Rekstur Guðlaugar við Langasand mun falla undir ábyrgðarsvið forstöðumanns íþróttamannvirkja. Frá því var greint á fundi Skóla- og frístundaráðs á dögunum. Gert er ráð fyrir að laugin verði opnuð fyrir almenning á næstunni. Samkvæmt heimildum Skagafrétta er áætlað að kostnaðurinn við byggingu Guðlaugar verði rétt rúmlega 80 milljónir kr. Og er það nokkuð nálægt þeirri áætlun...
Skagamaðurinn Heimir Bergmann, eigandi fasteignasölunnar Lögheimili, segir að margir íbúar á Akranesi hafi sýnt því áhuga að kaupa eignir á Spáni. „Við höfum fengið margar fyrirspurnir um eignir á Spáni. Til þess að bregðast við þeim áhuga verður kynning á Akranesi á húseignum á Spáni. Kynningin fer fram á skrifstofu Lögheimilis á Akranesi við Skólabraut 26...
Brynhildur Traustadóttir, sundkona frá Akranesi, fór fremst í flokki um helgina hjá Skagamönnum á Íslandsmótinu í 25 metra laug. Brynhildur landaði þrennum verðlaunum. Þar stóð upp úr að hún fékk gullverðlaun í 1500 metra skriðsundi og náði þar að auki lágmörkum í tveimur sundum á Norðurlandameistaramótið. Keppendur frá ÍA áttu í heildina frábæra keppnishelgi. Alls...
Það var góð stemning þegar starfsfólk og eigendur Ritari fögnuðu 10 ára starfsafmæli fyrirtækisins nýverið í höfuðstöðvum Ritari við Esjubraut 49. Hjá fyrirtækinu starfa í dag 11 manns og hefur Ritari stækkað jafnt og þétt á undanförnum tíu árum. Hjónin Ingibjörg Valdimarsdóttir og Eggert Herbertsson eru eigendur Ritari. Ingibjörg er hér lengst til hægri ásamt...
Árgangamót ÍA fór fram í dag í Akraneshöll. Að venju var glæsileg mæting og rúmlega 20 lið tóku þátt. Nánar verður greint frá úrslitum mótsins hér á skagafrettir.is síðar en hér eru myndir sem teknar voru á mótinu.
Þann 10. nóvember 2016 var fréttavefurinn skagafrettir.is opnaður með mjög svo óformlegum hætti. Skagafréttir eru því tveggja ára í dag. Þegar verkefninu var ýtt úr vör á sínum tíma var haldið af stað út í óvissuna. Við vissum ekkert hvernig Skagamenn nær og fjær myndu taka á móti því sem við höfum fram að færa....
Skagamaðurinn Birgir Leifur Hafþórsson hefur leik laugardaginn 10. nóvember á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar. Keppt er á Lumine golfsvæðinu við Tarragona rétt utan við Barcelona á Spáni. Alls verða leiknir sex hringir og alls hafa 156 keppendur tryggt sig inn á lokaúrtökumótið og koma þeir frá 26 löndum. Birgir Leifur hefur leik kl. 9.35 að íslenskum tíma...
„Ég var með mikla þörf fyrir að hreyfa mig þegar ég var barn. Ég byrjaði að ganga á höndum þriggja ára gamall – og leikskólakennararnir sögðu að ég gengi meira á höndum en fótum. Á Akranesi prófaði ég flestar íþróttir eins og gerist og gengur. Mér fannst einfaldlega skemmtilegra að fá að hoppa og skoppa...
Skagamaðurinn Ólafur Hallgrímsson er í afar áhugverðu viðtali á vefnum lifidernuna.is. Þar segir Ólafur frá því að hann sé á leið í háskólanám eftir fjörtíu ára starfsferil sem sjómaður. Ólafur hefur komið víða við á starfsferli sínum sem sjómaður og segir hann frá því helsta í þessu stórskemmtilega viðtali. Ólafur var lengi búsettur í Noregi...
Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson heldur áfram að skrifa stóra kafla í knattspyrnusögu Akraness. Í kvöld skoraði hinn 19 ára gamli leikmaður mark í Meistaradeild Evrópu fyrir CSKA Moskvu. Arnór jafnaði metinn fyrir rússneska liðið með glæsilegu skoti úr vítateignum. Markið má sjá hér fyrir neðan. Arnór er yngsti íslenski leikmaðurinn sem nær að skora í leik...