Kvennalið ÍA landaði sínum fyrsta sigri í B-deild Lengjubikarkeppni KSÍ með 4-1 sigri gegn HK/Víkingi. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni. Gestirnir komust yfir í fyrri hálfleik en Ylfa Laxdal Unnarsdóttir jafnaði metin fyrir ÍA á 53. mínútu. Þá var komið að Ólöfu Sigríði Kristinsdóttur sem skoraði þrennu á síðustu 20 mínútum leiksins. Þetta var fyrsti sigur ÍA...
Hannes S. Jónsson formaður Körfuknattleikssambands Íslands, sem er búsettur á Akranesi setti í dag ársþing KKÍ. Í ræðu sinni kom Hannes víða við en hann hefur miklar áhyggjur af stöðu sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni. „Eitt af því sem gerir starf sjálfboðaliðans enn erfiðara í dag er neikvæð samfélagsmiðlaumræða,“ sagði Hannes m.a. í ræðu sinni. Sjálfboðaliðinn gefst...
Skagamaðurinn Andri Jónsson var fyrirliði Íslands í 3-0 sigri landsliðsins gegn Írum á Special Olympics World Games sem fram fara í Abu Dhabi. Andri fagnaði 31 árs afmæli sínu í dag og er dagurinn því eftirminnilegur fyrir Andra. Guðmundur Hafliðason skoraði tvö mörk og Gabriel Óskar Halldórsson eitt í leiknum í dag. Ísland hefur náð frábærum...
Aron Elvar Dagsson var í dag valinn í U-15 ára landsliðið í körfuknattleik karla. Það eru ár og dagar síðan Skagamenn áttu fulltrúa síðast í yngri landsliðum Íslands og greinilegt að öflugt yngri flokka starf félagsins er að skila sér. Aron er í 18 manna hópnum sem fer til Kaupmannahafnar í Danmörku í sumar á Copenhagen-Inviational...
Leikmenn og forráðamenn Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi eru ekki sáttir þrátt fyrir 3-0 sigur liðsins í kvöld og toppsætið í riðlinum í Lengjubikarkeppni KSÍ. Ástæðan er einföld. Leikur sem átti að fara fram á laugardag kl. 16.00 fer ekki fram þar sem að mótherjarnir ná ekki að safna í lið. Um er að ræða leik...
Framsækið samstarfsverkefni Grundaskóla og Krabbameinsfélgs Akraness og nágrennis gerir það að verkum að nemandi sem getur ekki sótt skólann vegna veikinda getur tekið þátt í náminu með aðstoð tækninnar. Vélmenni sem ber nafnið „Nærvera“ kemur til aðstoðar í slíkum tilvikum en það er hannað til þess að aðstoða nemendur sem geta ekki sótt skóla vegna langvarandi...
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar ætlar að kippa ýmsu í lag hvað varðar umferðaröryggi í Hvalfjarðargöngunum. Þetta kemur fram í bréfi sem Bergþóra skrifaði til Bæjarstjórnar Akraness. Fyrir skemmstu lýsti bæjarstjórnin yfir verulegum áhyggjum af stöðu öryggismála í göngunum einungis örfáum mánuðum eftir að Vegagerðin tók við rekstrinum og mönnuð vakt við göngin var lögð af. Í...
„Loksins ! Einkunnarorð og heiti á fyrirlestrum Arndísar Höllu, með hennar eigin skrift. Nafnið er einnig hennar, eins og hún merkti blöð sín og bækur. Mér líður mjög vel með þetta,“ skrifar Jóhannes Finnur Halldórsson á fésbókarsíðu sína í dag. Jóhannes skartar nú fallegu húðflúri á vinstri upphandlegg til minningar um dóttur sína, Arndísi Höllu,...
„Á meðan ég fer að leika mér í golfherminum hjá Golfklúbbnum Leyni þá tekur hún Ásta mín völdin í Galleríinu,“ segir listmaðurinn Bjarni Þór Bjarnason við Skagafréttir. Bjarni Þór, sem var valinn Skagamaður ársins 2018, á Þorrablóti Skagamanna í janúar er afar ánægður með þá stemningu sem myndast í galleríinu við Skólabraut 22 á laugardögum....
Það var góð mæting í gær þegar starfsfólk Landmælinga Íslands bauð gestum í göngutúr um Akranes. Verkefnið var hluti af vetrarhátíð Írskra daga sem hófust í gær fimmtudag. Guðni Hannesson og Rannveig L. Benediktsdóttir fóru fyrir hópnum sem var vel skipaður eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var í gær. Guðni og...