Kári hefur fengið góðan liðsstyrk í 2. deildinni í sumar í knattspyrnu karla. Skagamaðurinn Ragnar Leósson hefur ákveðið að leika með liðinu en hann kemur frá ÍA. Þetta kemur fram á fotbolti.net. Ragnar er 27 ára gamall og hefur komið víða við á ferlinum en hann lék með ÍA í Inkasso-deildinni í fyrra. Hann var árið...
Opið bréf til Bæjarstjórnar Akraness Í dag, föstudaginn 15. mars hefst loftslagsverkfall á Akranesi, innblásið af hinni 16 ára sænsku Gretu Thunberg. Akranes fer þá í hóp yfir 1.600 staða í 105 löndum þar sem nemendur og aðrir hafa mótmælt slæmum vinnubrögðum stjórnvalda um allan heim varðandi loftslagsmál. Nú er verið að vinna í umhverfisstefnu...
Guðlaugin við Langasand hefur slegið í gegn. Líklega hafa um 3000 gestir nýtt sér laugina frá opnun hennar. Bæjarráð samþykkti í dag að stórauka opnuartíma Guðlaugar. Stefnt er að því að bæta aðstöðu og aðgengi á svæðinu enn frekar. Akraneskaupstaður hefur unnið markvisst að því að bæta úr aðstöðu við laugina sem fer að vera...
Í kvöld bárust risafréttir úr herbúðum Knattspyrnufélags ÍA. Stjórn félagsins framlengdi núverandi samningi við þjálfara karlaliðsins til næstu fimm ára. „Ég er mjög ánægður með það mikla traust sem mér er sýnt með því að framlengja samningin minn við ÍA. Þetta er félagið sem ég er alinn upp í og ég hef alltaf litið á...
Það stendur mikið til á Akranesi um helgina þegar landsmót barna – og unglingakóra fer fram á Akranesi. Skólakór Grundaskóla er gestgjafi mótsins en vel á þriðja hundrað börn – og ungmenni ætla að þenja raddböndin á Akranesi dagana 15.-17. mars í Grundaskóla. Mót eins og þessi eru haldin annað hvert ár á mismunandi stöðum...
Ursula Árnadóttir er nýr formaður Rauða krossins á Akranesi og Hvalfjarðarsveitar. Alda Vilhjálmsdóttir, sem hefur gegnt formennsku í áraraðir, gaf ekki kost á sér á aðalfundinum sem fram fór 18. febrúar. Alda Vilhjálmsdóttir er hér til vinstri en nýr formaður er Ursula Árnadóttir. Tilgangur Rauða krossins er að vernda líf og heilsu og tryggja virðingu...
Skagakonan Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tekur við lyklavöldum í dómsmálaráðuneytinu af Sigríði Andersen. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins greindi frá þessu rétt í þessu. Þórdís Kolbrún tekur við embættinu vegna ákvörðunar Sigríðar um að stíga til hliðar úr ráðherrastóli í kjölfar dóms Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem meðal annars var fjallað um skipun dómara í...
Skagamennirnir Hörður Ingi Gunarsson og Stefán Teitur Þórðarson fá tækifæri til að sýna sig og sanna fyrir nýjum landsliðsþjálfurum U-21 árs landsliðs Íslands á næstunni. Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsþjálfarar U21 karla, völdu þá Hörð og Stefán í hópinn sem mætir Tékklandi og Katar. Um er að ræða fyrstu leiki liðsins undir stjórn...
Tveir Skagamenn eru í A-landsliðshóp karla sem tekur þátt í leikjunum gegn Andorra og Frakklandi í undankeppni EM 2020 í knattspyrnu karla. Erik Hamren, landsliðsþjálfari, tilkynnti um valið í dag. Arnór Sigurðsson (CSKA Moskva) og Björn Bergmann Sigurðarson (Rostov) eru í hópnum en þeir leika báðir með liðum í Rússlandi. Báðir leikirnir fara fram ytra....
Velferðar- og mannréttindasvið er næst stærsta svið Akraneskaupstaðar. Um 17,5% af útsvarstekjum bæjarins fara í þann málaflokk. Í myndbandinu hér fyrir neðan er málaflokkurinn útskýrður. Þetta þriðja myndbandið af alls fimm þar sem að fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar er útskýrð með einföldum hætti. Myndböndin veita upplýsingar um einstaka málaflokka innan stjórnsýslunnar, þ.e. skipulags- og umhverfismál, menningar- og...