Það ríkti einlæg gleði þegar 12 sjúkrarúm af gerðinni Eleganza voru afhent með formlegum hætti í Heilbrigðisstofnun Vesturlands í dag. „Ég vil fyrir hönd stofnunarinnar þakka stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands fyrir þetta frábæra framtak,“ sagði Jóhanna Fjóla Jóhannsdóttir forstjóri HVE þegar Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands afhentu stofnunni ný sjúkrarúm miðvikudaginn 23. október. Um miðjan...
Það var mikið markaregn í Eistlandi í dag þegar lið ÍA/Kára/Skallagríms gjörsigraði lið Levadia Tallinn í Unglingadeild UEFA. Lokatölur 12-1 og samanlagt 16-1 í báðum leikjunum en fyrri leikurinn fór 4-0 fyrir ÍA/Kára/Skallagrím á Akranesvelli. Staðan var 6-0 í hálfleik og leikmenn 2. flokks ÍA/Kára/Skallagríms héldu áfram í síðari hálfleik og bættu við 6 mörkum....
Í byrjun skólaárs var tekin sú ákvörðun að banna alfarið notkun snjallsíma á skólatíma í Grundaskóla á Akranesi. Um tímabundið bann var að ræða en nú hefur verið tekin sú ákvörðun að bannið verði í gildi þar til annað verður ákveðið. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var á foreldra barna í Grundaskóla. „Í...
Formlegur fundur með hugsanlegum fjárfestum um uppbyggingu gagnavers á Akranesi fór fram þann 25. september s.l. Þetta kom fram í máli Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar í gær. Fundurinn fór fram í Frístundamiðstöðinni við golfvöllinn á Akranesi. Alls voru 7 einstaklingar á fundinum frá fimm mismunandi aðilum. Sævar Freyr sagði að fundurinn hafi...
Sameiginlegt lið ÍA/Kára og Skallagríms leikur í dag síðari leikinn gegn Levadia Tallinn í Unglingadeild UEFA. Leikurinn fer fram í Eistlandi og hefst hann kl. 14:30 að íslenskum tíma. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á fésbókar og Twittersíðu ÍATV – sjá hér fyrir neðan ÍA / Kári / Skallagrímur vann fyrri leikinn örugglega 4-0 á...
Nemendur í Grundaskóla stóðu sig svipað og undanfarin ár í samræmdu prófunum í 4. og 7. bekk. Það sem stendur upp úr er að árangur nemenda í Grundaskóla er betri í stærðfræði en á landsvísu. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Grundaskóla. Í íslensku eru nemendur í Grundaskóla undir meðaltali á landsvísu – sem...
Í drögum að samgönguáætlun sem er til umfjöllunar á Alþingi Íslands kemur fram að gert er ráð fyrir 400 milljónum kr. í verkefni sem tengjast Faxabraut á Akranesi. Þetta kom fram í ávarpi Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra í gær í upphafi bæjarstjórnarfundar. Eins og áður hefur komið fram hefur Akraneskaupstaður farið fram á að ríkið...
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir hefur óskað eftir áframhaldandi tímabundnu leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi, eða til 1. september 2020. Þetta kom fram á fundi bæjarstjórnar Akraness í dag. Tillaga þess efnis að verða við ósk Gerðar var samþykkt með 7 atkvæðum en 2 bæjarfulltrúar sátu hjá. Gerður óskað eftir tímabundnu leyfi þann 30. ágúst s.l. og...
Bæjarstjórn Akraness fjallaði um málefni FVA á fundi sínum í dag. Eins og fram hefur komið hafa kennarar í Fjölbrautaskóla Vesturlands lýst yfir vantrausti á skólameistara FVA, Ágústu Elínu Ingþórsdóttur. Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) hafa hvatt yfirvöld menntamála til að leysa nú þegar það erfiða ástand sem skapast hefur við...
Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir hafa á undanförnum árum byggt upp hrossræktarbúið Skipaskaga við sveitabæinn Litlu-Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit. Skipaskagi er í fremstu röð á sviði hrossaræktar og er búið tilnefnt til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, sem ræktunarbú ársins 2019. Alls komu 30 slík hrossaræktarbú til greina í þessu vali og eftir standa 14 bú. Tilnefnd...