• Tómstundaframlag Akraneskaupstaðar fyrir árið 2018 hækkar um 40% og tók breytingin gildi þann 1. janúar. Framlag kaupstaðarins til íþrótta – og tómstundaiðkunar barna verður 35.000 kr. fyrir eitt barn en þessi upphæð var 25.000 kr. Tómstundaframlagið hækkar síðan um 25% fyrir annað barn og aftur um 25% við þriðja barn. Framlagið skiptist því svona: Foreldri með eitt barn, kr. 35.000...

  • Það hefur varla farið framhjá neinum á Akranesi og víðar að ekki hefur tekist að fella fjögur síló í Sementsverksmiðjunni. S.l. laugardag var gerð önnur tilraun til þess að nota dýnamít til þess að fella mannvirkin. Þórarinn Auðunn Pétursson, framkvæmdastjóri Work North ehf. segir í viðtali á visir.is að ráðleggingar sérfræðinga hafi ekki dugað til þess...

  • Kór Akraneskirkju bauð upp á frábæra nýárstónleika sem fram fóru fyrir fullu húsi í Bíóhöllinni í gærkvöld. Efnisskráin á tónleikunum var fjölbreytt þar sem þekkt dægurlög voru flutt ásamt nýju efni þar sem hinn kunni lagahöfundur hljómsveitarinnar ABBA, Benny Anderson, kom m.a. við sögu. Íslensku dægurlögin voru í útsetningum eftir Ríkarð Örn Pálsson, Magnús Ingimarsson...

  • Álfar, tröll, drottningar, kóngar, jólasveinar og aðrar furðuverur voru áberandi á árlegri Þrettándabrennu sem fram fór í kvöld 6. janúar. Þar voru jólin kvödd með söng og brennu, og skemmtu Skagamenn sér vel eins og sjá má þessum myndum sem skagafrettir.is tók á Jaðarsbakka. Það var samkeppni í flugeldasýningunni. Samkvæmt heimildum var pípulagningafyrirtækið Ylur með...

  • Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, var í kvöld kjörinn íþróttamaður ársins á Akranesi 2017 og er þetta annað árið í röð sem hún hlýtur titilinn. Einar Örn Guðnason kraftlyftingamaður varð annar í þessu kjöri núna og hestaíþróttamaðurinn Jakob Svavar Sigurðarson varð þriðji. Þetta er í sjötta sinn sem Valdís Þóra er efst í þessu...

  • Skagamaðurinn Björn Berg­mann Sig­urðsson hefur samið við rússneska liðið  FC Rostov en þar er annar íslenskur landsliðsmaður, Sverrir Ingi Ingason. Rússneska liðið kaupir Björn frá Molde í Noregi þar sem hann hefur leikið vel á undanförnum misserum undir stjórn Ole Gunnar Solskjær fyrrum leikmanns Manchester United. Björn, sem er 26 ára, gerir samning til tæplega...

  • Leðjugeymarnir sem stóðu af sér sprengingar verktaka á dögunum í Sementsverksmiðjunni verða felldir laugardaginn 6. janúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Unnið verður á meðan bjart er á laugardaginn. Faxabrautin verður lokuð á meðan og ekki opnuð fyrr en aðstæður verða taldar öruggar fyrir umferð á þessu svæði. Tilkynningin er í heild sinni...

  • Sigurður Lárusson fyrrum knattspyrnukappi og þjálfari er látinn 63 ára að aldri, en hann lést 3. janúar 2018. Frá þessu var greint á vef Knattspyrnufélags Akraness.  Á mbl.is er greint frá því að Sig­urður hafði ekki kennt sér meins fyrr en hann veikt­ist skyndi­lega aðfar­arnótt miðviku­dags­ins 3. janúar. Með Sigurði er genginn mikill sómamaður sem...

  • Aðildarfélög ÍA hafa greint frá því hvaða einstaklingar koma til greina í kjörinu á Íþróttamanni Akraness 2017. Á næstu dögum verður stutt kynning á helstu afrekum íþróttafólksins úr hverri grein fyrir sig. Á vef Akraneskaupstaðar geta íbúar Akraness tekið þátt í kjörinu og með því að smella hér þá getur þú tekið þátt: Stefán Gísli Örlygsson er...

  • Í dag hófst formleg söfnun í minningarsjóð Arnars Dórs Hlynssonar. „Hjá okkur hjá Sansa verður þannig háttur á að í þessari pöntunarviku, sem stendur fram til miðnættis 10. janúar munu 750 kr. af hverjum matarpakka fara í minningarsjóð Arnars Dórs. „Arnar Dór Hlynsson var topp náungi en ótrúlega óheppinn með veikindi. Hann kvartaði samt aldrei....

Loading...