Kallabakarí tekur þátt í því að efla heilsuvitund Skagamanna á nýju ári. Framlag fyrirtækisins í upphafi ársins 2020 eru spennandi súrdeigsbrauðtegundir – sem hafa notið mikilla vinsælda. „Súrdeigsbrauðin okkar eru gerð úr lífrænu hveiti og lifandi súr,“ segir Alfreð Karlsson bakari og einn af eigendum Kallabakarís á Akranesi. „Við erum með þrjár gerðir af súrdeigsbrauðum...
Evrópumótið í handknattleik karla hefst fljótlega. Ýmir Örn Gíslason, varnar – og línumaður Íslands, er á ný í landsliðinu á stórmóti en Valsmaðurinn sterki er með sterkar rætur á Akranes þar sem að afi hans og amma búa. Hafdís Karvelsdóttir og Sigurður Vésteinsson, sem búsett eru á Bjarkargrund 5, eru amma og afi Ýmis Arnar...
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik hefur leik á Evrópumeistaramótinu á næstu dögum. Þrátt fyrir að handbolti sé ekki stundaður á Akranesi eru tveir leikmenn liðsins með sterka Skagatengingu eins og sjá má í fréttinni hér fyrir neðan sem birt var fyrir ári síðan. Elvar Örn Jónsson, skytta og leikstjórnandi, leikur sem atvinnumaður með Skjern í Danmörku....
Emil Rafn Stefánsson, fyrsta barnið sem fæddist á Íslandi árið 2020, er eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is með sterka Skagatengingu. Faðir Emils Rafns, Stefán Halldór Jónsson, er fæddur á Akranesi árið 1986, en móðir Emils Rafns er Berglind Bjarnadóttir. Emil Rafn er eitt stærsta barn sem fæðst hefur á Íslandi á unanförnum...
Eins og áður hefur komið fram fór Gettu betur lið Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi örugglega í gegnum 1. umferð spurningakeppni framhaldsskólanna. FVA lagði Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum 24-10. Dregið var í 16-liða úrslitin strax að lokinni 1. umferð í kvöld. FVA fær „grannaslag“ í 2. umferð gegn liði Borgarholtsskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Viðureignin fer fram...
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson fær sitt fyrsta A-landsliðsverkefni með karlalandsliði Íslands í knattspyrnu á næstunni. Stefán Teitur, sem er fæddur árið 1998, hefur verið kallaður inn í 23-manna landsliðshóp Íslands sem mætir El Salvador og Kanada í janúar. Stefán Teitur kemur inn í hópinn í stað hins þaulreynda Emils Hallfreðssonar sem getur ekki tekið þátt...
Fjölmenni mætti í kvöld í Grundaskóla þar sem að gestir mættu til þess að perla af krafti. Viðburðurinn var skipulagður af Krafti, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur en félagið var stofnað þann 1. október árið 1999. Félagið hefur það að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til...
Í kvöld fór fram viðureign Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum í spurningakeppninni Framhaldsskólanna, Gettu betur. Guðmundur Þór Hannesson, Amalía Sif Jessen og Karl Ívar Alfreðsson. Keppnislið FVA er alveg eins skipað og í fyrra þegar liðið féll úr keppni í 1. umferð. Liðið var því reynslunni ríkara og flaug áfram í 2....
Vestlendingar ársins 2019 eru björgunarsveitarfólk á Vesturlandi. Skessuhorn – fréttaveita Vesturlands, stóð fyrir valinu líkt og á undanförnum tveimur áratugum. Héraðsfréttablaðið auglýsti eftir tilnefningum frá almenningi sem ritstjórn vann úr. Niðurstaðan var afgerandi. Vestlendingar ársins 2019, björgunarsveitarfólk á Vesturlandi. Nánar á fréttavefnum skessuhorn.is
Í kvöld fer fram viðureign Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum í spurningakeppninni Framhaldsskólanna, Gettu betur. Keppnin fer fram í húsakynnum RÚV og er keppninni útvarpað á vefsvæðinu Núll. Nánar hér. Keppnislið FVA er reynslunni ríkari frá því fyrir ári siðan þegar liðið féll úr keppni í 1. umferð. Lið FVA er þannig...