Íþróttafélögin sem eru undir hatti ÍA hafa á undanförnum mánuðum gert ýmislegt til þess að halda iðkendum við efnið i Covid-19 faraldrinum. Það eru spennandi tímar framundan hjá Keilufélagi Akraness – en aðstaða félagsins við Íþróttahúsið við Vesturgötu hefur gjörbreyst með tilkomu nýrra brauta. Aðeins er hægt að æfa keilu á tveimur stöðum á landinu,...
Íþróttafélögin sem eru undir hatti ÍA hafa á undanförnum mánuðum gert ýmislegt til þess að halda iðkendum við efnið i Covid-19 faraldrinum. Karatefélag Akraness hefur m.a nýtt tæknina til þess að koma leiðbeiningum til iðkenda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. „Í vor þegar fyrri bylgja Covid-19 stóð sem hæst fór félagið að prófa...
Alls greindust 15 Covid-19 smit á landinu í gær og er það mesti fjöldi smita á undanförnum sjö dögum. Alls voru 13 í sóttkví sem greindust með Covid-19. Í gær voru tekin 750 sýni innanlands sem er svipaður fjöldi sýna og undanfarna daga. Á Vesturlandi eru 12 einstaklingar í einangrun vegna Covid-19 og aðeins 9...
Á fundi skipulags – og umhverfisráðs Akraness nýverið var lögð fram fyrirspurn frá skipulagsfulltrúa vegna Suðurgötu 50A. Þar var Brauða – og Kökugerðin til húsa í marga áratugi. Handverskfyrirtækið Leirbakaríið er með sína starfssemi í húsinu í dag. Í fyrirspurninni var beðið um álit frá skipulags -og umhverfisráðs vegna hugmynda um að byggja aðra hæð...
Mikil umræða hefur verið um húsnæði Fjöliðjunnar við Dalbraut 10. Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti nýverið að fara eftir sviðsmynd 1 í lokaskýrslu starfshóps um framtíðarhúsnæði Fjöliðjunnar. Sviðsmynd 1 gengur út á að núverandi húsnæði við Dalbraut 10, sem skemmdist mikið í eldi á síðasta ári, verði gert upp með nýrri viðbyggingu. Á fundi bæjarstjórnar nýverið kom...
Alls greindust 10 einstaklingar með Covid-19 í gær og voru fjórir þeirra ekki í sóttkví. Alls eru 52 einstaklingar á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og eru tveir þeirra á gjörgæslu. Alls voru tekin rúmlega 600 sýni í gær innanlands. Á Vesturlandi eru 12 í einangrun vegna Covid-19 og 12 eru í sóttkví – samkvæmt upplýsingum á...
Jón Örn Arnarson heldur áfram sínu striki í getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA. Jón Örn hafði betur gegn Bryndísi Guðjónsdóttur um liðna helgi eftir maraþonviðureign sem stóð yfir í þrjár vikur. Getraunastarf Knattspyrnufélags ÍA hefur í gegnum tíðina verið fastur punktur í tilverunni hjá fjölmörgum á Akranesi. Vegna aðstæðna í samfélaginu hefur tippklúbbur KFÍA lagt áherslu...
Malarstígar í Garðalundi verða lagaðir á næstunni en stígarnir hafa ekki þótt þjóna hlutverki sínu nægjanlega vel á undanförnum mánuðum. Nýverið voru tilboð í verkefnið „Malarstíg í Garðalundi 2020“ en alls bárust fimm tilboð í verkefnið. Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar hljóðaði upp á 2 milljónir kr. Lægsta tilboðið var rétt rúmlega 40% af kostnaðaráætlun og verður gengið...
Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður sænska liðsins Norrköping, lék sinn fyrsta A-landsleik í kvöld. Skagamaðurinn kom inná sem varamaður þegar skammt var eftir af leik Íslands gegn Englendingum á Wembley í London í 4-0 tapi í Þjóðardeild UEFA. Arnór Sigurðsson, leikmaður CSKA í Moskvu, var í leikmannahópnum en kom ekki við sögu að þessu sinni. Ísak...
„Þessi netfundur er tilraun hjá okkur til að ná til fólks þegar aðstæður eru eins og þær eru. Markmið fundarins er að gefa fólki kost á að spjalla við okkur núna augliti til auglitis nú þegar skólahúsnæðið hefur verið lokað með hléum alla önnina og samskipti fara meira og minna fram um netið,“ segir Steinunn...