• Alls greindust fjögur Covid-19 smit í gær og voru allir einstaklingarnir í sóttkví. Um 800 einstaklingar voru skimaðir í gær en ekkert smit greindist á landamærunum í 1100 skimunum. Alls eru 174 í einangrun vegna Covid-19 smits – og tæplega 500 eru í sóttkví. Núverandi sóttvarnareglugerð rennur út miðvikudaginn 5. maí og verður ný reglugerð...

  • Karlalið ÍA í körfuknattleik á enn möguleika á að komast í næst efstu deild Íslandsmótsins. Um s.l. helgi sigraði ÍA lið Stálúlfsins 96-89 í hörkuleik sem fram fór í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Með sigrinum tryggði ÍA sér sæti í undanúrslitum 2. deildar 2021,. ÍA mætir liði Ármanns í undanúrslitum og í hinni viðureigninni mætast Reynir...

  • Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, skrifaði að venju ítarlega ræðu í tilefni baráttudags Verkalýðsins þann 1. maí s.l. Ekki var hægt að vera með hefðbundna dagskrá á þessum degi vegna sóttvarnatakmarkana – og er þetta annað árið í röð sem 1. maí hátíðarhöldunum er frestað vegna Covid-19. Í ræðu sinni kemur formaðurinn inn á þá...

  • Klifurfélag ÍA átti góðan dag á öðru Íslandsmeistarmóti ársins sem fram fór í Klifurhúsinu í Reykjavík um liðna helgi. Níu klifrarar frá Akranesi tóku þátt í C- og B-flokki og náðu keppendur úr ÍA að komas þrívegis á verðlaunapall. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klifurfélagi Akraness. Í B-flokki kvenna landaði Sylvía Þórðardóttir langþráðum sigri...

  • Leikmenn 10. flokks ÍA í körfuknattleik fögnuðu góðum sigri í gær gegn Grindavík í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Um var að ræða úrslitaleik um hvort liðið kæmist í 8-liða úrslit í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn í aldursflokkum sem er að ljúka grunnskólanámi í vor. ÍA var mun sterkari aðilinn í leiknum sem endaði með 102-52 sigri Skagamanna....

  • Um 180 einstaklingar tóku þátt í því að stökkva í Akraneshöfnina í dag í áheitaverkefninu „Stokkið fyrir Svenna“. Um er að ræða fjáröflunarverkefni þar sem að safna á fyrir sérsmíðuðu reiðhjóli fyrir Skagamanninn Sveinbjörn Reyr Haltason. Árgangur 1971 stóð að skipulagningu viðburðarins en Svenni er fæddur á því ári. Sveinbjörn Reyr slasaðist fyrir rúmlega ári...

  • Á undanförnum misserum hefur Fjölbrautaskóli Vesturlands boðið nemendum upp á áhugaverðan valkost í smiðju sem er með tæki og tól sem nemendur geta búið til nánast hvað sem er. Um er að ræða smiðju sem kallast Fab Lab (Fabrication Laboratory). Áfanginn kallast FABL2GR05 og þessu námi gefst nemendum tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda...

  • Í dag fer fram áhugaverður körfuboltaleikur í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Þar tekur hið efnilega lið drengja sem eru á lokaári sínu í grunnskóla, 10. bekk, á móti Grindvíkingum. Um er að ræða leik í 16-liða úrslitakeppni Íslandsmótsins. Keppnishaldið hefur farið úr skorðum í vetur vegna Covid-19 takmarkana og verður því farið beint í 16-liða úrslit...

  • Kvennalið ÍA í knattspyrnu lék gegn liði Augnabliks í Mjólkurbikarkeppni KSÍ í gær. Bæði liðin leika i næst efstu deild en Augnablik er samstarfsklúbbur Breiðabliks. Varnarmaðurinn Anna Þóra Hannesdóttir kom ÍA yfir á 20. mínútu með góðu skallamarki eftir fast leikatriði. Augnablik jafnaði metin tíu mínútum síðar og staðan var jöfn í hálfleik. Þegar fimmtán...

  • Rekstur Akraneskaupstaðar gekk betur á árinu 2020 en áætlanir gerðu ráð fyrir. Í tilkynningu frá Akraneskaupstað kemur fram að árið 2020 hafi verið varnarsigur, þar sem að viðspyrnuaðgerðir hafi skilað árangri og uppbygging samfélagsins sé sjáanleg í ársreikningi 2020. Alls var 133 milljóna kr. rekstrarafgangur og skuldir lækkuðu um tæplega eina milljón á dag eða...

Loading...