Skagakonan Aníta Sól Ágústsdóttir var nýverið kjörin besti varnarmaðurinn í Sunshine State Conference í bandaríska háskólafótboltanum. Aníta Sól leikur með Embry-Riddle háskólaliðinu sem er komið í úrslit í SSC deildinni. Aníta Sól var þar að auki valin í úrvalslið deildarinnar en hún er fyrirliði Embry-Riddle...
Covid-19 smitum á Vesturlandi fer nú fækkandi en alls eru 174 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit í landshlutanum samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Á Akranesi eru 140 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit sem er sami fjöldi og í fyrradag. Einstaklingum í sóttkví...
Nýverið veitti Knattspyrnufélag ÍA Stínu – og Donnabikarinn til leikmanna félagsins sem hafa sýnt framúrskarandi árangur í íþróttinni samhliða því að vera fyrirmyndar einstaklingur á öllum sviðum félagsins. Verðlaunin eru veitt leikmönnum úr 3. eða 4. flokki ÍA ár hvert. Að þessu sinni fékk Elvira...
Pollur Bílaþvottur ætlar að styðja við bakið á fjölskyldu Bjarka Fannars hér á Akranesi með því að gefa vinnu við bílaþrif og bón helgina 21-21 nóvember 2021. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Polli. Safnað verður fyrir fjölskyldu Bjarka Fannars Hjaltasonar. Bjarki Fannar er 14...
Margrét Rán og félagar hennar í stórhljómsveitinni Vök beina kastljósinu að Akranesi og nærumhverfi í nýju myndbandi sem tekið var upp á Akranesi í lok september á þessu ári. Lagið heitir Running Wild og hefur vakið töluverða athygli hér á landi og að sjálfsögðu erlendis,...
Ísak Bergmann Jóhannesson og Stefán Teitur Þórðarson voru báðir í byrjunaliði Íslands þegar liðið mætti Rúmeníu á útivelli í undankeppni HM 2022 á útivelli í Búkarest. Þetta var 9. A-landsleikur Ísaks Bergmanns sem er fæddur árið 2003 og Stefán Teitur var að leika sinn 6....
Ólafur Páll Gunnarsson, íbúi á Akranesi, hefur á undanförnum misserum endurgert tvö hús í gamla miðbænum á Akranesi, sem í dag eru á meðal glæsilegustu bygginga Akraness. Útvarpsmaðurinn þaulreyndi er sannkölluð eldsál þegar kemur að uppbyggingu á Akranesi og þá sérstaklega í gamla bænum –...
Alls greindust 200 einstaklingar með Covid-19 smit á landinu í gær og er um metfjölda að ræða. Áður höfðu mest 178 einstaklingar verið greindir á einum degi en það var í fyrradag. Á landinu öllu eru 1.505 í einangrun vegna Covid-19 og 2.365 eru nú...
Talsverðar breytingar verða gerðar við Hausthúsatorg á Akranesi á næstu misserum vegna framkvæmda sem tengjast uppbyggingu Festis hf. / N1 á svæðinu. Breytingin tengist samkomulagi sem Akraneskaupstaður hefur gert við Festi hf. um að bæjarfélagið leysi til sín lóðir fyrirtækisins við Þjóðbraut (Skútan) og Dalbraut...
Gríðarleg aukning hefur verið í heimsóknum á vef Skagafrétta á undanförnum vikum og gærdagurinn var sá stærsti í fimm ára sögu fréttamiðilsins. Rétt rúmlega 6.800 einstakir notendur komu í heimsókn á skagafrettir.is, þriðjudaginn 9. nóvember. Fyrra aðsóknarmetið var slegið rækilega en það var frá því...