Sigríður Sól Þórarinsdóttir söng sig inn í lokakeppni Söngvakeppni félagsmiðstöðva og verður hún fulltrúi Arnardals í lokakeppni Samfés. Sigríður Sól naut aðstoðar Katrínar Leu Daðadóttur og Heklu Maríu Arnardóttur við flutningin í Samvest sem fram fór í Borgarnesi í gærkvöld. Sigríður Sól flutti lagið If I Aint Got You sem er upprunalega flutt af Alicia...
Skagamenn eru margir hverjir með allt á hreinu þegar kemur að því að fóðra smáfuglana yfir kaldasta tíma ársins. Við hér á skagafrettir.is bendum Skagamönnum á að muna eftir smáfuglunum – það er kalt í veðri og fuglarnir stóla á mannfólkið við slíkar aðstæður. Vignir Jóhannsson listamaður birti þetta myndband af fuglum í garði á...
Skagamenn eiga þrjá fulltrúa í Stúdentaráði Háskóla Íslands en kosið var í gær. Listi Röskvu hafði betur í kosningunni gegn lista Vöku. Röskva fær 18 sæti og Vaka 9 fulltrúa í 27 manna Stúdentaráð. Úrslitin eru þau sömu og síðasta þegar kosið var í Stúdentaráðið. Svana Þorgeirsdóttir (Vaka), Sigurður Ýmir Sigurjónsson (Röskva og Guðný Björk...
Skagamenn halda áfram að semja við leikmenn fyrir tímabilið 2018. Í dag skrifaði Einar Logi Einarsson undir samning sem gildir út tímabilið. Einar Logi lék síðast með ÍA árið 2014. Einar Logi er 27 ára gamall og var fyrirliði Kára á síðustu leiktíð. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA og Einar Logi Einarsson. Einar er til...
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi hefur leik á öðru móti keppnistímabilsins á LET Evrópumótaröðinni á fimmtudaginn. Valdís Þóra mun leika á fjórum mótum í Ástralíu á næstu vikum og hefur hún lokið við fyrsta mótið. Að þessu sinni keppir Íslandsmeistarinn 2017 á ActewAGL Canberra Classic mótinu sem er hluti af sterkustu mótaröð Evrópu....
Í upphafi þessa árs varð til sterk bylgja í samfélaginu, einkum meðal þeirra sem aka Kjalarnesið reglulega, íbúa á Kjalarnesi og þeirra sem eiga ættingja, vini eða vinnufélaga, sem þurfa jafnvel daglega að aka þennan háskalega veg. Bylgjan hafði kraumað undir yfirborðinu lengi vel, en síðan varð skýr vendipunktur og hún braust fram af fullum...
Hestamannafélagið Dreyri hefur á undanförnum misserum óskað eftir því að reiðhöll verði byggð á svæði félagsins við Æðarodda. Félagið hefur rætt þessi áform við forráðamenn hjá Akraneskaupstað og Hvalfjarðarsveit – en félagið er með starfsaðstöðu í báðum sveitarfélögunum. Nýverið samþykkti sveitastjórn Hvalfjarðarsveitar að leggja það til að skipuð verði nefnd um málefni reiðhallarinnar. Í nefndinni...
Laun starfsmanna hjá Elkem Ísland á Grundartanga fengu um 5,51% í launahækkun í byrjun ársins 2018 og þeir fá einnig 120.000 kr. í eingreiðslu vegna breytinga á launatímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness. Ofngæslumaður á þrískiptum vöktum fær um 30.000 kr. hækkun á mánuði. Þeir sem eru í slíku starfi og með 10...
Það er nóg um að vera hjá nokkrum leikmönnum yngri flokka ÍA í knattspyrnunni vegna æfinga hjá yngri landsliðum Íslands í knattspyrnu. Eftirfarandi leikmenn hafa verið á úrtaksæfingum hjá KSÍ að undanförnu eða verða á slíkum æfingum í febrúar. Alls hafa 11 leikmenn frá ÍA verið á æfingum með yngri landsliðum KSÍ að undanförnu eða...
Skagamenn eiga fulltrúa í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2018. Rakel Pálsdóttir, sem er 29 ára gömul Skagamær, syngur lagið Óskin mín en lag og texti er eftir Hallgrím Bergsson. Lagið er eitt af 12 lögum sem koma til greina sem framlag Íslands í Eurovison. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rakel lætur ljós sitt skína í...