Eins og kom fram í dag á skagafrettir.is var í dag stofnað þróunarfélag á vegum Brims og Akraneskaupstaðar. Markmið félagsins er að vinna að atvinnuuppbyggingu og nýsköpun á Breið á Akranesi. Í tilkynningu frá Akraneskaupstaðar er sagt frá því að uppbyggingin verði áfangaskipt til langs...
Í dag var undirrituð viljayfirlýsing um nýtt þróunarfélag á Akranesi. Akraneskaupstaður í samvinnu við Brim höfðu frumkvæði að stofnun þess. Félaginu er ætlað að efla atvinnuuppbyggingu og nýsköpun á Breið á Akranesi. Fjölmenni var við undirritunina í dag í húsnæð Brims við Bárugötu þar sem...
Það er margt í boði í dagskrá Írskra daga sem fram fara helgina 2.-5. júlí 2020 á Akranesi. Bæjarhátíðin er með breyttu sniði að þessu sinni vegna Covid-19. Hér er dagskráin fyrir föstudaginn 3. júlí. Dagskráin er birt með þeim fyrirvara að vegna aðstæðna gæti...
Það viðrar vel til útiveru í dag þegar bæjarhátíðin Írskir dagar hefst með formlegri dagskrá. Hér fyrir neðan má sjá hvaða viðburðir eru í boði á fyrsta degi hátíðarinnar. 10:00-12:00 Gallerí Bjarni Þór Skólabraut 22Sýningin „Rokkum feitt inn í Írska daga“. 14:00 Írskir dagar verða...
Griðungur, gammur, dreki og bergrisi eru einkenni í nýrri ásýnd landsliða Íslands í knattspyrnu. Nýr keppnisbúningur og nýtt landsliðsmerki voru kynnt í gær í höfuðstöðvum KSÍ. Landvættirnar hafa verið verndarar Íslands frá árinu 1918 og eru hinar fullkomnu táknmyndir fyrir landslið Íslands. Þær eru tákn...
Vegurinn um Kjalarnes er einn fjölfarnasti þjóðvegur landsins. Á hverjum degi aka þar um 8-10 þúsund bílar – en vegurinn er einn sá allra hættulegasti á landinu. Íbúar á Akranesi hafa í mörg ár kallað eftir endurbótum á þessum hættulega vegakafla sem er aðeins með...
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson hefur svarað fyrirspurn frá Guðjóni S. Brjánssyni um þverun Grunnafjarðar. Kostnaður við þverun Grunnafjarðar og færslu hringvegarins vestur fyrir Akrafjall er metinn á 9 milljarða kr. Kostnaður við breikkun vegarins í núverandi vegstæði hefur hins vegar verið metinn á...
Ungir leikmenn úr röðum ÍA vöktu athygli fyrir prúðmennsku og góð tilþrif á Orkumótinu sem fram fór í Vestmannaeyjum um liðna helgi. Mótið er fyrir leikmenn í 6. flokki pilta og var ÍA með þrjú lið á mótinu. Alls sendu 34 félög keppendur til leiks...
Stjórn Faxaflóahafna sf. samþykkti samhljóða á fundi sínum að ráða hann til starfa frá og með 5. ágúst n.k. Skagamaðurinn Gísli Gíslason, núverandi hafnarstjóri Faxaflóahafna óskaði eftir því í febrúar s.l. að hætta störfum en hann hefur verið hafnarstjóri frá því í september árið 2005....
Garðalundur er einn fjölsóttasti útivistarstaður Akraness. Þar er hægt að stunda fjölbreytta hreyfingu. Útivistargildi skógræktarinnar hefur nú verið aukið enn frekar. Þar er tvinnað saman góðum æfingum og útivist í fallegu umhverfi. Nýverið voru settar upp ellefu „Hreyfistöðvar“ í Garðalundi og er markmiðið að stuðla...