Kvennalið ÍA er fallið úr næst efstu deild á Íslandsmótinu í knattspyrnu 2021. ÍA endaði í 10. og neðsta sæti deildarinnar eftir æsispennandi lokakafla þar sem að fimm lið börðust um að halda sæti sínu í deildinni. Til marks um hversu jöfn deildin var þá...
Körfuknattleikslið ÍA í meistaraflokki karla fór óvænt upp um deild um s.l. helgi þegar ljóst var að Reynir úr Sandgerði ætlar ekki að senda lið til keppni í næst efstu deild. Hið unga og efnilega lið ÍA endaði í 2. sæti í 2. deild karla...
Í nýjustu upplýsingum um mannfjölda á Íslandi sem birtur er á vef Hagstofu Íslands kemur fram að íbúar á Akranesi eru nú alls 7.770. Á þessu ári hefur íbúum fjölgað um 80 alls. Í upphafi ársins 2021 voru íbúar á Akranesi alls 7.690 og fjölgaði...
„Þá er hugarfóstrið okkar Hinriks komið í heiminn. Nýtt lag, nýtt ljóð og nýtt ljós. Ég get seint fullþakkað þeim sem hvöttu mig áfram við þessa vinnslu. Og þau Ásta Marý, Baldur og Heiðar Mar lyfta þessu öllu saman með fagmennsku sinni. Það sannast hér...
Næstkomandi laugardag þann 11. september, milli kl. 14:00 – 17:00, verður kosningaskrifstofa Viðreisnar í Borgarnesi opnuð, en hún er staðsett við Borgarbraut 61. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Frambjóðendur kjördæmisins verða á staðnum og til í spjall en einnig mun formaður Viðreisnar Þorgerður...
Í gær fór fram kynningarfundur þar sem að kynntar voru endurbætur á húsnæði Grundaskóla og framtíðar uppbyggingu. Á næstu misserum mun ásýnd Grundaskóla breytast gríðarlega mikið eins og sjá má á þessum myndum hér fyrir neðan. Fyrr á þessu ári kom það í ljós að...
Á fundi bæjarráðs Akraness fyrr á þessu ári var tekið fyrir erindi frá Hinriki Haraldssyni vegna forkaupsréttar á húsinu við Vesturgötu 57. Bæjarráð hafnaði erindinu – þar sem að ráðið sá ekki að húsnæðið gæti nýst til lögbundinnar þjónustu sveitarfélagsins. Húsið sem um ræðir við...
Alls greindust 26 einstaklingar með Covid-19 smit á landinu í gær samkvæmt uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Alls voru 16 einstaklingar í sóttkví við greiningu, en 10 voru utan sóttkvíar. Á Vesturlandi hefur dregið töluvert úr Covid-19 smitum frá því í síðustu viku. Alls eru...
Aðsend grein frá Sævari Jónssyni Ég sest hérna niður til að hripa niður nokkur orð varðandi þá fyrirætlan bæjaryfirvalda að byggja hérna í garðinum hjá mér og nágrönnum mínum 600 m2 íbúðarkjarna fyrir fólk með fötlun. Húsinu er ætluð staðsetning á grænu svæði á milli...
Skagakonan Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og dansfélagi hennar, Aron Logi Hrannarsson, náðu frábærum árangri á dögunum á Opna breska meistaramótinu. Mótið, sem er eitt það stærsta og virtasta í dansveröldinni í Evrópu, og fór það fram í borginni Blackpool á Englandi. Rósa Kristín og Aron Logi...