• Það eru töluverðar líkur á því að meira líf verði í gamla miðbænum á Akranesi á næstu misserum. Nýr veitingastaður er í burðarliðnum á þessum slóðum – en það kemur fram í fundargerð bæjarráðs Akraness. Haraldur Helgason, sem er stjórnarformaður félagsins Grjótið Bistro-bar ehf, hefur sótt um rekstrarleyfi fyrir veitingastað við Kirkjubraut 8-10. Embætti Sýslumannsins...

  • Knattspyrnudómarafélag Akraness er í fremstu röð á landsvísu og er starf félagsins til fyrirmyndar. Félagið stendur fyrir áhugaverðu knattspyrnumóti í Akraneshöll þann 14. mars. Þar verður blásið til Firmamóts þar sem að 5 manna lið etja kappi við hvort annað. Að sjálfsögðu geta fleiri leikmenn skipað liðið en 5 eru inn á vellinum í hverju...

  • Bikarmeistarmót Íslands í klifri fór fram um s.l. helgi þar sem að keppt var í C-flokki. Undankeppnin var erfið og þar sýndu klifrarar úr röðum ÍA styrk sinn. Sex stigahæstu keppendurnir fóru áfram í úrslit. Skagamenn fylltu öll þau sæti, fjórar stúlkur og tveir drengir úr ÍA, komust í úrslit. Í úrslitakeppninni náði Þórkatla Þyrí...

  • Forstjóri Landsvirkjunar og stjórnarformaður Landsvirkjunar eru harðlega gagnrýndir í ályktun var samþykkt á síðasta fundi bæjarráðs þann 27. febrúar sl. Ályktunin er hér fyrir neðan. „Í ágústmánuði síðasta árs sendu sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar og bæjarstjórn Akraness sameiginlega frá sér áskorun til ríkisstjórnar Íslands um stefnubreytingu í málefnum orkusækins iðnaðar, þar sem vakin var athygli ríkisstjórnarinnar á...

  • Íþróttamaður Akraness 2019, hestamaðurinn Jakob Svavar Sigurðsson, náði frábærum árangri í fimmgangi í Meistaradeildinni nýverið. Keppt var í Samsunghöllinni hjá Spretti. Jakob keppti á hestinum Ský frá Skálaholti. Þeir fóru rólega af stað í forkeppninni og voru í sjötta sæti og síðastir inn í úrslitin. Keppnin var æsispennandi í A-úrslitum þar sem að dómararnir þurftu...

  • Í dag fór fram sterkt knattspyrnumót í Egilshöll sem ber nafnið Konudagsmótið. Fyrrum leikmenn úr ÍA sem hafa leikið undir nafninu „Káralínur“ mættu þar til leiks til þess að láta að sér kveða og það tókst svo sannarlega. Um er að ræða þaulreynda leikmenn sem voru á sínum tíma í fremstu röð á landsvísu. Efri...

  • Á fundi stjórn­ar Faxa­flóa­hafna sf. í gær var lagt fram bréf Gísla Gísla­son­ar hafn­ar­stjóra þar sem hann seg­ir starfi sínu lausu. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. „Und­ir­ritaður hef­ur gegnt starfi hafn­ar­stjóra í á fimmtánda ár og tím­ans gang­ur sá að skyn­sam­legt sé að huga að starfs­lok­um. Því segi ég und­ir­ritaður upp störf­um með...

  • Fimm keppendur frá ÍA taka þessa dagana þátt á Alþjóðlegu sundmóti sem fram fer í Riga í Lettlandi. Brynhildur Traustadóttir náði þeim frábæra árangri að landa bronsverðlaunum í 400 metra skriðsundi í gær. Ragnheiður Karen Ólafsdóttir synti einnig í B-úrslitum í gær í tveimur greinum og bætti tímana sína í báðum greinum. Eins og áður...

  • Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona verður í sviðsljósinu á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar sem verður í beinni útsendingu á laugardagskvöld á RÚV. Helga Ingibjörg syngur þar lagið „Meet Me Halfway“ – ásamt Ísold Wilberg en þær slógu svo sannarlega í gegn á fyrra undanúrslitakvöldinu. Helga Ingibjörg segir í samtali við skagafrettir.is að upplifun hennar á undanúrslitakvöldinu hafi verið...

  • Enrique Snær Llorens heldur áfram að bæta metin í sundlauginni. Skagamaðurinn efnilegi bætti 16 ára gamalt Akranesmet í 400 metra skriðsundi fyrr í dag á Alþjóðlegu móti sem fram fer í Lettlandi. Enrique Snær, sem er fæddur árið 2002, synti vegalengdina á 4.17,94 mínútum en gamla metið var í eigu Gunnar Smára Jónbjörnssonar, 4.22,25 mínútur...

Loading...