Mikil ánægja er meðal íbúa við Eyrarflöt 4 á Akranesi með nýjar rafhleðslustöðvar sem nýverið voru settar upp fyrir framan fjölbýlishúsið. Verkefnið fékk styrk frá Akraneskaupstað í samvinnu við Orku Náttúrunnar (OR) samkvæmt ákvörðun bæjarráðs fyrr á þessu ári. Kristján Kristjánsson íbúi í Eyrarflöt 4...
Akraneskaupstaður óskaði nýverið eftir tilboðum í verkefni sem tengist uppbyggingu göngustíga meðfram strandlengjunni við Krókalón. Þrjú tilboð bárust en kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var tæplega 26,2 milljónir kr. Eins og áður segir bárust þrjú tilboð í verkefnið og voru þau öll talsvert yfir kostnaðaráætlun. Skóflan hf. átti...
Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum nýverið að fela umhverfisstjóra að semja við lægstbjóðanda í verkefnið Brekkubæjarskóli-endurgerð lóðar-áfangi 1. Nánar hér: Tvö tilboð bárust í verkið og var kostnaðaráætlun 11,3 milljónir kr. SE Garðyrkja ehf. bauð tæplega 16 milljónir kr. í verkefnið og BÓB...
Í dag er stór dagur í Akraneskirkju þar sem að þrír prestar verða settir inn í embætti. Akraneskirkja fagnar einnig afmæli í dag en kirkjan var vígð þann 23. ágúst árið 1896 og kirkjan er því 124 ára. Prófastur Vesturlands, Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, mun...
Þrátt fyrir að ákveðnar hömlur séu í okkar samfélagi þá er vel hægt að halda menningarlífi gangandi. Með takmörkunum þó en þá verður að sníða stakk eftir vexti. Kalman listafélag á Akranesi stendur fyrir tvennum tónleikum á næstunni á Akranesi með flottu listafólki. Fimmtudaginn 20....
Akraneskaupstaður og Festi hf., sem er eigandi N1, hafa samið um að skipta á lóðum. Samningurinn felur í sér að núverandi N1 stöð við Þjóðbraut verður afhent bænum í skiptum fyrir nýja lóð við hringtorgið Hausthúsatorg þar sem ekið er inn í bæinn af Þjóðvegi...
ÍA og Víkingur úr Reykjavík áttust við í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í gær í Akraneshöllinni. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum með 7 stig í 6. og 7. sæti deildarinnar. Unnur Ýr Haraldsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins fyrir ÍA á 38. mínútu og...
Innritun í FVA fyrir haustönn 2020 lauk í júní s.l. og kennsla hefst þriðjudaginn 18. ágúst 2020. Tæplega 540 nemendur eru skráðir til náms á haustönn og er umtalsverð fjölgun í nemendahópnum. Á haustönn 2019 voru 480 nemendur í FVA og á vorönn 2020 voru...
Guðmundur Tyrfingsson hefur samið við Knattspyrnufélag ÍA og mun hann leika með liðinu út leiktímabilið 2022. Guðmundur, sem er fæddur árið 2003, hefur verið lykilmaður í 2. deildarliði Selfoss undanfarin tímabil. Hann hefur leikið 32 leiki með mfl. Selfoss og skorað 8 mörk. Guðmundur hefur...
ÍA og Fylkir áttust við í PepsiMax deild karla í knattspyrnu í dag á Jaðarsbakkavelli. Fyrir leikinn var lið Fylkist með 15 stig eftir 9 leiki í efri hluta deildarinnar en ÍA var með 10 stig eftir 9 leiki í neðri hluta deildarinnar. Arnór Gauti...