Skrifstofu Spalar á Akranesi hefur verið lokað. Síðasti starfsmaður félagsins sem átti og rak Hvalfjarðargöng, Anna Kristjánsdóttir, fylgdist með því þegar smiðir frá Trésmiðjunni Akri, Baldvin Þór Þórunnarson og Baldvin Þór Guðmundsson, tóku niður skiltið utan á húsinu s.l. mánudag. Gylfi Þórðarson, einn af frumkvöðlum Spalar og fyrrum framkvæmdastjóri félagins, mætti og var viðstaddur sögulega...
Svona leit Vesturgata 32 út í birtingu á þessum degi fyrir 43 árum, laugardaginn 27. nóvember árið 1976,“ skrifar Haraldur Sturlaugsson á fésbókarsíðu sína í dag. Haraldur býr í húsinu ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Pálmadóttur. Haraldur rifjar upp hvað átti sér stað á þessum degi en þessi atburður fór ekki framhjá íbúum Akraness á þessum...
Skagamaðurinn Gunnar Leifur Stefánsson og viðskiptafélagar hans ætla að blása enn meira lífi í ferðamennskuna á Akranesi þegar sól tekur að hækka á lofti á næsta ári. Þetta kemur á vef Skessuhorns. Farþegaskipið Akranes, sem tekur um 100 farþega, verður gert út frá Akranesi þar sem að sjóstangveiði og hvalaskoðun verða í aðalhlutverki. Skipið hét...
Skagamaðurinn Gísli Runólfsson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni AK 70, sigldi skipi sínu til hafnar í Neskaupstað í morgun með fullfermi af kolmunna. Um er að ræða fyrstu löndun vetrarins af þessari uppsjávartegund en aflinn var 1.800 tonn. Á vef Síldarvinnslunnar segir Gísli að skipverjar á Bjarna Ólafssyni hafi byrjað vertíðina um svipað leyti fyrir ári...
Skagamennirnir Arnór Sigurðsson og Ísak Bergmann Jóhannesson eru efstir á lista yfir efnilegustu íslensku leikmennina í tölvuleiknum Football Manager 2020. Þetta kemur fram á vefsíðunni Íslendingavaktin og fotbolti.net greinir frá. Tölvuleikurinn hefur notið gríðarlegra vinsælda í mörg ár. Leikurinn gengur út á það sá sem spilar setur sig í spor knattspyrnustjóra í hörðum heimi atvinnumennskunnar...
Þetta verður sannkölluð hátíðarstund í upphafi aðventu í Vinaminni laugardaginn 30. nóvember kl. 14:00. Dimitri Þór Ashkenazy klarínettuleikari, Þóra Einarsdóttir sópransöngkona og Tómas Guðni Eggertsson píanóleikari flytja fjölbreytta dagskrá. Þeim til fulltingis verður Kór Akraneskirkju undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar. Á tónleikunum m.a. má hlýða á tónlist eftir Franz Schubert, J. S. Bach, Leonard Bernstein og Wolfgang Amadeus Mozart. Dimitry er...
Það gengur vel í útgerðinni hjá Runólfi Hallfreðssyni ehf. sem gerir út Bjarna Ólafsson AK 70. Samkvæmt lista sem birtur er í bókinni 300 stærstu fyrirtæki landsins, sem kom út í gær, eru starfsmenn Runólfs Hallfreðssonar ehf. með hæstu laun á landinu að meðaltali. Mannlíf greindi fyrst frá á vef sínum. Í listanum í bókinni...
Sigrún Vigdís Gylfadóttir og Karl Ingi Sveinsson eru til umfjöllunar í sjónvarpsþættinum „Að Vestan“ sem sýndur er á N4. Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson tóku hús á þeim hjónum í Kalastaðakoti í Hvalfjarðarsveit. Sigrún Vigdís og Karl Ingi fluttu nýverið á æskuslóðir Karls Inga. Gamalt Kaupfélagshús sem er við sjávarsíðuna í Hvalfirði hefur vakið...
Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum að veita 500.000 kr. í samstarfsverkefnis við Íþróttabandalag Akraness (ÍA). Verkefnið felst í sameiginlegum kaupum á endurskinsmerkjum sem gefin verða til allra barna á Akranesi. Heildarkostnaður verkefnisins er 1 mkr. sem skiptist á milli Akraneskaupstaðar og ÍA. Endurskinsmerkin verða merkt Akraneskaupstað og ÍA.
Íslandsmeistaramótaröðinni í grjótglímu fór fram um s.l. helgi í Klifurhúsinu í Reykjavík. Alls tóku sjö keppendur frá ÍA þátt og með þeim var fjölmennt fylgdarlið foreldra og forráðamanna.. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klifurfélagi ÍA. Þetta var fjórða og jafnframt lokamótið í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn. Það var því mikil spenna í loftinu áður en...