Leigufélagið Heimavellir seldu 18 íbúðir við Holtsflöt 4 á Akranesi í byrjun janúar og hefur sá verið gagnrýnd af mörgum og þar á meðal bæjarráði Akraness. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fór yfir málið á síðasta fundi bæjarráðs og er óhætt að segja að þessi aðgerð hafi ekki fallið í góðan jarðveg á Akranesi. Bæjarráð Akraness...
Vökulir foreldrar á Akranesi hafa vakið athygli lögreglunnar á því að unglingar stundi hættulega iðju á bryggjunum við Akraneshöfn. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu hópsins Vökulir foreldrar þar sem eftirfarandi texti var skrifaður í lok janúar. „Kæru foreldrar! Við höfum fengið fregnir af því að einhverjir unglingar eru að gera sér það að leik að...
Skagamaðurinn Ívar Orri Kristjánsson hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð knattspyrnudómara á Íslandi. Stærsti knattspyrnufréttamiðill landsins, fotbolti.net, valdi Ívar Orra sem dómara ársins 2019 og fékk hann viðurkenningu þess efnis afhenta fyrir úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í gær. Hér má sjá fréttina hjá fotbolti.net. Ívar Orri starfar sem deildarstjóri frístundamiðstöðvarinnar Þorpsins á Akranesi. Hann...
„Viðtökurnar hafa verið frábærar, þetta er æði, og mér líður eins og barni sem hefur fengið fullt af sælgæti,“ segir Andrea Þ. Björnsdóttir Skagamaður ársins 2019. Andrea hefur á undanförnum árum látið gott af sér leiða með því að selja sælgæti til styrktar góðum málefnum. Andrea gerir þetta allt saman í sjálboðavinnu og vakið eftirtekt...
Fulltrúar félagsmiðstöðvarinnar Arnardals á Akranesi tóku þátt í Hönnunarkeppnin Stíll sem fram fór laugardaginn 1. febrúar í íþróttahúsinu Digranesi Þrjá stúlkur frá Akranesi, Bergrún Birta Liljudóttir, Arina Pechorina og Harpa Ósk Svansdóttir, lögðu mikla vinnu í verkefnið sitt og það skilað árangri. Þær Bergrún, Arina og Harpa gerðu sér lítið fyrir og unnu til verðlauna...
Tuttugu og sjö skráðu sig í Íslandsmeistararakeppnina í uppistandi sem fer fram í Háskólabíói fimmtudagskvöldið 27. febrúar. Alls komust 16 þeirra í gegnum nálarauga dómnefndar og fá þeir tækifæri að sýna sig á stóra sviðinu í lok febrúar. Skagamaðurinn Ingi Björn Róbertsson eða Iddi Biddi fær tækifæri í þessar fyrstu Íslandsmótskeppni í uppistandi. Verðlaunin eru...
Klifuríþróttin hefur verið á hraðri uppleið síðustu árin hér á Akranesi. Klifurfélag ÍA hefur haldið úti öflugu starfi fyrir klifrara á öllum aldri og nú er svo komið að ÍA sendir keppanda til keppni í klifri á Alþjóðlegu Reykjavíkurleikunum, Reykjavík International Games, sem fara fram í þrettánda sinn dagana 23.janúar til 2.febrúar. Þetta er í...
Í dag, laugardaginn 1. febrúar, verður haldinn opinn fundur um kvótakerfið í sjávarútvegi, afleiðingar þess og áhrif á byggð, atvinnulíf og efnahag. Yfirskrift fundarins er Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim! Fundurinn fer fram í Gamla Kaupfélaginu, Kirkjubraut 11 á Akranesi. Fundurinn hefst klukkan 12 og stendur til klukkan 14. Fundarstjóri er Ögmundur...
„Þegar ég var að sýna gestum og gangandi safnið þá tók maður oft þessa sprengju og var að handfjatla hana. Þegar maður hugsar til þess nú í dag þá hrýs manni svolítið hugur,“ segir Jón Heiðar Allansson forstöðumaður Byggðasafnsins á Görðum í viðtali í síðdegisútvarpi RÚV í dag. Sprengja sem var til sýnis á Byggðasafninu...
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands er ferðinni í Vesturlandsprófastsdæmi um þessar mundir og heimsækir Garða og Saurbæjarprestkall 2-3. febrúar. Þetta er fyrsta vísitasía biskup í hinu nýja sameinaða prestakalli, en biskup Íslands vísiteraði prestaköllin síðast árið 2002. Vísitasía er heimsókn biskups til safnaða kirkjunnar, þar sem biskup skoðar kirkjurnar og ræðir við presta og sóknarnefndir...