Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árin 2020-2026 var samþykkt á síðasta fundi bæjarstjórnar Akraness. Um er að ræða heildstæða áætlun sveitarfélagsins varðandi stöðu húsnæðismála í sveitarfélaginu. „Hér viljum við sjá atvinnulífið vaxa og að íbúar hafi aukin tækifæri til atvinnuþátttöku í bæjarfélaginu. Akranes er góður staður fyrir fyrirtæki, hagstætt lóðaverð og fasteignagjöld eru lág. Þá eru innviðir...
Fasteignasalan Hákot á Akranesi hefur á undanförum árum tekið vel á móti gestum á Öskudeginum. Feðginin Hrefna Dan og Daníel Elíasson standa þar vaktina og virðast jafn spennt fyrir þessum degi eins og yngri kynslóðin. Skagafréttir fengu góðfúslegt leyfi til þess að birta nokkra myndir sem teknar voru í dag á skrifstofu Hákots. Fleiri myndir...
Magnús Guðmundsson formaður Knattspyrnufélags ÍA sendi eftirfarandi pistil um stöðu mála hjá félaginu og það sem er framundan. Knattspyrnufélag ÍA (KFÍA) hélt fyrir skemmstu aðalfund félagins þar sem stiklað var á stóru um árangur og störf ársins 2019. Gríðarlega margt var jákvætt í starfssemi félagins á síðasta starfsári, meistaraflokkur karla sýndi mátt sinn og megin...
Akranes var til umfjöllunar í þættinum Fasteignir og Heimili sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Þátturinn er í umsjón Sjafnar Þórðardóttur. Rætt var við mæðgurnar Soffía Sóley Magnúsdóttir og Ragnheiður Rún Gísladóttir frá Fasteignamiðlun Vesturlands við Kirkjubraut 40 á Akranesi. Rætt var við Hilmar Ólafsson veitingamann í Galito og þriðja innslagið í þættinum er frá...
Það verður mikið um að vera í dag á Akranesi í tilefni Öskudagsins þar sem að yngri kynslóðin gerir sér glaðan dag. Að venju taka flest fyrirtæki og stofnanir vel á móti syngjandi gestum og á nokkrum stöðum er lagt mikið í myndatökur af gestunum. Að venju verður Blikksmiðja Guðmundar við Akursbraut með „Öskudagsstúdíó“ á...
Birgir Leifur Hafþórsson verður áfram íþróttastjóri Golfklúbbsins Leynis. Samningar þess efnis voru undirritaðir nýverið. Birgir Leifur mun alfarið sjá um þjálfun barna- og unglingastarfs GL, koma að ýmsum verkefnum í samvinnu við framkvæmdastjóra og hafa umsjón með nýliðakennslu klúbbsins. Í tilkynningu frá Leynis kemur fram að allir nýir meðlimir GL eiga þess kost að sækja...
Aðalfundur Skotfélags Akraness fer fram þann fimmtudaginn 27. febrúar í íþróttamiðstöðinni við Jaðarsbakka á Akranesi. Fundurinn fer fram á svölunum fyrir innan hátíðarsalinni á efri hæð íþróttamiðstöðvarinnar og hefst hann kl. 19:30. Á dagskrá eru aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Farið verður yfir helstu verkefni og viðburði síðasta árs og stiklað á stóru hvað er framundan...
Haraldur Sturlaugsson sendi nýverið erindi til Akraneskaupstaðar þar sem að hann óskar eftir því að fá að setja upp myndasafn af öllum Íslands – og bikarmeisturum allra flokka ÍA í knattspyrnu í Akraneshöll. Hugmyndin er að setja upp liðsmyndir af þeim sem hafa náð slíkum árangri allt frá árinu 1946. Hér má sjá Íslandsmeistaralið ÍA...
Um næstu helgi fer fram úrslitakvöld Söngvakeppni RÚV 2020 og þar er Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir frá Akranesi í stóru hlutverki. Helga Ingibjörg og Ísold Wilberg slógu í gegn á fyrra undanúrslitakvöldinu með laginu Klukkan Tifar. Flutningur þeirra var glæsilegur og margir spá laginu góðu gengi á úrslitakvöldinu. Helga Ingibjörg og Ísold syngja enska útgáfu af...
Það eru breytingar framundan hjá Knattspyrnufélagi ÍA. Í dag var starf framkvæmdastjóra félagsins auglýst laust til umsóknar. Sigurður Þór Sigursteinsson hefur gegnt starfinu frá því í maí árið 2018 en hann tók við af Huldu Birnu Baldursdóttur sem tók við þessu starfi í ágúst 2016. Í auglýsingu KFÍA segir m.a. „Knattspyrnufélag ÍA leitar að metnaðarfullum...