• Á landinu öllu greindust 59 ný Covid-19 smit í gær og voru tæplega 70% þeirra í sóttkví. Tvö ný Covid-19 smit voru greind á Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. . Alls eru 20 í einangrun í landshlutanum vegna Covid-19 og 72 eru í sóttkví. Á Akranesi eru 15 í einangrun vegna Covid-19 en...

  • Skiptar skoðanir eru í bæjarráði Akraness um hvernig staðið verði að uppbyggingu á framtíðarhúsnæði Fjöliðjunnar við Dalbraut. Eins og áður hefur komið fram skemmdist húsið mikið þegar eldur kom upp í mannvirkinu í maí 2019. Starfshópur sem skipaður var um framtíðarhúsnæði Fjöliðjunnar kynnti tillögur sínar á síðasta fundi bæjarráðs. Meirihluti bæjarráðs samþykkti að farið verði...

  • Heilsueflandi samfélag Akranes býður upp á tvö rafræn fræðslukvöld um svefn barna og ungmenna, 29. október og 2. nóvember og hefst fræðslan bæði kvöldin kl. 20:00.  Skráning fer fram hér. Á fyrra fræðslukvöldinu 29. október verður áhersla á svefn barna frá fæðingu til 6 ára aldurs. Elísa Guðnadóttir sálfræðingur Sálstofunnar (www.salstofan.is) leitast við að svara algengum spurningum foreldra...

  • Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson stýrir kvennalandsliði Íslands í dag í afar mikilvægum leik gegn Svíum í undankeppni EM. Leikurinn fer fram í borginni Gautaborg í Svíþjóð og hefst leikurinn kl. 17:30. Bein útsending verður á RÚV frá leiknum. Jón Þór segir í samtali við RÚV að leikurinn verði afar erfiður en liðin eru í harðri...

  • Alls greindust 50 einstaklingar með Covid-19 á Íslandi í gær og þar af voru 22 í sóttkví en 28 utan sóttkvíar. Þetta kemur fram á covid.is. Á Vesturlandi er staðan óbreytt en 18 einstaklingar eru í einangrun vegna Covid-19 en einstaklingum í sóttkví fer fækkandi. Alls eru 18 í einangrun á Vesturlandi vegna Covid-19 og...

  • Minningarsjóður Lovísu Hrundar afhenti nýverið myndarlegan styrk til Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna að upphæð 2.000.000 kr. vegna endurnýjunar á Veltibílnum. Þetta kemur fram í tilkynningu. Minningarsjóður Lovísu Hrundar var stofnaður í minningu Lovísu Hrundar Svavarsdóttur sem fæddist á Akranesi þann 5. október árið 1995. Lovísa Hrund lést þann 6. apríl 2013 í hörðum árekstri á...

  • Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Lilleström í gær í norsku 1. deildinni. Markið var stórglæsilegt eins og sjá má í þessu myndbandi hér fyrir neðan. Lilleström sigraði Sandnes Ulf 4-2 á heimavelli og heldur enn í vonina um að komast upp í efstu deild. Tryggvi Hrafn skoraði fyrsta mark leiksins. Lilleström...

  • Alls greindust 76 einstaklingar með Covid-19 á Íslandi í gær og voru 60 þeirra í sóttkví. Á Vesturlandi greindust 5 ný Covid-19 smit samkvæmt tölfræði á covid.is. Alls eru 23 í einangrun á Vesturlandi vegna Covid-19 en á föstudag voru 16 í einangrun. Alls eru 64 í sóttkví á Vesturlandi en það voru 69 í...

  • Getraunastarf Knattspyrnufélags ÍA hefur verið fastur punktur í tilverunni hjá fjölmörgum Skagamönnum. Tippklúbbur KFÍA hefur brugðist við breyttum aðstæðum vegna Covid-19 lagt áherslu á að nýta tæknina í getraunastarfinu og nýverið var sett af stað getraunaáskorun sem mun verða vikulegur viðburður á keppnistímabilinu. Um liðna helgi hófst getraunakeppnin með viðureign Sigmundar Ámundasonar og Kristleifs Skarphéðins...

  • Ekkert nýtt Covid-19 smit greindist á Vesturlandi í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi. Á landinu öllu greindust 30 einstaklingar með Covid-19 og voru 18 þeirra í sóttkví. Á Akranesi eru 16 einstaklingar í einangrun vegna Covid-19 en sama staða var á fimmtudaginn á Akranesi. Í sóttkví eru alls 48 einstaklingar...

Loading...