Alls greindust 86 Covid 19 smit á Íslandi í gær – samkvæmt tölum sem uppfærðar voru kl. 11 í dag á vefnum covid.is. Af þeim sem greindust með Covid-19 í gær voru 72% í sóttkví. Alls eru 1062 einstaklingar í einangrun á Íslandi en voru 1048 í gær. Á spítala eru 58 sjúklingar vegna Covidd-19...
Sindri Leví Ingason og Amelija Prizginaite hafa á undanförnum misserum unnið að skemmtilegri hugmynd sem nú er að að verða að veruleika. Sindri og Amelija eru bæði frá Akranesi en mikil hugmynda – og undirbúningsvinna liggur að baki í fjölskylduverkefninu sem er spil sem heitir Reckless Sloths. „Þetta spil hefur verið í vinnslu frá því...
Ísak Bergmann Jóhannesson hefur vakið mikla athygli á undanförnum mánuðum sem leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Norrköping. Knattspyrnumaðurinn ungi frá Akranesi er aðeins 17 ára gamall en hann hefur nú þegar stimplað sig inn í byrjunarlið Norrköping í sterkri deild. Og þar að auki hefur hann verið orðaður við mörg stórlið Evrópu. Ísak Bergmann er með báða...
Á landinu öllu greindust 59 ný Covid-19 smit í gær og voru tæplega 70% þeirra í sóttkví. Tvö ný Covid-19 smit voru greind á Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. . Alls eru 20 í einangrun í landshlutanum vegna Covid-19 og 72 eru í sóttkví. Á Akranesi eru 15 í einangrun vegna Covid-19 en...
Skiptar skoðanir eru í bæjarráði Akraness um hvernig staðið verði að uppbyggingu á framtíðarhúsnæði Fjöliðjunnar við Dalbraut. Eins og áður hefur komið fram skemmdist húsið mikið þegar eldur kom upp í mannvirkinu í maí 2019. Starfshópur sem skipaður var um framtíðarhúsnæði Fjöliðjunnar kynnti tillögur sínar á síðasta fundi bæjarráðs. Meirihluti bæjarráðs samþykkti að farið verði...
Heilsueflandi samfélag Akranes býður upp á tvö rafræn fræðslukvöld um svefn barna og ungmenna, 29. október og 2. nóvember og hefst fræðslan bæði kvöldin kl. 20:00. Skráning fer fram hér. Á fyrra fræðslukvöldinu 29. október verður áhersla á svefn barna frá fæðingu til 6 ára aldurs. Elísa Guðnadóttir sálfræðingur Sálstofunnar (www.salstofan.is) leitast við að svara algengum spurningum foreldra...
Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson stýrir kvennalandsliði Íslands í dag í afar mikilvægum leik gegn Svíum í undankeppni EM. Leikurinn fer fram í borginni Gautaborg í Svíþjóð og hefst leikurinn kl. 17:30. Bein útsending verður á RÚV frá leiknum. Jón Þór segir í samtali við RÚV að leikurinn verði afar erfiður en liðin eru í harðri...
Alls greindust 50 einstaklingar með Covid-19 á Íslandi í gær og þar af voru 22 í sóttkví en 28 utan sóttkvíar. Þetta kemur fram á covid.is. Á Vesturlandi er staðan óbreytt en 18 einstaklingar eru í einangrun vegna Covid-19 en einstaklingum í sóttkví fer fækkandi. Alls eru 18 í einangrun á Vesturlandi vegna Covid-19 og...
Minningarsjóður Lovísu Hrundar afhenti nýverið myndarlegan styrk til Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna að upphæð 2.000.000 kr. vegna endurnýjunar á Veltibílnum. Þetta kemur fram í tilkynningu. Minningarsjóður Lovísu Hrundar var stofnaður í minningu Lovísu Hrundar Svavarsdóttur sem fæddist á Akranesi þann 5. október árið 1995. Lovísa Hrund lést þann 6. apríl 2013 í hörðum árekstri á...
Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Lilleström í gær í norsku 1. deildinni. Markið var stórglæsilegt eins og sjá má í þessu myndbandi hér fyrir neðan. Lilleström sigraði Sandnes Ulf 4-2 á heimavelli og heldur enn í vonina um að komast upp í efstu deild. Tryggvi Hrafn skoraði fyrsta mark leiksins. Lilleström...