• Töluverðar breytingar verða á leikmannahóp mfl. ÍA í knattspyrnu karla á næstu leiktíð í PepsiMax-deildinni. Einar Logi Einarsson, einn leikreyndasti leikmaður mfl. ÍA í knattspyrnu, verður ekki með liðinu á næstu leiktíð. Einar Logi segir í samtali við skagafrettir.is að valið hafi staðið á milli aukavinnu og fótboltans. „Ég starfa sem sjúkraflutningamaður meðfram störfum mínum...

  • Ungir kylfingar úr Golfklúbbnum Leyni hafa á undanförnum misserum verið með fjáröflun sem hefur glatt Skagamenn nær og fjær. Hópurinn er að safna sér fyrir æfingaferð sem farin verður í lok mars á næsta ári og er stefnt að því að um 20 iðkendur fari í ferðina. Fjáröflunin hefur gengið vel á undanförnum árum og...

  • Ungur og efnilegur landsliðsmaður úr röðum Stjörnunnar úr Garðabæ mun leika með liði ÍA í 2. deildinni á næstunni. Gengið hefur verið frá venslasamningi á milli Stjörnunnar og ÍA að Friðrik Anton Jónsson leiki með Skagamönnum. Friðrik sem er fæddur árið 2002 kom inní meistaraflokkshóp Stjörnunnar fyrir þetta tímabil. Friðrik hefur verið fastamaður í yngri...

  • Skagakaffi við Akratorg er til sölu. Þetta kemur fram á vef fyrirtækjasölunnar Kompaní. Skessuhorn greindi fyrst frá. Í auglýsingunni kemur m.a. fram að veltan sé um 2,5 milljónir kr. á mánuði eða 30 milljónir kr. á ári. „Eigendur hafa nýverið fjárfest umtalsvert í tækjum og búnaði. Strax og án nokkurs tilkostnaðar eru miklir möguleikar fyrir...

  • Það er ekki oft sem að skagafrettir.is fjalla um málefni sem flokka má undir „erlendar“ fréttir en í þessu tilviki verður gerð undantekning. Það var ekki hægt að sleppa þessu og það er einhver Skagatenging í þess öllu saman. Vinahópur, sem tengist m.a. golfíþróttinni sterkum böndum, hefur á undanförnum árum verið með árlegt matarboð þar...

  • Kosið var í stjórn Golfsambands Íslands í dag á þingi GSÍ sem fram fór í Laugardalshöll. Alls voru 11 einstaklingar sem gáfu kost á sér í stjórnina og 10 þeirra voru kjörnir. Viktor Elvar Viktorsson bauð sig fram og fékk hann 138 atkvæði af alls 141 mögulegum. Glæsileg innkoma hjá Skagamanninum. Frá þessu er greint...

  • Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis fer fram þriðjudaginn 3. desember í Frístundamiðstöðinni við Garðavöll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Leynis. Hefðbundinn aðalfundarstörf samkvæmt 8. gr. laga Golfklúbbsins Leynis. Aðalfundurinn hefst kl. 19:30 og fer fram eins og áður segir fram þriðjudaginn 3. desember 2019. Þetta er í fyrsta sinn sem aðalfundur Leynis fer fram í...

  • „Við unnum Sunshine State Conference keppnina. Þetta er í fyrsta sinn sem skólinn fer í úrslit og í fyrsta sinn sem þetta lið vinnur titil. Næst á dagskrá er að fara í NCAA keppnina eðe Nationals. Þá förum við og keppum við lið úr öðrum deildum. NCAA tournament er eins og bikarkeppnin heima á Íslandi....

  • Akraneskirkja leitar að lykilaðila til þess að sinna starfi skrifstofustjóra. Þetta kemur fram í starfsauglýsingu á vef Capacent. Skrifstofustjóri er leiðandi í þjónustu við sóknina og hefur yfirumsjón með færslu bókhalds, innkaupum, uppgjörum og öðrum fjármálatengdum verkefnum auk þess að vera helsti tengiliður vegna útfararþjónustu kirkjunnar. Starfið krefst mikilla samskipta og ríkrar þjónustulundar. Í boði...

  • Ísak Örn Elvarsson skrifar: „Það var markmið hópsins að komast áfram úr þessum riðli og tilfinningin er því frábær. Við höfum lagt mikið á okkur til að komast í milliriðilinn og það tókst,“ segir Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson við skagafrettir.is. Ísak Bergmann og Jón Gísli Eyland Gíslason léku stórt hlutverk með U-19 ára landsliði Íslands...

Loading...