Árgangur 1982 á Akranesi hefur sett af stað söfnun til þess að styðja við bakið á ungum Skagamanni sem missti móður sína í hörmulegu slysi þann 14. febrúar s.l. Ester Ósk Liljan Óskarsdóttir, sem var fædd árið 1982, lést í slysinu. Vinir og jafnaldrar Esterar Óskar hafa stofnað söfnunarreikning í formi framtíðarreiknings. Styrkurinn er ætlaður...
„Það er brjálað að gera hjá okkur,“ segir Márus Líndal Hjartarson annar af eigendum Bresabúðar við Kalmansvelli á Akranesi. Finnur Þórðarson starfsmaður verslunarinnar og Márus standa vaktina í Bresabúð flesta daga og þeir hafa svo sannarlega haft í nógu að snúast á undanförnum vikum. „Febrúar var líka mjög góður mánuður hvað varðar sölu og aðsókn,...
Það er nóg um að vera á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni um þessar mundir þrátt fyrir óvenjulegt ástand í þjóðfélaginu. Töluverðar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á golfvellinum en ný vallarnefnd hefur tekið til starfa. Mesta áherslan í framkvæmdum verður í uppbyggingu og lagfæringu teiga og að fækka glompum Á meðal þeirra verkefna sem bera hæst eru...
Árið 1998 var karlalið ÍA í körfuknattleik í fremstu röð á landsvísu í efstu deild. Tímabilið 1997-1998 endaði ÍA í 8. sæti úrvalsdeildar og lék gegn deildarmeistaraliði Grindavíkur í 1. umferð úrslitakeppninnar. Skagamenn, undir stjórn Alexanders Ermolinskij gerði sér lítið fyrir og lagði Grindavík í 8-liða úrslitum. Það var í fyrsta sinn sem lið í...
Hér er stórskemmtilegt myndband sem unnið var í Brekkubæjarskóla. Þar syngja nemendur og kennarar saman lagið Draumar geta ræst án þess að hittast. Tæknin er nýtt til að koma þessu öllu saman og sá Snorri Kristleifsson um myndvinnsluna en móðir hans, Heiðrún Hámundardóttir kennari er hugmyndasmiðurinn á bak við verkefnið. Jón Jónsson samdi lagið Draumar...
Alls hafa 18 smit af Covid-19 veirunni verið greind á Vesturlandi en alls hafa 1.020 smit verið greind á landinu öllu. Þetta kom fram á fréttamannafundi almannavarna í dag. Lögreglan á Vesturlandi hefur breytt upplýsingagjöf varðandi staðsetningu smita – og er aðeins hægt að fá upplýsingar af vef almannavarna um fjölda smita í hverjum landshluta...
Borið hefur á því að börn – og unglingar hópi sér saman á meðan samkomubanninu stendur. Hér á Akranesi hefur slíkt átt sér stað og þar sem að veðrið er gott nú um stundir eru töluverðar líkur á því að slíkt geti gerst á ný. Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur minnt fólk á mikilvægi þess...
Á síðasta fundir Bæjarstjórnar Akraness var lögð fram skipulagslýsing vegna lóðar við Garðabraut 1. Um er að ræða lóð sem er í eigu KFUM og KFUK. Nánar hér. Á lóðinni stendur félagsheimili sem KFUM og KFUK byggði á árunum 1975-1980. Félagið seldi eignina árið 2017 en eftir gjaldþrot kaupanda og greiðsluþrot hefur sölunni verið rift...
Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi skrifaði eftirfarandi pistil til nemenda FVA sem birtur er á vef skólans. Skólastarfið í FVA er með óhefðbundnum hætti vegna samkomubanns í kjölfar Covid-19 faraldursins. Steinunn segir m.a. að það sé hægt að horfa á björtu hiðarnar, og þar á meðal gæti það verið kostur að fá...
Íþróttafólk á Akranesi og víðar gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda sér við efnið á meðan engar skipulagðar íþróttaæfingar eru í boði vegna Covid-19 faraldursins. Afrekssundfólkið úr röðum Sundfélags Akraness hefur nýtt tímann að undanförnu til að víkka sjóndeildarhringinn varðandi æfingar – enda er sundlaugin lokuð. Eftirfarandi texti var birtur á...