Samfylkingin og Framsókn og frjálsir á Akranesi hafa gengið frá málefnasamningi um myndum nýs meirihluta. Sævar Freyr Þráinsson verður áfram bæjarstjóri. Þetta kemur fram á RÚV. Málefnasamningur nýja meirhlutans verður borinn upp á félagsfundum beggja framboða í kvöld. http://localhost:8888/skagafrettir/2018/05/28/samfylking-i-vidraedum-vid-framsokn-og-frjalsa-um-myndun-meirihluta/ http://localhost:8888/skagafrettir/2018/05/27/lokatolur-fra-akranesi-meirihlutinn-fell-og-thrir-flokkar-fengu-fulltrua/
Fimleikafélag ÍA á Akranesi hélt glæsilega vorsýningu í gær í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Fjallað verður síðar um þá sýningu á skagafrettir.is Félagið sendi frá sér skemmtilegt kynningarmyndand þar sem starfi félagsins er lýst með myndrænum hætti. Myndbandið segir allt sem segja þarf – og fimleikar eru fyrir alla. Auglýsing
Ísólfur Haraldsson hefur svo sannarlega hitt á slagæð menningarlífsins á Íslandi. Skagamaðurinn er með fangið fullt af verkefnum alla daga. Ísólfur er maðurinn sem stendur á bak við endurkomu hljómsveitarinnar Írafárs. Rúmlega 4000 áhorfendur munu upplifa Írafár um þessa helgi í Eldborgarsal í Hörpunni. Írafár hefur ekki komið fram í 13 ár og er gríðarlegur...
Plöntuskiptidagur Garðyrkjufélagsins á Akranesi er eitthvað sem áhugafólk um gróðurrækt ætti ekki að láta fara fram hjá sér. Á slíkum dögum hittist áhugafólk um ræktun þar sem það skiptist á upplýsingum, fróðleik og plöntum. Plöntuskiptidagurinn á Akranesi er samstafsverkefni Garðyrkjufélags Íslands og Grósku Garðvöruverslun. Opið er frá 11.00-13.00 í portinu hjá Grósku Garðvöruverslun við Skagabraut...
„Ég er svekktur að hafa ekki náð að landa sigri. Við fengum á okkur mark snemma í síðari hálfleik og ég er sannfærður um að við hefðum landað sigri í venjulegum leiktíma ef okkur hefði tekist að koma í veg fyrir það mark,“ sagði Lúðvík Gunnarsson þjálfari Kára við Stöð 2 sport eftir 3-4 tap...
Rannsókn og greining gaf nýverið út niðurstöður úr könnun á högum og líðan ungs fólks á Akranesi. Í skýrslunni kemur fram margt áhugavert og eru börnin á Akranesi flest í góðum málum. Þau líta björtum augum til framtíðar og ánægjulegt að sjá hvernig þróun hefur orðið í neyslu vímuefna. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. ...
Arnar Már Guðjónsson tryggði Skagamönnum sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu í kvöld. Arnar skoraði sigurmarkið rétt fyrir leiksloks í 2-1 sigri ÍA. Steinar Þorsteinsson skoraði fyrra mark ÍA í upphafi síðari hálfleiks eftir stoðsendingu frá Bjarka Steini Bjarkasyni. Aron Jóhannsson jafnaði fyrir Grindavík 10 mínútum fyrir leikslok en Arnar Már tryggði ÍA...
Brynjar Már Ellertsson lék með unglingalandsliði Íslands í badminton í Danmörku nýverið. Skagamaðurinn efnilegi lék á Danish Junior mótinu sem fram fór í Farum. Alls tóku 12 íslenskir keppendur þátt og léku þeir í þremur aldursflokkum. Brynjar Már keppti í flokki U-17 ára í einliða, tvíliða og tvenndarleik. Í einliðaleiknum náði Brynjar Már að vinna...
„Draumurinn hefur alltaf verið læknisfræði svo stefnan er klárlega sett þangað. Seinna myndi ég svo vilja sérmennta mig á einhverju sviði læknisfræðarinnar,“ segir Karólína Andrea Gísladóttir við Skagafréttir. Karólína Andrea, sem er aðeins 18 ára gömul, sýndi afburða námsárangur í námi sínu í Fjölbrautaskóla Vesturlands – en hún útskrifaðist sem stúdent af náttúrufræðabraut þann 26. maí...
Formlegar viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn Akraness eru hafnar. Valgarður Lyngdal Jónsson, sem leiddi lista Samfylkingarinnar, staðfesti í samtali við Skagafréttir að viðræður við Framsókn og frjálsa hefðu hafist í gær. „Við höfum ekki sett neinn tímaramma á viðræðurnar, en þetta ferli mun taka einhverja daga. Það er góður gangur í viðræðunum,“ bætti Valgarður...