• „Við erum lánsöm að það rigndi hér á þessu svæði fyrir viku síðan. Sú úrkoma slökkti eldana þar sem við búum. En það er óhugnalegt að sjá hvernig staðan er fyrir sunnan okkur,“ segir Skagamaðurinn Hallgrímur Kvaran Gíslason sem búsettur er í Ástralíu þar sem að miklir skógareldar hafa sett samfélagið á hliðina á undanförnum...

  • Guðfinna Rúnarsdóttir leikkona frá Akranesi hefur margoft leikið hlutverk í Áramótaskaupunum á undanförnum árum og áratugum. Guðfinna var í skemmtilegu atriði í Skaupinu 2019 þar sem hún var í hlutverki Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, þingkonu úr Miðflokknum. Guðfinna er fædd árið 1963 en foreldrar hennar Guðmundur Rúnar Pétursson og Guðný Jónsdóttir ráku prjónaverksmiðjuna Akraprjón á sínum...

  • Ung og efnileg listakona frá Akranesi, Hekla Kristleifsdóttir, kom við sögu í Áramótaskaupinu 2019. Hekla fór þar með hlutverk í atriði þar sem að gert var grín að íslensku þáttaröðinni „Pabbahelgar.“ Þáttaröðin „Pabbahelgar“ sló svo sannarlega í gegn á RÚV fyrr í vetur. Heiðrún Hámundadóttir tónlistakennari á Akranes og Kristleifur Brandsson eru foreldrar Heklu.

  • Skagamenn komu mikið við sögu í Áramótaskaupinu 2019. Hallgrímur Ólafsson leikari var með stórt hlutverk þar sem að fall flugfélagsins WOW var tekið fyrir með eftirminnilegum hætti. Þar söng Hallgrímur texta við lag sem bandaríska tónskáldið Prince frumflutti um mitt ár 1984. Það er óhætt að segja að flutningur Halla Melló hafi slegið í gegn....

  • Elkem á Íslandi birti nýverið áhugavert myndband á samfélagsmiðlum þar sem að sýnt er með einföldum hætti hvar fyrirtækið kemur við sögu í daglegu lífi Íslendinga. Elkem Ísland fagnaði 40 ára af­mæli sínu í júní 2019 en verk­smiðjan er ein stærsta kís­il­málm­verk­smiðja heims og legg­ur áherslu á að fram­leiða kís­il­málm á sjálf­bær­an hátt. Fram­kvæmd­ir við...

  • Rauðu dögunum fækkar um einn á árinu 2020 frá því sem var á árinu 2019. Alls verða rauðu dagarnar ellefu á árinu 2020 en skýringin á því er að annar í jólum 2020 kemur upp á laugardegi en hann færist til um vikudaga þar sem að árið 2020 er hlaupár. Góðu fréttirnar eru þær að...

  • Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson er eini íslenski leikmaðurinn sem kemst inn á lista yfir 50 efnilegustu leikmennina sem spila með liðum í Evrópu. Leikmennirnir koma frá 25 mismundandi löndum. Listinn er hér í heild sinni: Listinn er birtur á vef UEFA og eru leikmennirnir 21 árs og yngri. UEFA hvetur lesendur til þess að fylgjast vel...

  • Emil Rafn Stefánsson, er fyrsta barnið sem fæddist á Íslandi árið 2020. Emil Rafn fæddist á Landsspítalanum en hann er með sterka Skagatengingu. Faðir Emils Rafns, Stefán Halldór Jónsson, er fæddur á Akranesi árið 1986, en móðir Emils Rafns er Berglind Bjarnadóttir. Stefán Halldór og Berglind starfa bæði í höfuðstöðvum Landsbankans. Emil Rafn er þriðja...

  • Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, trúlofaði sig á Akranesi á Aðfangadag. Rafał Orpel er unnusti Þórhildar. Frettabladid.is greindi fyrst frá – sjá hér. „Ástin mín eina fór á skeljarnar við ströndina og ég sagði já, að eilífu já!“ segir Þórhildur og sendir öllum jólakveðjur. „Gleðileg jól kæru vinir!,“ skrifar Þórhildur Sunna á fésbókarsíðu sína. Móðir...

  • Golfklúbburinn Leynir hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra. Alls sóttu ellefu um stöðuna sem auglýst var laus til umsóknar í nóvember. Rakel Óskarsdóttir tekur við framkvæmdastjórastarfinu af Guðmundi Sigvaldasyni. Rakel Óskarsdóttir er 43 ára gift Búa Örlygssyni og eiga þau tvö börn.Hún er útskrifaður viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og MS í Markaðs- og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla...

Loading...