Á síðasta fundi skipulags – og umhverfisráðs Akraness var samþykkt að ganga að tilboðum vegna kaupa á útbúnaði í nýtt fimleikahús sem er í byggingu við Vesturgötu. Karl Jóhann Haagensen verkefnastjóri fór yfir þessi atriði á fundinum með nefndinni. Skipulags- og umhverfisráð samþykkti að ganga að tilboði Euro gymnastic fyrir tæplega 40,3 milljónir kr. og...
Viktor Óttar Guðmundsson, fimm ára gamall Skagamaður, fékk þann heiður að tendra jólaljósin á Akratorgi s.l. laugardag að viðstöddu fjölmenni. Þetta var einnig afmælisdagur Viktors Óttars. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Skólakór skipaður yngri nemendum Grundaskóla flutti nokkra jólasöngva en kórstjórinn er Valgerður Jónsdóttir. Jólatréð sem prýðir Akratorg næstu vikurnar kemur úr landi Stóru-Fellsaxlar...
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur miklar áhyggjur af stöðu mála hjá Járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Í pistli sem Vilhjálmur skrifar á heimasíðu VLFA segir formaðurinn m.a. að viðsjárverðir tímar eru framundan hjá fyrirtækinu vegna gríðarlegrar hækkunar Landsvirkjunnar á raforkuverði til Elkem. Pistil Vilhjálms má lesa í heild sinni með því að smella hér. Forstjóri...
Guðlaug við Langasand hefur á undanförnum mánuðum slegið í gegn hjá íbúum á Akranesi og ferðafólki. Yfir 30.000 einstaklingar hafa komið i Guðlaugina frá því hún opnaði með formlegum hætti. Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson eru með áhugavert innslag um Guðlaugina, Langasand og sjósund í nýjasta þættinum „Að Vestan“ sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni...
Íslenska ríkið var sýknað af kröfu Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn í morgun. Dómurinn er hér í heild sinni. RÚV greindi fyrst frá þessu í hádegisfréttum í dag. Ágústa Elín stefndi íslenska ríkinu vegna embættisfærslna Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra. Ágústa Elín telur að Lilja hafi ekki staðið rétt...
Sundkonan Brynhildur Traustadóttir heldur áfram að bæta afrek sín í sundlauginni. Skagakonan keppti á Norðurlandameistaramótinu sem fram fór í Færeyjum um s.l. helgi. Þar bætti Brynhildur árangur sinn í 800 metra skriðsundi og var hún nálægt því að komast á verðlaunapall – en hún endaði í fjórða sæti. Á undanförnum vikum hefur Brynhildur bætt árangur...
„Eftir strangar æfingar er ómetanlegt að slappa af í nöfnu minni, henni Guðlaugu,“ segir afreksíþróttakonan Guðlaug Edda Hannesdóttir. Þríþrautarkonan Guðlaug Edda hefur á undanförnum dögum og vikum stundað æfingar á Akranesi. Hún er nýflutt til Íslands frá Óðinsvéum í Danmörku, þar sem hún og unnusti hennar Axel Máni, áttu heima. Axel Máni er hugbúnaðarverkfræðingur og...
Þrír leikmenn úr röðum ÍA hafa verið valdir í æfingahópa fyrir yngri landslið Íslands í körfuknattleik. Hóparnir æfa í lok desember og yfir hátíðirnar sem eru framundan. Aron Elvar Dagsson er í æfingahóp fyrir U16 drengja en hann hefur áður fengið tækifæri með landsliði Íslands í sínum aldursflokki. Styrmir Jónasson og Þórður Freyr Jónsson voru...
,Heilt yfir má segja að aflabrögðin hafi verið alveg þokkaleg. Því er þó ekki að neita að það hefur verið strembið að eiga við þorskinn,“ segir Eiríkur Jónsson, Skagamaðuri og skipstjóri á ísfisktogaranum Akurey AK í viðtali sem birt er á heimasíðu útgerðarfélagsins Brims. Skipið fór frá Reykjavík á fimmtudagskvöld eftir um 130 tonna veiðiferð...
Dvalarheimilið Höfði fær varanlega rekstrarheimild fyrir fjórum hjúkrunarrýmum sem þar hafa verið rekin tímabundið sem biðrými fyrir Landspítalann. Þetta kemur fram í frétt á vef stjórnarráðsins. Þar segir að biðrýmin fjögur á Höfða hafi verið opnuð árið 2017 og séu ætluð fólki með gilt færnimat sem tilbúið sé til útskrifar af Landspítala en bíði eftir...