Tryggvi Hrafn Haraldsson hefur samið við norska knattspyrnuliðið Lilleström. Hinn 24 ára gamli framherji semur við Lilleström út leiktíðina 2020. Tryggvi skoraði 12 mörk fyrir ÍA í PepsiMax deildinni á þessari leiktíð og er honum ætlað að hjálpa Lilleström að komast á ný í efstu deild. Hjá Lilleström eru nú þegar tveir sóknarmenn frá Akranesi,...
Íbúakönnun landshlutanna er á vegum allra landshlutasamtaka á landsbyggðinni, atvinnuþróunarfélaga og Byggðastofnunar. Könnunin er ætluð öllum íbúum sem náð hafa 18 ára aldri. Markmiðið er að kanna hver staða íbúanna er á vinnumarkaði, mat þeirra á búsetuskilyrðum, framtíðarvæntingar og almenn líðan – allt til að geta gert gott samfélag enn betra. Vífill Karlsson hjá Samtökum...
Nýjar reglugerðir um takmarkanir á samkomuhaldi og skólastarfi tóku gildi í dag, 5. október 2020. Hertar aðgerðir vegna útbreiðslu Covid-19 verða í gildi til og með 19. október 2020. Hér má sjá um hvaða reglur ræðir: Samkomur fleiri en 20 manns eru bannaðar, með nokkrum undantekningum sem verða útlistaðar hér að neðan. Líkamsræktarstöðvum er óheimilt að hafa opið. Krám,...
Karlalið ÍA í körfuknattleik hóf keppnistímabilið í 2. deildinni með góðum sigri gegn b-liði Vals. Leikurinn fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu eða „Brimgarðinum“. Hinn efnilegi Aron Elvar Dagsson var stigahæsti leikmaður ÍA með 22 stig í 99-93 sigri ÍA. Sigur ÍA kom flestum á óvart ef miðað er við lokstöðuna á síðasta tímabili þar...
Knattspyrnufélag ÍA hefur náð samkomulagi við Silkeborg IF í Danmörku um félagaskipti Stefáns Teits Þórðarsonar. Þetta kemur fram í tiklkynningu frá KFÍA. Silkeborg leikur í næst efstu deild í Danmörku. Stefán Teitur var kynntur til sögunnar sem leikmaður liðsins í dag en hann skrifaði undir samning sem gildir út leiktíðina 2024. Sjá nánar hér: Stefán...
Alls greindust 61 á Íslandi með Covid-19 veiruna í gær og voru 39 þeirra ekki í sóttkví. Þrír eru á gjörgæslu vegna Covid-19 og alls eru þrettán einstaklinga á sjúkrahúsi vegna veirunnar. Á Vesturlandi eru 27 í einangrun með Covid-19 og en s.l. föstudag voru 26 einstaklingar í einangrun vegna Covid-19. Nýjustu tölfræðiupplýsingarnarnar koma fram...
Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson, leikmenn knattspyrnuliðs ÍA, eru sagðir á leið í atvinnumennsku á Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í fréttum á fotbolt.net. Sjá hér og hér. „Það eru miklar líkur á að Stefán Teitur semji við félag erlendis í þessum glugga. Hann er með það lúxus vandamál að velja á milli liða....
Það er nóg um að vera í fótboltanum á Akranesi næstu daga. Þrír leikir eru á dagskrá á Akranesi á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Í dag kl. 17:30 tekur kvennalið ÍA á móti efsta liði Lengjudeildarinnar, Tindastól frá Sauðárkrók, en leikurinn fer fram í Akraneshöllinni. ÍA er öruggt með sæti í Lengjudeildinni á næsta tímabili en...
„Það er hægt að nota ýsu eða þorsk í réttinn sem nýtur vinsælda á okkar heimili. Þetta er einfaldur réttur og sósan gerir fiskréttinn að sælkerarétti,“ segir Ástþór Vilmar Jóhannsson sem tók áskorun frá Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra fagnandi. Bæjarstjóri Akraness reið á vaðið í nýjum fréttaflokki á skagafrettir.is. með uppskrift að áhugaverðum kjúklingarétti. Markmiðið...
Á síðasta fundi bæjarráðs var samþykkt erindi frá fyrirtækinu Stay West varðandi rekstur gistiheimilisins Kirkjuhvols. Húsið er í eigu Akraneskaupstaðar og hefur Stay West verið með gistiheimili í húsinu undanfarin ár. Í erindi Stay West var óskað eftir því að leigugreiðslum yrði frestað út árið 2020 og að væntanlegt uppgjöf taki mið af tekjum rekstraraðilans...