Keppendur frá ÍA stóðu sig vel á Unglingameistaramóti TBR sem fram fór um s.l. helgi. Mótið var hluti af alþjóðlega íþróttamótinu, Reykjavík International 2021 – RIG. Alls tóku 12 keppendur þátt frá Badmintonfélagi Akraness – ÍA. Í tilkynningu frá félaginu segir að keppendurnir hafi staðið sig vel, margir leikir unnust, og margar viðureignir voru mjög...
Nemendur við Grundaskóla á Akranesi fengu á dögunum afhenta viðurkenningu vegna áskorunar sem skólinn tók þátt í í Hreyfiviku UMFÍ og Kristals. Um var að ræða brenniboltaáskorun sem Grundaskóli tók þátt í vorið 2020. Margra mánaða töf varð á verðlaunaafhendingunni – af ýmsum ástæðum, svo sem Covid-19 og þeim takmörkunum sem fylgdu í kjölfarið. Auður...
Alls tóku ellefu keppendur frá Sundfélagi Akraness – ÍA, á alþjóðlegu móti, Reykjavík International Games – RIG 2021, en mótið fór fram um s.l. helgi í Laugardalslaug. Eins og áður segir voru alls ellefu keppendur frá ÍA og sýndi keppnishópurinn að þau eru búin að leggja mikið á sig á heimaæfingum á meðan æfingabann stóð...
Nýverið sömdu tveir leikmenn við ÍA á ný og framlengdu samninga sína við félagið. Kvennalið ÍA leikur í næst efstu deild á árinu 2021 – Lengjudeildinni, og er spennandi tímabil framundan. Sandra Ósk Alfreðsdóttir samdi út leiktíðina 2021 og Róberta Lilja Ísólfsdóttir gerði samning til tveggja ára eða til loka tímabilsins 2022. Róberta Lilja er...
Eiríkur Jónsson skipstjóri á Akurey AK og áhöfn hans fengu mikinn afla af þorski á dögunum – en frá þessu er greint á vef Brims. Ísfisktogarinn er kom til hafnar um miðja síðustu viku með um 180 tonna afla. Eiríkur segir í viðtali á heimasíðu Brims að góð veiði hafi verið víða en Akurey fékk...
Skagamennirnir Þórður Þórðarson og Lúðvík Gunnarsson hafa fengið ný verkefni sem landsliðsþjálfarar hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Töluverðar breytingar hafa orðið á þjálfaramálum hjá KSÍ á undanförnum vikum. Ráðnir hafa verið nýir landsliðsþjálfarar fyrir A karla og kvenna, U21 karla, U19 karla og U15 kvenna. Þórður Þórðarson verður aðstoðarþjálfari U-21 árs landsliðs karla ásamt Jörundi Áka Sveinssyni....
Eitt Covid-19 smit hefur greinst á Íslandi síðustu tvo daga. Og þau örfáu smit sem hafa greinst undanfarnar vikur hafa verið einstaklingar í sóttkví – með einni undantekningu. Ísland er nú eina landið í Evrópu sem er „grænt“ í litakóða sóttvarnarstofnunar Evrópu. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, skilaði í dag minnisblaði til Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, um næstu...
Karlalið ÍA í knattspyrnu leikur í kvöld til úrslita gegn liði Breiðabliks í Fótbolti.net mótinu. Þessi lið mættust einnig í fyrra í úrslitaleik þessa sama móts – þar sem að ÍA sigraði í eftirminnilegum leik -5:2. Breiðablik hefur verið sigursælt á þessu móti en liðið sigraði síðast árið 2019 en það var jafnframt í fjórða...
Það er nóg um að vera hjá sterkum hópi sjálfboðaliða sem standa að beinum útsendingum á ÍATV. Í dag er boðið upp á tvær beinar útsendingar frá tveimur íþróttagreinum. Sú fyrri verður kl. 17:30 þegar sýnt verður frá leik í 9. flokki karla í körfuknattleik – en þar mætir ÍA liði Njarðvíkur. Þetta verður í...
Viðbótarlaunakostnaður Akraneskaupstaðar vegna kjarasamninga sem gerðir voru á árinu 2020 námu rúmlega 336 milljónum kr. Þetta kemur fram í nýjustu fundargerð bæjarráðs Akraness. Á fundinum var viðauki við fjárhagsáætlun vegna launa lagður fram til samþykktar. Breytingin á fjárhagsáætlun var gerð vegna samþykktra kjarasamninga við tónlistarskólakennara og félag íslenskra hljómlistarmanna – samtals að fjárhæð kr. 11.436.073....