði Ármanns í undanúrslitum og í hinni viðureigninni mætast Reynir...
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, skrifaði að venju ítarlega ræðu í tilefni baráttudags Verkalýðsins þann 1. maí s.l. Ekki var hægt að vera með hefðbundna dagskrá á þessum degi vegna sóttvarnatakmarkana – og er þetta annað árið í röð sem 1. maí hátíðarhöldunum er frestað vegna Covid-19. Í ræðu sinni kemur formaðurinn inn á þá...
Klifurfélag ÍA átti góðan dag á öðru Íslandsmeistarmóti ársins sem fram fór í Klifurhúsinu í Reykjavík um liðna helgi. Níu klifrarar frá Akranesi tóku þátt í C- og B-flokki og náðu keppendur úr ÍA að komas þrívegis á verðlaunapall. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klifurfélagi Akraness. Í B-flokki kvenna landaði Sylvía Þórðardóttir langþráðum sigri...
Leikmenn 10. flokks ÍA í körfuknattleik fögnuðu góðum sigri í gær gegn Grindavík í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Um var að ræða úrslitaleik um hvort liðið kæmist í 8-liða úrslit í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn í aldursflokkum sem er að ljúka grunnskólanámi í vor. ÍA var mun sterkari aðilinn í leiknum sem endaði með 102-52 sigri Skagamanna....