Það styttist í að keppnistímabilið á Íslandsmótinu í knattspyrnu hefjist. Fyrstu leikir ÍA á Norðurálsvellinum fara fram í byrjun maí en karlalið ÍA hefur leik á Íslandsmótinu á útivelli gegn Íslandsmeistaraliði Vals á föstudagskvöld á útivelli.Í gær var vaskur hópur leikmanna, þjálfara og sjálfboðaliða að setja Norðurálsvöll í keppnisbúning fyrir sumarið. Veðrið lék við þá...
Alls bárust þrjú tilboð í verkið „Brekkubæjarskóli – Grundaskóli endurgerð lóða“ sem Akraneskaupstaður óskaði eftir tilboðum í. Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var rétt rúmlega 27 milljónir kr. Tilboðin voru opnuð á fundi skipulags- og umhverfisráð sem leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.Eftirfarandi tilboð bárust: Sumargarðar ehf. kr. 42.843.500Lóðaþjónustan ehf.: kr. 26.732.300Þróttur ehf.: kr. 51.726.882Kostnaðaráætlun:...
Á fundi skipulags – og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar voru tilboð í tvö verkefni opnuð. Það fyrra ber nafnið „Gangstéttir 2021“ þar sem að tvö fyrirtæki buðu í verkefnið – en kostnaðaráætlun var rétt um 22,4 milljónir kr. Þrjú fyrirtæki buðu í verkefnið „Skógarhverfi 3A – gatnagerð og lagnir veitukerfa“ þar sem að kostnaðaráætlun var rétt um...
Það eru margir sem ætla að að taka þátt í áheitasöfnuninni „Stokkið fyrir Svenna“ sem fer fram 1. maí. Einstaklingar, félagssamtök og fyrirtæki hafa sýnt stuðning sinn með ýmsum hætti og þar á meðal veitingahúsið Barion í Mosfellsbæ. Barion og Knattspyrnufélag ÍA hafa tekið höndum saman og bjóða upp á „Þristamús“ fyrir Svenna á aðeins...
Bæjarstjórn Akraness skorar á heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra að bregðast nú þegar við þeirri stöðu sem uppi er í málefnum hjúkrunar- og dvalarheimila sem rekin eru á daggjöldum. Þetta kemur fram í ályktun bæjarstjórnar sem samþykkt var í gær. Á dögunum skilaði verkefnastjórn skýrslu með greiningu á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila sem rekin eru á daggjaldagreiðslum....
Heilsueflandi samfélag á Akranesi stendur fyrir hreyfingarátaki Skagamanna, „Skagamenn umhverfis jörðina“. Brottför er þann 3. maí næstkomandi og heimkoma væntanleg 30. maí. Teknar hafa verið saman gagnlegar upplýsingar fyrir þátttakendur sem eru hér fyrir neðan. Hversu langt er ferðalagið?Já það er ekki nema 40.075,017 km.Hvernig ferðast ég?Þú reimar á þig góðan skóbúnað og klæðir þig...
Árgangur 1971 mun standa fyrir áhugaverðum viðburði þann 1. maí 2021 þar sem að markmiðið er að safna fé til að kaupa sérsmíðað reiðhjól fyrir Sveinbjörn Reyr Hjaltason sem er fæddur árið 1971. Sveinbjörn slasaðist alvarlega fyrir einu ári eða 23. apríl 2020 og er hann lamaður fyrir neðan brjóst. Sveinbjörn Reyr og Pétur Magnússon...
Feðgarnir Baldur Ketilsson og Ágúst Helgi Baldursson eru í þeirri aðstöðu að geta sinnt störfum sínum í mögnuðu umhverfi í húsinu Leynir við Hvalfjarðarströnd. Baldur og fjölskylda hans bjuggu á Akranesi áður en þau fluttu í sveitasæluna í Hvalfirði. Heiðar Mar Björnsson og Hlédís Sveinsdóttir settu saman þetta áhugverða viðtal við þá feðga í þættinum...
Alls greindust 16 einstaklingar með Covid-19 smit í gær og voru þrír þeirra ekki í sóttkví. Frá þessu er greint á upplýsingavefnum covid.is. Á landamærunum greindust tveir einstaklingar með Covid-19 smit. Alls eru 177 einstaklingar á landinu í einangrun vegna Covid-19 smits og 443 eru í sóttkví. Frá því að Covid-19 faraldurinn hófst í lok...
Keppendur frá Sundfélagi Akraness stóðu sig vel á Íslandsmótinu í 50 metra laug sem fram fór í Laugardalnum í Reykjavík um liðna helgi. Enrique Snær Llorens Sigurðsson, sem er fæddur árið 2002, náði frábærum árangri og vann til tveggja silfurverðlauna. Alls settu keppendur frá ÍA fimm Akranesmet en alls tóku 175 keppendur þátt frá 13...