Það var gríðarleg stemning á leik ÍA og Stjörnunnar í PepsiMax-deild karla sem fram fór í dag á Norðurálsvelli. Sigurganga Skagamanna heldur áfram og er liðið efst mð 16 stig eftir 5 umferðir. Einar Logi Einarsson og Steinar Þorsteinsson skoruðu mörk ÍA í dag og hér má sjá myndasyrpu frá gleðinni frá skagafrettir.is.
Sævar Freyr Þráinsson er glerharður stuðningsmaður ÍA. Bæjarstjórinn hefur á undanförnum árum setið í stjórn Knattspyrnufélags ÍA og tekið þátt í því uppbyggingarstarfi sem er að blómstra þessa dagana. „Knattspyrnan er sálin í bæjarfélaginu og það lyftist allt þegar vel gengur. Ég finn það svo sannarlega í mínu starfi sem bæjarstjóri og það er virkilega...
Einar Logi Einarsson skoraði fyrra mark ÍA í 2-0 sigri liðsins gegn Stjörnunni í PepsiMax-deild karla í kvöld á Norðurálsvellinum. Varnarmaðurinn hefur nú skorað í tveimur leikjum í röð en hann skoraði síðast fyrir sjö árum í efstu deild á Íslandi. Einar var að vonum glaður eftir leikinn í kvöld eins og sjá má í...
Aníta Sól Ágústsdóttir og Veronica Líf Þórðardóttir skrifuðu nýverið undir nýjan samning við Knattspyrnufélag ÍA. Aníta og Veronica hafa báðar leikið með meistaraflokki ÍA frá árinu 2013 – þrátt fyrir ungan aldur. Þær eru því burðarásar í ungu liði ÍA og fagnaðarefni að þær taki slaginn með ÍA í uppbyggingarfasanum sem er framundan. Aníta Sól...
Hestamannafélagið Dreyri á Akranesi hefur ákveðið að stækka fyrirhugaða reiðskemmu sem reist verður á Æðarodda á eigin kostnað. Tillaga þess efnis var samþykkt í bæjarráði Akraness. Forráðamenn Dreyra vilja stækka skemmuna um 125 fermetra og nýta reynslu hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi í þessum efnum. Í samkomulagi milli milli Akraneskaupsstaðar og hestamannafélagsins Dreyra sem undirritað var...
Sigríður Steinunn Jónsdóttir hefur látið af störfum sem verkefnastjóri atvinnumála hjá Akraneskaupstað. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Akraness frá 16. maí s.l. Sigríður Steinunn var ráðin í starfið s.l. haust og hóf störf þann 1. desember s.l. Staðan er ný hjá Akraneskaupstað og sóttu 27 aðilar um starfið þegar það var auglýst. Síðasta verkefni...
ÍA og Grindavík áttust við í kvöld í Inkasso-deild kvenna á Norðurálsvellinum á Akranesi. Aðstæður verða vart betri en í kvöld. Sól og blíða. Byrjunarlið ÍA gegn Grindavík í @Inkassodeildin í kvöld. Bein útsending hefst á https://t.co/qrLRMLYNC2 klukkan 19:00. #fotboltinet #floridaskaginn pic.twitter.com/ICg5buqDDT— ÍATV (@ia_sjonvarp) May 24, 2019 Leikmenn beggja liða lögðu sig fram en færin...
Það er óhætt að segja að veðrið hafi leikið við Skagamenn á undanförnum dögum og vikum. Milt veður og nánast logn upp á hvern einasta dag. Sólin hefur látið sjá sig af og til. Þar á meðal í dag, föstudaginn 24. maí. Það má með sanni segja að sumardagarnir séu nú þegar orðnir fleiri en...
Eins og fram hefur komið hefur rekstur Fjöliðjunnar á Akranesi verið í „dvala“ á undanförnum vikum eftir að eldur kom upp í starfsstöð Fjöliðjunnar við Dalbraut. Það horfir til betri vegar hjá starfssfólki Fjöliðjunnar. Bráðlega verður starfsstöðin opnuð á nýjum stað. Ráðstafanir til að tryggja áframhaldandi starfsemi Fjöliðjunnar eftir eldsvoða. Bæjarráð samþykkti nýverið að ganga...
„Ég vil hvetja alla Skagamenn til að fjölmenna á leikinn og styðja stelpurnar. Við eigum ungt og efnilegt kvenna lið og það verðskuldar góðan stuðning. Þessir ungu leikmenn stefna óhræddar á toppbaráttuna og öflugur stuðningur frá Skagamönnum getur breytt miklu fyrir liðið,“ segir Helena Ólafsdóttir þjálfari kvennaliðs ÍA í knattspyrnu. Upphafið á keppnistímabilinu í Inkasso-deildinni...