Séra Þráinn Haraldsson sóknarprestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli hefur ákveðið að bjóða upp á valkosti varðandi tímasetningar á fermingum á þessu ári. Í bréfi sem Þráin sendi á foreldra fermingarbarna í dag kemur fram að fjölskyldur geti frestað athöfninni þar til í september. Er þetta gert vegna þeirrar óvissu sem hefur skapast vegna Covid-19 veirunnar,...
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í kvöld í Hörpu. Margrét Rán Magnúsardóttir frá Akranesi var á meðal sigurvegara kvödsins en hún er í hljómsveitinni Vök. Annar Skagamaður, Ólafur Alexander Ólafsson, var einnig verðlaunaður á hátíðinni en hann er í hljómsveitinni Hipsumhaps Hljómplata þeirra í Vök,, In the Dark, er plata ársins 2019. Margrét Rán var einnig...
Norðurlandamótinu í klifri hefur verið frestað vegna Covid-19 veirunnar. Tveir keppendur úr röðum Klifurfélags ÍA, Brimrún Eir Óðinsdóttir og Sylvía Þórðardóttir, eru í íslenska landsliðshópnum sem átti að keppa á þessu Norðurlandamóti. Þetta eru leiðinlegar fréttir fyrir alla en unnið er að því að fá nýja dagsetningu fyrir mótið.
Í ljósi þeirra stöðu vegna heimsútbreiðslu COVID-19 hefur velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar sett saman viðbragðsáætlun sem er nauðsynleg til að starfsemi sviðsins í heild sinni geti haldið áfram þrátt fyrir heimsfaraldurinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstaðar. Markmið áætlunarinnar eru að stuðla að öryggi starfsmanna og órofinni þjónustu og lágmarka áhrif velferðar- og mannréttindasviðs...
Kvennalandsliðs Íslands undir stjórn Skagamannsins Jóns Þórs Haukssonar náði fínum árangri á Pinatar-mótinu sem fram fór á Spáni. Alls lék Ísland þrjá leiki á þessu móti. Liðið hafnaði í öðru sæti eftir 1-0 sigur gegn Norður-Írlandi og Úkraínu og 0-1 tap gegn Skotlandi. Í lokaumferðinni mætti Íslandi liði Úkraínu. Skotar stóðu uppi sem sigurvegarar á...
Landslið kvenna skipað leikmönnum 19 ára og yngri í knattspyrnu náði sögulegum árangri í gær undir stjórn Skagamannsins Þórðar Þórðarsonar. Liðið sigraði Þýskaland 2-0 á æfingamóti sem fram fer á La Manga á Spáni. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland leggur stórlið Þýskalands að velli í þessum aldursflokki. Ísland hefur unnið alla þrjá leiki...
Nýverið greindi Fimleikasamband Íslands frá þjálfarahóp Íslands fyrir Evrópumótin 2020 í hópfimleikum. Þórdís Þráinsdóttir, yfirþjálfari Fimleikafélags Akraness, er í þjálfarateymi blandaðs liðs unglinga. Sjá nánar hér. Yfirmaður verkefnisins er framkvæmdastjóri FSÍ, Sólveig Jónsdóttir en daglegur rekstur og umsjón þess er á höndum afreksstjórans, Írisar Mistar Magnúsdóttur. Yfirþjálfarar verkefnisins, með faglega stjórn og uppbyggingu, eru þau...
Akrafjallsvegi verður lokað í kvöld kl. 20.00, mánudaginn 9. mars og stendur lokunin yfir fram til kl. 20.00 þriðjudaginn 10. mars. Veginum verður lokað vegna vinnu á endurnýjun aðveitu frá Deildartungu, umferð verður beint suður með Akrafjalli á meðan framkvæmdir standa yfir. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við...
Öllum verkfallsaðgerðum um 15 þúsund félagsmanna BSRB sem byrjuðu eða áttu að byrja á miðnætti hefur verið aflýst. Hver kjarasamningurinn á fætur öðrum var undirritaður í nótt og nú stendur aðeins eftir kjarasamningur Sjúkraliðafélags Íslands gagnvart ríkinu. Hjá Akraneskaupstað hefði verkfallið náð til 86 starfsmanna en ekkert verður af verkfallinu eins og áður segir. „Tímamótin...
„Þetta var klárlega eitt af því erfiðara sem ég hef gert en ég hlakka til þess að finna eitthvað ennþá erfiðara sem fyrst,“ segir Skagamaðurinn Sigurjón Ernir Sturluson sem náði frábærum árangri í fjallahlaupi á Kanaríeyjum. Keppnisbrautin var gríðarlega erfið, alls 128 km. með 7.500 km hækkun. Sigurjón Ernir kom í mark á 18 klst....