• Íslandsbanki hefur verið dyggur stuðningsaðili KFÍA um margra ára skeið. Nýverið endurnýjaði Íslandsbanki samstarfssaminginn við Knattspyrnufélag ÍA. Með þessum samstarfssamningi, sem er til tveggja ára, mun bankinn halda áfram að styðja vel við bakið á knattspyrnufólki á Akranesi. Á myndinni við undirskrift samstarfssamningsins má sjá þau Valdísi Eyjólfsdóttur viðskiptastjóra einstaklinga, Magnús Daníel Brandsson útibússtjóra Íslandsbanka...

  • Þrír flokkar af þeim fjórum sem buðu fram í bæjarstjórnarkosningunum á Akranesi 2018 náðu fulltrúum inn í bæjarstjórnina. Kjörsókn var 62,73 % en alls kusu 3.252 af þeim 5.182 sem voru á kjörskrá. Fyrir fjórum árum var kjörsóknin 63,37%. Sjálfstæðisflokkurinn fékk flest atkvæði og fjóra fulltrúa en tapaði einum fulltrúa frá því í kosningunum fyrir...

  • ÍA og Njarðvík skildu jöfn í gær í Inkasso-deild karla í knattspyrnu á Norðurálsvellinum. Hér er má sjá samantekt úr leiknum frá ÍA TV og einnig er myndasyrpa á vef Skagafrétta. http://localhost:8888/skagafrettir/2018/05/25/myndasyrpa-skagamenn-og-njardvik-skildu-jofn-a-norduralsvellinum/

  • Fjórir flokkar bjóða fram til bæjarstjórnarkosninga á Akranesi 2018. Kosningin hófst  í Brekkubæjarskóla  kl. 9:00 í morgun, laugardaginn 25. maí og lýkur kjörfundinum kl. 22:00. Skagafréttir settu upp í vikunni skoðanakönnun á fréttavefnum. Alls bárust 1.351 atkvæði. Alls eru á kjörskrá á Akranesi 5.183 einstaklingar, þar af 2.638 karlar og 2.545 konur. Spurningin var eftirfarandi: Hvar...

  • Sigurganga Skagamanna í Inkasso-deild karla í knattspyrnu var stöðvuð í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Njarðvík. ÍA er samt sem áður í efsta sæti deildarinnar ásamt HK en bæði lið eru með 10 stig eftir fjórar umferðir. Stefán Teitur Þórðarson og Andri Adolphsson skoruðu mörk ÍA í kvöld. Hér má sjá myndasyrpu sem...

  • Skagakonan Inga María Hjartardóttir frumflutti í dag nýtt lag – á útvarpsstöðinni Bylgjunni. Inga María var í viðtali við Rúnar Róbertsson og þar var lagið All about tonight frumflutt. Inga María, heitir fullu nafni Ingveldur María Hjartardóttir og er hún fædd árið 1994. Foreldrar hennar eru Sigríður Indriðadóttir og Hjörtur Hróðmarsson. Árið 2013 flutti Inga...

  • Félagsmenn í Félagi eldri borgara á Akranesi voru ánægðir í dag þegar skrifað var undir samning um byggingu á nýrri þjónustumiðstöð fyrir aldraða á Akranesi. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness og Jón Ágúst Garðarsson skrifuðu í dag undir samning þess efnis í núverandi aðstöðu FEBAN við Kirkjubraut 40 – en fjölmenni var á fundinum. Frá...

  • Jón Vilhelm Ákason og Ragnar Már Lárusson skoruðu mörk Kára í gær þegar liðið lagði topplið Þróttar úr Vogunum í 2. deild karla í knattspyrnu. Þróttur úr Vogum er í efsta sæti 2. deildar en Kári er í öðru sæti. Þetta var þriðji sigurleikur Kára í röð. Liðið tapaði fyrsta leiknum en frá þeim tíma hefur...

  • Aðsend grein: Kosningabaráttan hingað til hefur verið heiðarleg og sanngjörn. Við í Framsókn og frjálsum höfum fundið fyrir miklum meðbyr og velvilja og erum þakklát fyrir það. Við höfum átt góð samskipti við önnur framboð sem ber að þakka. Því þykir okkur miður að sjá að á lokametrum baráttunnar grípi menn til innistæðulausra ásakana eins...

  • Aðsend grein:  Hvernig er að búa á Akranesi. Einfalda svarið það er æðislegt, við búum við frábært aðgengi að öllu, aðstöðu, frábært bæjarfélag, það eru allir að hjálpast að að gera íþróttalífið betra. Allavega eins og sést á því að við erum með 19 aðildarfélgög undir Íþróttabandalaginu og nokkur sem bíða eftir að komast að....

Loading...