„Eftir strangar æfingar er ómetanlegt að slappa af í nöfnu minni, henni Guðlaugu,“ segir afreksíþróttakonan Guðlaug Edda Hannesdóttir. Þríþrautarkonan Guðlaug Edda hefur á undanförnum dögum og vikum stundað æfingar á Akranesi. Hún er nýflutt til Íslands frá Óðinsvéum í Danmörku, þar sem hún og unnusti hennar Axel Máni, áttu heima. Axel Máni er hugbúnaðarverkfræðingur og...
Þrír leikmenn úr röðum ÍA hafa verið valdir í æfingahópa fyrir yngri landslið Íslands í körfuknattleik. Hóparnir æfa í lok desember og yfir hátíðirnar sem eru framundan. Aron Elvar Dagsson er í æfingahóp fyrir U16 drengja en hann hefur áður fengið tækifæri með landsliði Íslands í sínum aldursflokki. Styrmir Jónasson og Þórður Freyr Jónsson voru...
,Heilt yfir má segja að aflabrögðin hafi verið alveg þokkaleg. Því er þó ekki að neita að það hefur verið strembið að eiga við þorskinn,“ segir Eiríkur Jónsson, Skagamaðuri og skipstjóri á ísfisktogaranum Akurey AK í viðtali sem birt er á heimasíðu útgerðarfélagsins Brims. Skipið fór frá Reykjavík á fimmtudagskvöld eftir um 130 tonna veiðiferð...
Dvalarheimilið Höfði fær varanlega rekstrarheimild fyrir fjórum hjúkrunarrýmum sem þar hafa verið rekin tímabundið sem biðrými fyrir Landspítalann. Þetta kemur fram í frétt á vef stjórnarráðsins. Þar segir að biðrýmin fjögur á Höfða hafi verið opnuð árið 2017 og séu ætluð fólki með gilt færnimat sem tilbúið sé til útskrifar af Landspítala en bíði eftir...
Hlini Baldursson mun hefja störf hjá Knattspyrnufélagi ÍA í byrjun næsta árs. Hlini verður skrifstofu- og verkefnastjóri hjá KFÍA. Þetta kemur fram á vef KFÍA. Hann tekur við af Tjörva Guðjónssyni, sem hefur verið í þessu starfi frá því í febrúar 2018. Hlini hefur á undanförnum áru starfað sem viðskiptastjóri í Tengi. Hann er með...
Stofnþing Bogfimisambands Íslands (BFSÍ) var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þann, 1. desember 2019. Með stofnun þessa nýja sérsambands eru sérsambönd ÍSÍ orðin 33 talsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍSÍ: Bogfimiíþróttin á Íslandi á rætur sínar að rekja til íþróttafélaga um íþróttir fatlaðra og fyrstu skipulögðu æfingar í bogfimi hér á landi voru...
Skagamennirnir Albert Hafsteinsson, fyrrum leikmaður ÍA, og Alexander Már Þorláksson, fyrrum leikmaður Kára, verða bláklæddir á næstu leiktíð sem leikmenn Fram í Inkasso-deild karla. Albert, sem er 23 ára gamall, nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við ÍA í október á þessu ári. Hann gerði 3 ára samning við Fram nýverið. „Ég er mjög ánægður...
Eins og fram kom í gær á skagafrettir.is er Evrópuævintýri ÍA/Kára/Skallagríms í Unglingadeild UEFA er á enda.Íslandsmeistaraliðið í 2. flokki karla tapaði 4-1 á útivelli í síðari leiknum gegn Derby County. Englandsmeistaraliði í flokki 18 ára og yngri sigraði samanlagt 6-2. Þetta er í fyrsta sinn sem ÍA/Kár/Skallagrímur leikur í þessari keppni. Og þetta er...
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verður gestur í þættinum „Með Loga“ sem sýndur verður á Sjónvarpi Símans á fimmtudagskvöld. Þar segir Skagakonan frá ýmsu áhugaverðu og þar á meðal þessi saga sem er hér spilaranum hér fyrir neðan. Þórdís Kolbrún er ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar. Og hún er yngsta konan sem er skipuð í ráðherraembætti...
Guðbjörg Bjartey Guðmunsdóttir fór fremst í flokki hjá öflugu sundliði ÍA sem tók þátt á Haustmóti Fjölnis nýverið. ÍA var með 21 keppenda á mótinu sem er fyrir 14 ára og yngri og var keppt í Laugardalshöll. Keppendur voru alls 375 frá 16 félögum. Keppendurnir efnilegu frá ÍA bættu árangur sinn í 78 sundum og...