Tveir Skagamenn eru í 25 manna leikmannahóp Íslands fyrir tvo síðustu leiki A-landsliðs karla í undankeppni HM 2018. Arnór Smárason kemur á ný inn í hópinn og Björn Bergmann Sigurðarson er í hópnum líkt og áður. Leikirnir sem eru framundan eru gegn Tyrkjum á útivelli föstudaginn 6. október og gegn Kósóvó á Laugardalsvelli mánudaginn 9....
Finnur Andrésson, áhugaljósmyndari á Akranesi, hefur á undanförnum misserum vakið athygli fyrir frábærar ljósmyndir. Finnur tók þátt í sumarljósmyndakeppni mbl.is og Nýherja og varð hann í þriðja sæti fyrir þessa mynd sem ber nafnið vatnsslagur. Sólarlag við Vestrahorn, sem er panorama mynd af ljósmyndara við Vestrahorn, var myndin sem stóð upp úr að mati dómnefndar...
Fyrir fjórum áratugum eða árið 1977 fagnaði ÍA Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu undir stjórn enska þjálfarans George Kirby sem var mættur á Akranes í annað sinn á ferlinum. ÍA liðið fékk Íslandsmeistarabikarinn að viðstöddu fjölmenni eins og sjá má á þessari mynd. Þrátt fyrir að myndin sé ekki í lit má glögglega sjá að guli liturinn...
Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Haraldsson var valinn í U-21 árs landslið Íslands sem leikur tvo leiki í riðlakeppni Evrópumótsins í október. Báðir leikirnir fara fram ytra, sá fyrri er þann 5. október gegn Slóvakíu og gegn Albaníu þann 10. október. Tryggvi, sem leikur með Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni, var í byrjunarliðinu í fyrsta leiknum gegn Albaníu...
Akraneskaupstaður stendur vel fjárhagslega en það kemur fram í sex mánaða árshlutauppgjöri sem lagt var fram á fundi bæjarráðs 14. september s.l. Hér má lesa uppgjörið í heild sinni. Eiginfjárhlutfall Akraneskaupstaðar í lok tímabilsins er 54,2% og veltufjárhlutfallið stendur í 2,1 á sama tíma og er Akraneskaupstaður vel í stakk búið til að standa við...
Í gær hófst malbikun á Vesturgötu en þar hefur gatan verið endurbyggð frá grunni og er eitt af stærri framkvæmdarverkefnum sem Akraneskaupstaður stendur fyrir á þessu ári. Skóflan hf. er verktaki í þessu verkefni og er stefnt að því að frágangi við gangstéttar á milli Vesturgötu á milli Stillholts og Merkigerðis verði lokið þann 18....
Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Djurgården í Stokkhólmi situr í dómnefnd í samkeppni sem sænska ríkisstjórnin stendur að. Og áður en þú hættir að lesa þá getur þú unnið þér inn miða á tónleika með hinni þekktu Zöru Larsson í október ef þú tekur þátt! Um er að ræða verkefni sem tengist...
Leikmenn Kára hafa svo sannarlega haft ástæðu til þess að fagna góðu gengi liðsins í sumar. Félagið sigraði í 3. deild á Íslandsmótinu og leikur í 2. deild á næsta tímabili. Myndbandið sem er hér fyrir neðan var tekið þegar Kári fagnaði sigrinum eftir lokaleik liðsins á þessu tímabili. Myndbandið segir allt sem segja þarf.
Arnar Már Guðjónsson hefur gert tveggja ára samning við ÍA en hann er þrítugur og einn af leikreyndustu leikmönnum ÍA. Arnar Már segir í tilkynningu frá KFÍA að hann hafi mikla trú á þeim gríðarlega metnaði og skýru stefnu sem stjórn KFÍA vinni að þar sem að ungir leikmenn fái tækifæri við hliðina á reyndari...
Akranesmeistaramótið í sundi fór fram í sundlauginni á Jaðarsbökkum s.l. föstudag þar sem 35 keppendur tóku þátt. Mótið var vel heppnað en keppendur voru 11 ára eða eldri tóku þátt og var góð stemning á sundlaugarbakkanum þar sem fjölmargir voru mættir til þess að hvetja keppendur: Akranesmeistar 2017 11-12 ára: Kristján Magnússon og Ingibjörg Svava...