„Mér líst ótrúlega vel á þetta verkefni og allur hópurinn er á sama máli. Þetta verður skemmtileg sumar,“ segir Bryndís Rún Þórólfsdóttir fyrirliði kvennaliðs ÍA. Bryndís Rún verður í stóru hlutverki í hinu unga liði ÍA. Bryndís kom til Íslands eftir að hafa stundað nám og leikið knattspyrnu með University of the Pacific í Stockton....
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir er nýr leikmaður hjá ÍA sem leikur í Inkasso-deild kvenna í sumar á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Hún er fædd árið 2003 og hefur leikið upp alla yngri flokka Vals. Ólöf Sigríður verður 16 ára á þessu ári. Ólöf Sigríður hefur leikið alls 14 landsleiki með U-16 og U-17 ára landsliðum Íslands og...
Skagamaðurinn Einar Viðarsson mun hefja störf hjá Körfuknattleikssambandi Íslands þann 1. ágúst næst komandi. Einar hefur starfað sem kennari í Grundaskóla í áraraðir samhliða því að vera ökukennari. Tveir af lykilstarfssmönnum KKÍ hætta störfum á næstunni. Einar og Snorri Örn Arnaldsson voru ráðnir í þeirra stað. Mikill áhugi var á störfunum hjá KKÍ en um...
Skagamenn verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu. ÍA sigraði lið Augnabliks í dag í 32-liða úrslitum keppninnar. Leikurinn fór fram í knattspyrnuhúsinu Fífunni í Kópavogi. Lokatölur 3-0. Steinar Þorsteinsson, Óttar Bjarni Guðmundsson og Viktor Jónsson skoruðu mörk ÍA.
Helena Ólafsdóttir þjálfari mfl. kvenna er að hefja sitt þriðja keppnistímabil sem þjálfari liðsins. Helena er einn reynslumesti þjálfari landsins en hún stýrði m.a. A-landsliði kvenna um tíma og hefur einnig þjálfað lið Noregi. Á ferli sínum sem leikmaður var Helena í fremstu röð og lék fjölmarga leiki með A-landsliðinu. Helena segir að undirbúningur ÍA...
„Það eru allir mjög spenntir fyrir sumrinu, leikmannahópurinn er mjög samstilltur og við erum allir „peppaðir“ fyrir tímabilið í Pepsi-Maxdeildinni,“ segir Árni Snær Ólafsson markvörður og fyrirliði ÍA. Árni segir að leikmenn liðsins finni vel fyrir þeim góða meðbyr sem sé til staðar í samfélaginu á Akranesi. „Það er geggjuð stemning í bæjarfélaginu fyrir liðinu...
Nýtt hús var sett upp við Guðlaugi við Langasand í morgun. Í húsinu verður aðstaða fyrir starfsmenn og salernisaðstaða fyrir gesti. Húsið var áður skrifstofa hjá Golfklúbbnum Leyni – en húsinu hefur verið breytt töluvert til þess að þjóna nýju hlutverki. Starfsmenn Akraneskaupstaðar fengu ýmsa fagmenn til þess að koma húsinu á sinn stað í...
Aðsend grein frá Gísla Gíslasyni. Á Sólmundarhöfða stendur lítið timburhús og skemma sem áður var hlaða. Árnahús er það nefnt, eflaust eftir Árna Sigurðssyni, en hann og Guðrún Þórðardóttir byggðu húsið. Einhver fleiri nöfn hafa verið notuð um húsið – en höldum okkur við Árnahús. Árnahús var samkvæmt gögnum byggt árið 1901 og því...
„Með því að gerast dómari verður þú hluti af sterkum og góðum félagsskap. Það eru ýmis fríðindi sem fylgja þessu. Þar má nefna að dómarar fá frítt inn á alla leiki á Íslandi, þar á meðal landsleiki,“ segir hinn 22 ára gamli Elvar Smári Arnarsson. Skagamaðurinn hvetur sem flesta að kynna sér þá möguleika og...
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands stendur fyrir söfnun á sjúkrarúmum fyrir Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE). Hollvinasamtökin voru stofnuð árið 2014 og eru nú tæplega 300 manns í samtökunum. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, er einn af stofnendum Hollvinasamtaka HVE. Hér er hann með um 900 bréf sem fóru í pósti til fyrirtækja á Vesturlandi nýverið. Stjórn Hollvinsamtakanna hefur...