Bæjarstjórn Akraness fjallaði á fundi sínum í gær um þann merkisáfanga sem verður í lok september 2018 – þegar Spölur skilar Hvalfjarðargöngum til ríkisins tveimur áratugum eftir að þau voru opnuð. Bæjarstjórnin sendi eftirfarandi ályktun frá sér í gær. Bæjarstjórn Akraness fagnar þeim merkisáfanga sem verður í lok þessa mánaðar, þegar Spölur skilar Hvalfjarðargöngum fullfjármögnuðum...
Það var mikið um dýrðir þegar leikmenn ÍA, forsvarsmenn félagsins, þjálfarar og stuðningsmenn settu punktinn fyrir aftan frábært keppnistímabil í knattspyrnunni á Akranesi. Myndirnar sem eru hérna fyrir neðan segja allt sem segja þarf. Auglýsing Auglýsing
Lokahóf meistaraflokka karla og kvenna hjá Knattspyrnufélagi ÍA fór fram um s.l. helgi. Þar voru ýmsar viðurkenningar veittar á skemmtilegu kvöldi sem fram fór í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka. Leikmenn ársins í Inkasso-deild kvenna og karla hjá ÍA 2018 eru þau Unnur Ýr Haraldsdóttir og Arnar Már Guðjónsson. Efnilegustu leikmenn ársins voru einnig valdir en það eru...
Skagamennirnir Ísak Bergmann Jóhannesson og Oliver Stefánsson eru þessa stundina staddir í borginni Farum í Danmörku. Þeir munu æfa með FC Nordsjælland í eina viku en liðið er í efsta deild þar í landi. Félagið óskaði eftir því að fá örfættu frændurna frá Akranesi til reynslu. Ísak Bergmann er fæddur árið 2003 og Oliver er fæddur...
Guðbjörg Árnadóttir hlaut Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2017 fyrir framúrskarandi framlag til menningarmála á Akranesi. Á vef Akraneskaupstaðar er óskað eftir tilnefningum fyrir árið 2018. Smelltu hér til að senda inn tilnefningu fyrir árið 2018: Menningarverðlaunin verða afhent á menningarhátíðinni Vökudögum sem fram fer dagana 25. október – 4. nóvember. Akraneskaupstaður hvetur bæjarbúa til að nýta sér...
Heilbrigðisstofnun Vesturlands mun taka þátt í tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma. Samkomulag þess efnis var undirritað í gær. HVE lyflækningardeild var valið úr hópi umsækjenda um þátttökuverkefni ríkisins og BSRB. Markmiðið hjá HVE verður að stytta vinnutíma allra starfsmanna á lyflækningadeild á Akranesi um 10% – en verkefnið hófst 1. september s.l. og stendur fram til 31....
Á fundi bæjarráðs Akraness þann 24. september var samþykkt að fela bæjarstjóra að ganga til viðræðna við forsvarsmenn Golfklúbbsins Leynis um kaup á 40% eignarhluta Leynis í vélageymslu við Garðavöll. Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Leynis, segir að málið hafi verið í undirbúningi í nokkurn tíma. „Þetta er hluti af uppbyggingu á Garðavelli í tengslum við nýja...
Í nýrri samgönguáætlun sem Samgöngu – og sveitarstjórnarráðuneytið birti nýverið er gert ráð fyrir því að hafist verði handa við að breikka veginn um Kjalarnes árið 2019. Gert er ráð fyrir að 3,2 milljarðar kr. fari í það verkefni. Til samanburðar má geta þess að að á árunum 2008-2017 var einungis rétt rúmum milljarði varið...
Fyrsta klifurmót Smiðjuloftsins og ÍA var haldið um s.l. helgi. Vel á fjórða tug keppenda mætti í glæsilega aðstöðu Smiðjuloftsins. Keppendur skemmtu sér vel ásamt áhorfendum sem voru fjölmargir. Tilþrifin voru glæsileg en keppt var í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum. Skagamenn voru sigursælir og náðu fjölmörg verðlaun eins og sjá má á úrslitunum hér...
Ísak Bergmann Jóhannesson skrifaði nýjan kafla í knattspyrnusögu Akraness þegar hann kom inná sem varamaður í leik ÍA gegn Þrótti R. í Inkasso-deildinni s.l. laugardag. Ísak Bergmann var 15 ára og 182 daga gamall á þessum degi og er hann yngsti leikmaðurinn sem tekur þátt í Íslandsmótsleik hjá mfl. ÍA frá upphafi. Gamla metið átti...