• Tori Ornela mun verja mark ÍA í næst efstu deild kvenna í fótboltanum í sumar. Ornela er 25 ára gömul og er hún bandarísk. Hún lék með liði Hauka úr Hafnarfirði á síðustu leiktíð og hefur því reynslu af því að leika á Íslandi. Á heimasíðu ÍA segir Ornela að hún sé spennt fyrir því...

  • Sirrý Sif Sigurlaugsdóttir fræðslustjóri Alzheimersamtakanna mun halda kynningu á starfi félagsins hér á Akranesi fimmtudaginn 8. febrúar. Fundurinn hefst kl. 17 og stendur til 18.30. Sirrý Sif er einnig félagsráðgjafi og mun hún kynna m.a. nýjustu þekkingu á málefnum fólks með heilabilunarsjúkdóma. Tenglar samtakanna á Akranesi, Laufey Jónsdóttir og Heiðrún Janusdóttir, segja einnig frá hlutverki...

  • Í þessari laufléttu frétt má sjá myndir sem skagafrettir.is komust yfir nýverið. Þar er að finna myndir sem voru í mörg ár á skiltum í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Myndasmiðurinn er í flestum tilvikum Þórólfur Ævar Sigurðsson, fyrrum íþróttakennari við FVA og grunnskóla Akraness. Myndirnar eru alls ekki í bestu gæðum þar sem að þetta eru...

  • Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir frá Akranesi gerði nýverið samning við fyrirtækið Golf Company hér á landi. Valdís Þóra keppti um síðustu helgi í fyrsta sinn í fatnaði frá Abacus og hóf þar með samstarfið með formlegum hætti. „Frábær föt og æðislegt að fá stuðninginn frá þeim fyrir þetta ár, ég mæli með að þið kíkið til...

  • Skagamaðurinn Jakob Svavar Sigurðsson heldur áfram að gera frábæra hluti í hestamennskunni. Hann fór með sigur af hólmi í fjórgangi á stólpahryssunni Júlíu frá Hamarsey í fyrstu keppni í mótaröð Meistaradeildar Cintamani í hestaíþróttum sem fram fór í Samskipahöllinni í Kópavogi 2. febrúar s.l. Frá þessu er greint á visir.is. Sýning Jakobs Svavars einkenndist af öryggi...

  • Nýverið var áhugavert starf á Akranesi auglýst laust til umsóknar. Um er að ræða stöðu forstöðumanns íþróttamannvirkja. Íþróttamannvirki á Akranesi eru Bjarnalaug, íþróttahúsið við Vesturgötu, íþróttahúsið á Jaðarsbökkum, sundlaugin Jaðarsbökkum, Akraneshöll og grasvellir. Hér er sótt um starfið í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar. Umsóknum fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt greinargerð þar sem kemur fram ástæða umsóknar og rökstuðningur...

  • Ársþing Knattspyrnusambands Íslands fer fram í febrúar og eru tveir Skagamenn á meðal þeirra sem bjóða sig til forystu í aðalstjórn KSÍ og tveir til viðbótar með mikla tengingu við Akranes eru einnig í framboði. Gísli Gíslason, fyrrum formaður Knattspyrnufélags Akraness, og núverandi hafnarstjóri Faxaflóahafna býður sig fram í aðalstjórn en hann er núverandi gjaldkeri...

  • Kjör starfsmanna Norðuráls eru vel samkeppnishæf og í mörgum tilvikum mjög góð samkvæmt þessari frétt á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness. Fjölmargir íbúar á Akranesi starfa hjá fyrirtækinu og eru þessar fréttir því gleðiefni fyrir margar fjölskyldur. Þann 1. janúar s.l. hækkuðu laun starfsmanna um 6,51% sem gerir það að verkum að heildarlaun hjá byrjanda á vöktum í...

  • Þórir Geir & Gyða Margrét eru á meðal keppenda í Söngvakeppni RÚV 2018 þar sem þau flytja lagið Brosa eða With You. Á dögunum komu þau við í Akranesvita til þess að kanna þann orðróm sem þau höfðu heyrt um frábæran hljómburð vitans. „Við mættum á staðinn og urðum heltekin af útsýninu og vitanum sjálfum....

  • Valdís Þóra Jónsdóttir, íþróttamaður ársins á Akranesi 2017, er hálfnuð með sitt fyrsta mót í Ástralíu á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Valdís komst örugglega í gegnum niðurskurðinn á Oates Vic mótinu eftir að hafa leikið gríðarlega vel á síðustu 12 holunum á öðrum keppnisdeginu. Valdís Þóra er í 30. sæti þegar þetta er skrifað á +1...

Loading...