ÍA hefur skorað flest mörk allra liða í PepsiMax-deild karla ásamt toppliði Vals. Í fyrstu 9 umferðunum hefur ÍA skorað alls 21 mark líkt og Valur og þar á eftir kemur lið Breiðabliks með 19 mörk skoruð. ÍA sótti lið Breiðabliks heim s.l. sunnudag í 9. umferð PepsiMax-deildarinnar. Alls voru skoruð 8 mörk í leiknum...
Þann 17.júlí síðastliðinn var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og Kára Arnórsson ehf um að reisa burðarvirki reiðhallar á Akranesi. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Verkefnið felst í hönnun, framleiðslu og uppsetningu á burðarvirki úr límtré, klæðningareiningum ásamt tilheyrandi festingum og ytri frágangi mannvirkisins. Mannvirkið sem um ræðir verður 1250 m2 að stærð, á einni...
Hópsmit Covid-19 veirunnar hefur komið upp á Akranesi. Þetta kemur fram á fréttavefnum skessuhorn.is . Ásmundur Kr. Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi, staðfestir þetta í samtali við Skessuhorn. Tilkynning um hópsmitið barst í dag en ekki liggur fyrir hversu margir eri smitaðir. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar2 og Bylgjunar eru 6 smitaðir á Akranesi.
Birgir Leifur Hafþórsson hefur sagt starfi sínu lausu sem íþróttastjóri hjá Golfklúbbnum Leyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leyni. Birgir Leifur, sem er sigursælasti kylfingur allra tíma á Íslandsmótinu í golfi, hefur starfað sem íþróttastjóri Leynis frá árinu 2017. Sjöfaldi Íslandsmeistarinn mun ljúka sumrinu sem íþróttastjóri Leynis en að því loknu heldur hann til...
Dino Hodzic, markvörður Kára, heldur áfram ævintýri sínu þegar kemur að því að verja vítaspyrnur í 2. deild karla í knattspyrnu. Dino varði vítaspyrnu á lokamínútunum gegn Dalvík/Reyni. Þetta var fjórða vítaspyrnan sem Dino Hodzic ver í síðustu þremur leikjum Kára. Staðan var 1-0 fyrir Kára á þeim tíma en Guðfinnur Leósson kom heimamönnum hafði...
Skagamaðurinn Helgi Laxdal Aðalgeirsson er í karlalandsliðinu í hópfimleikum. Helgi og félagar hans úr landsliðinu verða með sýningar um allt land á næstunni þar sem þeir munu sýna listir sínar, og kynna fimleikaíþróttina í leiðinni. Fimleikahringur þeirra um landið hefst í dag í Íþróttahúsinu við Vesturgötu, og hefst sýningin kl. 14.00. Eftir sýninguna gefst gestum...
Gunnar Einarsson þjálfari Kára í viðtali við skagafrettir.is „Ég er virkilega ánægður með hugmyndafræðina á bak við Káraliðið og samstarfið við Knattspyrnufélag ÍA. Til lengri tíma litið þá er þetta eina rétta leiðin í því að byggja upp félagið í heild sinni. ÍA þarf að hlúa vel að uppbyggingarstarfinu og Kári er besta leiðin fyrir...
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, hefur ákveðið að taka sér stutt hlé frá keppnisgolfinu á meðan hún bíður eftir niðurstöðum frá sérfræðingum vegna bakmeiðsla sem hún hefur glímt við í nokkur misseri. Valdís Þóra hefur verið að kljást við óþægindi í bakinu og tók hún sér frí vegna þessara meiðsla fyrr í sumar. „Þetta...
Hér er vel gerð og áhugaverð samantekt frá Álmanninum 2020 sem fram fór nýverið. Það er fyrirtækið Rewind sem gerði myndbandið og þar fer Skagamaðurinn Kristinn Gauti Gunnarsson fremstur í flokki. Í Álmanninum eru þrjár keppnisgreinar og er keppt í einstaklings – og liðakeppni. Aldís Birna Róbertsdóttir og Stefán Karl Sævarsson sigruðu í einstaklingskeppninni. Aldís...
Íslandsmeistaramót í 50 metra laug fór fram um síðustu helgi í Laugardalslaug, Reykjavík. Alls tóku 146 keppendur þátt og komu þeir frá 14 félögum en keppendur þurfa að ná ákveðnum lágmörkum til að fá keppnisrétt á mótinu. ÍA var með alls 14 keppendur sem er mesti fjöldi frá Sundfélagi Akraness á þessu móti á undanförnum...