• Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir, íþróttamaður ársins 2018 hjá ÍA, hefur leik þann 7. mars á Women’s NSW Open sem fram fer á Queanbeyan Golf Club rétt við höfuðborgina Canberra. Mótið er sameiginlegt verkefni hjá LET Evrópumótaröðinni og ALPG / áströlsku LPGA mótaröðinni. Eins og nafnið gefur til kynna er sterk tenging við Nýja-Sjálandi í titli...

  • Skagamaðurinn Hafliði Guðjónsson, fyrrum aðstoðarskólastjóri Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, fær 4,5 milljónir í bætur frá íslenska ríkinu. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu þann 1. mars s.l. Hér má lesa dóminn í heild sinni.  Hafliði fær bæturnar vegna fjártjóns sem hann varð fyrir í kjölfar ólögmætrar uppsagnar úr starfi aðstoðarskólameistara FVA. Hafliða var vikið úr tímabundnu starfi...

  • Menningarlífið á Akranesi heldur áfram að blómstra og í þessari viku stendur Listfélagið Kalmar fyrir tónleiknum í Vinaminni sem kallast Vetrarljós. Hin landsþekkta söngkona, Guðrún Gunnarsdóttir, flytur lög úr ýmsum áttum, af nýju plötunni sinni Eilífa Tungl, lög eftir Cornelis Vreejsvik og önnur gömul og góð af ferilskrá söngkonunnar. Hljómsveitina skipa þeir: Gunnar Gunnarsson píanó,...

  • Matthías Leó Sigurðsson hefur á undanförnum misserum vakið athygli fyrir frábæran árangur í keiluíþróttinni. Matthías tók þátt um liðna helgi á alþjóðlegu móti í Danmörku. Þar náði Skagamaðurinn ungi öðru sæti en hann lék til úrslita gegn heimamanninum Tobias Kastfelt Bryde. Matthías er 12 ára gamall og er lengst til hægri á myndinni en sem...

  • Kór Akraneskirkju verður með tónleika í Guðríðarkirkju fimmtudaginn 14. mars. Þar ætlar kórinn að kynna geisladiskinn Þýtur í stráum sem kom út í desember s.l. Á diskinum má finna úrval kórlaga sem kórinn hefur flutt í gegnum tíðina.  Nánari upplýsingar um viðburðinn má nálgast hér.  Textar eru á íslensku og má finna ljóð og þýðingar...

  • Breytingar verða gerðar á opnunartíma þjónustuvers bæjarskrifstofunnar frá og með 18. mars 2019. Bæjarráð Akraness samþykkti tillögu þess efnis þann 27. febrúar s.l. Frá og með 18. mars verður opnunartími í þjónustuveri frá 9-15 mánud. – fimmtud. en á föstudögum verður opið til 14.00. Aðalbreyting er sú að opið verður í hádeginu og einnig verður...

  • Það gengur á ýmsu á hafinu hjá sjómönnum eins og sjá má í þessu myndbandi sem Gísli Gíslason birtir á fésbókinni. Myndbandið er tekið úr stýrishúsi Bjarna Ólafssonar sem er á kolmunnaveiðum. Eins og sjá má er veðrið ekki gott og bræla á miðunum. Kolmunni er ein af 10 mest veiddu fisktegundum í heimi. Stofninn...

  • Skagamaðurinn Jakob S. Sigurðsson og Skýr frá Skálakoti sigruðu fimmganginn annað árið í röð í Meistaradeildinni í hestamennsku  sem fram fór s.l. föstudag. Keppnin var afar spennandi og munaði aðeins 0,03 stigum á fyrsta og öðru sætinu. Jakob er efstur í einstaklingskeppninni í Meistaradeildinni með 32 stig en þar á eftir kemur Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir með...

  • Mikill gróska er í pílukastíþróttinni hér á landi. Pílufélag Akraness var stofnað nýverið og nú er komið að aðalfundi félagsins sem fram fer mánudaginn 4. mars í aðstöðu Keilufélagsins í kjallaranu á íþróttahúsinu við Vesturgötu. Markmið félagsins er að iðka pílukast, glæða áhuga á pílukastíþróttinni og stuðla að bættri aðstöðu til iðkunar hennar á Akranesi....

  • Bæjarráð hefur samþykkt að kaupa land við Æðarodda/Miðvog fyrir um 8 milljónir kr. Um er að ræða land sem var í eigu Þorgeirs og Helga/Smellinn/BM Vallá. Akraneskaupstaður og Hestamannafélagið Dreyri skrifuðu í maí árið 2018  undir viljayfirlýsingu um byggingu á reiðskemmu sem staðsett verður við Æðarodda. Landið sem Akraneskaupstaður var að kaupa verður notað að hluta...

Loading...